Víkurfréttir - 18.12.1980, Blaðsíða 26
Fimmtudagur 18. desember 1980
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Búið til úr
hnetuskurni
PlPuH6erM£lAifiI
'PQOQA Kotfónm
/ ) />
P6/2LU/2. Gri.'/TT\A\M
F'ffixKl Pwppirtó
o
r
pfcTurtun lA
Jóla-
sveinn
á glasi
Þessi jólasveinn er
skemmtilegt borðskraut á
jólaborðið. Þið getið tekið
örk af glanspappír og
teiknað hring á örkina.
Þvermál 34 cm. Skiptið nú
þessum hring í fjóra jafna
hluta og límið hvern
þeirra saman og búið til
keilu. Þið berið lím á, eins
og er sýnt á mynd A. Þeg-
ar þessu er lokið, límið þið
skegg, augabrúnir og
húfukant úr baðmull. Ef
pappírinn er t.d. rauður
eða svartur, getið þið
y klippt augu, eyru og nef
úr hvítum pappír. Svo er
jólasveinninn látinn á
glösin á borðinu og við
köllum hann þá glasa-
hettu.
Gömul helgisaga
Eins og allir vita, fyrirskipaði
Heródes að lífláta öll svein-
börn, svo að hann gæti náð
til Jesú. En Jósef hafði verið
aðvaraður í draumi og flýði
með Maríu og Jesúbarnið til
Egyptalands.
Þegar Heródes heyrði það,
sendi hann þegar hermenn
til að leita þeirra. Og af því
að hermennirnir höfðu góða
hesta, en Jósef var gangandi
með Maríu, getið þið skilið,
að fljótt dró saman með
þeim.
Þegar þau Jósef og María
sáu hættuna nálgast, földu
þau sig í afskekktum helli
bið veginn. Þar ætluðu þau
að bíða, þar til hermennirnir
væru farnir fram hjá. Það
leið þó stutt stund, þar til
tveir hermenn komu að hell-
isdyrunum.
„Hér hafa þau eflaust falið
sig,“ sagði annar þeirra.
„Kveiktu á blysunum, við
skulum rannsaka hellinn.“
Jósef og María urðu auð-
vitað mjög óttaslegin, er þau
heyrðu þetta, en svo svaraði
hinn hermaðurinn hlægj-
andi:
„Nei, hér geta þau ekki
verið. Sjáðu bara. Inngang-
inum er lokað með kónguló-
arvef. Hvernig heldurðu að
þau hefðu getað komist inn
án þess að slíta vefinn?
Menn þurfa aðeins að hugsa,
þá sparar það bæði tíma og
áreynzlu.“
„Þú hefur rétt að mæla,“
sagði hinn hermaðurinn.
„Hér hafa þau ekki getað
falið sig.“ Svo keyrðu þeir
hestana sporum og hurfu.
Undrandi og ánægt skreið
flóttafólkið aftur út í sól-
skinið. Þá Iyfti Jesúbarnið
hendinni og blessaði kóngu-
lóna, sem hafði spunnið vef
sinn fyrir innganginn á ör-
skammri stundu og með því
gabbað leitarmennina. Og
sjá. Þegar kóngulóin kom í
ljós kom tákn hins heilaga
kross fram á baki hennar!
Enn þann dag í dag ber
kóngulóin þetta heiðurs-
merki. Margir telja hana
gæfudýr, og í net sitt veiðir
hún að minnsta kosti flugur
og skordýr, sem annars
mundu kvelja menn og dýr á
sumrin.
Þýtt.