Fréttablaðið - 29.09.2016, Side 10
LögregLumáL Á lögreglustöðinni á
Vínlandsleið í Grafarvogi starfar stoð-
deild löggæslusviðs, tölvurannsókna-
og rafeindadeild. Í deildinni eru fjórir
starfsmenn, þrír starfsmenn lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu og
einn starfsmaður lögreglustjórans á
Suðurnesjum. Allir eru þeir í einhvers
konar námi til að bæta við kunnáttu
sína. Mikil þörf er á því þar sem fram-
þróun tækninnar er síbreytileg og
hröð.
Steinarr Kr. Ómarsson lög-
reglufulltrúi hefur orðið var við
gríðarlega breytingu á umhverfinu
síðasta áratug. „Þegar ég byrjaði
í þessu árið 2007 þá var kannski
algengt að við haldlegðum eina
tölvu og einn síma. Tölvan var
pínulítil, hún var kannski á 60 gíga-
bæta hörðum diski og síminn var
einfaldur Nokia-sími.
Í dag er ekkert óeðlilegt að við
tökum mörg tæki frá einum aðila.
Marga síma og tölvur sem hver er
með geymslupláss sem er mælt í
terabætum,“ segir Steinarr. Hann
kemur með dæmi um það hversu
mikið gagnamagnið hefur aukist.
„Við sjáum það í myndefni sem sýnir
kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Við sáum áður myndskeið sem voru
20 sekúndur í mjög litlum gæðum. Í
dag erum við að finna sömu mynd-
skeið þar sem þau eru orðin miklu
lengri, jafnvel klukkutímalöng, í
fullum gæðum. Þannig að þróunin,
tækniþróunin, breytir öllu umhverfi
okkar,“ segir hann.
Í ársbyrjun tók gildi samkomulag
milli ríkislögreglustjóra, lögreglu-
stjóra á höfuðborgarsvæðinu, lög-
reglustjóra Suðurnesja og héraðs-
saksóknara um samvinnu á sviði
tölvu- og netglæpa.
Markmið samstarfsins er að nýta
núverandi mannauð og aðrar fjár-
festingar lögreglu sem best og auka
gæði rannsókna. Enn fremur að
móta framtíðarsýn fyrir málaflokk-
inn, byggða á þeirri reynslu sem
þegar er til, reynslunni af væntan-
legu samstarfi og þróuninni í mála-
flokknum hjá öðrum ríkjum.
Með tilkomu samkomulagsins
komu tveir starfsmenn til liðs við
deildina, einn frá Suðurnesjum sem
hefur starfsaðstöðu þar í dag og
einn starfsmaður héraðssaksóknara,
Heiðar Guðnason sérfræðingur sem
býr líkt og aðrir starfsmenn yfir mikil-
vægri sérþekkingu sem nýtist lög-
reglu vel.
„Það sem hefur gerst síðustu ár er
að aðgengi að tölvubúnaði við brot
hefur aukist mikið á sama tíma og
gagnamagn hefur aukist mikið. Það
gerir kröfu um mikla og góða þekk-
ingu og tól til að vinna úr þessum
gögnum. Það er eiginlega ástæðan
fyrir því að þessi litli hópur tók sig
saman til þess að vinna að því að sam-
nýta þá þekkingu sem til var innan
lögregluembættisins,“ segir hann.
Heiðar nefnir eitt dæmi af mörgum
um tölvuglæp sem er tiltölulega auð-
velt að fremja í dag. „Að falsa tölvu-
póst, þessi þjónusta er frí og það er
auðvelt að nálgast hana á netinu. Það
er ekkert áberandi að þetta sé svindl
og menn geta komist ansi langt á
tólum og þjónustu sem er frí,“ bendir
hann á.
Erfiðustu viðfangsefni deildar-
innar eru þó ekki þau sem eru tækni-
lega flókin, enda eru þau í raun þau
verkefni sem er mest spennandi að
kljást við. Erfiðustu verkefnin varða
ofbeldi gegn börnum. „Það sem
fer verst í okkur er allt sem tengist
ofbeldi gegn börnum, það er það
allra ljótasta,“ segir Steinarr sem segir
lögreglumenn deildarinnar fá að fara
til sálfræðinga á kostnað embættis-
ins til að ráða við það tilfinningaálag
sem skapast af því að sjá slíkt efni.
„Þetta er ljótasti málaflokkurinn en
brotin hafa samt alltaf verið til þótt
aðgengið sé auðveldara með netinu
og gagnamagnið hafi aukist. Barna-
klámið hefur alltaf verið til. Það var
áður á prentuðu formi. Ég man eftir
máli þar sem við tókum VHS-spólur
með barnaklámi. Þá vorum við að
telja efnið í mínútum. Fjöldi ljós-
mynda var í tugum. Nú erum við
að sjá mál þar sem um er að ræða
tugi þúsunda ljósmynda og marga
klukkutíma af efni,“ segir Steinarr.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Fá sálfræðiaðstoð til að ráða við álagið
Þeir lögreglumenn sem starfa við rannsóknir tölvugagna eru sammála um að erfiðustu málin séu þau sem varða ofbeldi gegn börnum.
Í þeim málaflokki hefur gagnamagnið aukist gríðarlega. Þeir fá sálfræðiaðstoð greidda af embættinu til að ráða betur við álagið.
Dæmi um netglæpi
l Barnaklám (barnaofbeldi)
l Hefndarklám
l Svik og fjármunabrot
l Netkúgun
l Myndbirtingarkúgun
l Brot sem beinast gegn tölvu-
búnaði eins og vírusar, spillifor-
rit (e. malware) og DDoS-árásir
l Tölvubúnaður notaður í af-
brotinu eins og á veiðisíðum (e.
phising)
l Ransomware (er tegund af spilli-
forriti sem takmarkar aðgang að
gögnum nema greitt sé fyrir að
aflétta læsingum að þeim)
l Cyber terrorism
MÓAKOT VERÐUR MEÐ KYNNINGU
29. SEPTEMBER KL. 16-18
- Tilvalið gjafakort Tilboð gilda til 1. október
Opið mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00, fimmtudaga 09:00 - 18:30, föstudaga 09:00 - 19:00 og laugardaga 10:00 - 16:00, lokað sunnudaga www.FJARDARKAUP.is
Snertilausar greiðslur
EINBAND
verð áður 348 kr./dk.
HEMP COTTON
verð áður 798 kr./dk.SILK KID MOHAIR
verð áður 1.598 kr./dk.
NR. 4 ORGANIC WOOL
verð áður 855 kr./dk.
FINO COTTON + MERINO WOOL
verð áður 798 kr./dk.
PLÖTULOPI
verð áður 468 kr./dk.
278
kr./dokkan
1.398
kr./dokkan
698
kr./dokkan
698
kr./dokkan
698
kr./dokkan
374
kr./dokkanMÓAKOT verður með kynningu í
Fjarðarkaupum/Rokku fimmtudaginn
29 sep. kl.16 - 18.
Heiðbjörg ný Landnámsdóttir verður kynnt. Þennan dag
verður einnig afsláttur af Einbandi og Lopa frá Ístexi í tilefni
dagsins. Hlökkum til að sjá þig.
20%
afsláttur
Plötulopa
20%
afsláttur
af Einbandi
Steinarr Kr. Ómarsson lögreglufulltrúi segir framþróun í tækni krefjandi.
Fréttablaðið/SteFán
Þetta er ljótasti
málaflokkurinn en
brotin hafa samt alltaf verið
til þótt aðgengið sé auðveld-
ara með netinu og gagna-
magnið hafi aukist.
Steinarr Kr. Ómarsson , lögreglufulltrúi
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t u D A g u r10 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-8
A
7
4
1
A
B
A
-8
9
3
8
1
A
B
A
-8
7
F
C
1
A
B
A
-8
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K