Fréttablaðið - 19.10.2016, Blaðsíða 1
Stjórnmál Samfylkingin mælist
með helming af kjörfylgi sínu í nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins
Stöðvar 2 og Vísis. Fengi flokkurinn
6,5 prósent ef kosið væri nú en var
með 12,9 prósent í Alþingiskosn-
ingunum 2013. Könnunin var gerð
í gær og á mánudagskvöld.
„Þetta eru mikil vonbrigði. En
við stöndum hér í miðri kosninga-
baráttu og höfum trú á því að þetta
verði ekki niðurstaðan á kjördag,“
segir Oddný G. Harðardóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, um
niðurstöðuna.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
stærsti stjórnmálaflokkurinn, með
23,7 prósenta fylgi, sem er prósentu-
stigi minna en þeir fengu í skoðana-
könnun fyrir viku. Píratar eru næst-
stærstir með 20,7 prósenta fylgi, sem
er rúmum tveimur prósentustigum
minna en þeir fengu í síðustu könn-
un. Munur á fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins og Pírata milli vikna er innan
skekkjumarka. Vinstri grænir bæta
aftur á móti við sig fylgi. Þeir fara úr
15,1 prósenti í 19,2 prósent.
Framsóknarflokkurinn fengi 8,5
prósent, Björt framtíð 7,4 prósent,
Viðreisn 6,6 prósent og Samfylking-
in fengi, sem fyrr segir 6,5 prósent.
Þetta er þriðja vikan í röð þar sem
niðurstöður benda til þess að sjö
þingflokkar yrðu starfandi á Alþingi
eftir kosningar. Oddný segir að það
kunni að flækja stjórnarmyndunar-
viðræður ef úrslitin yrðu þessi. „En
við erum með marga flokka sem eru
með svipaðar áherslur og ættum að
geta talað saman,“ segir Oddný.
Flokkur fólksins mælist með 3,4
prósent og er nálægt 5 prósenta
markinu sem myndi tryggja menn
inn á þing. „Kjörorðið hennar Ingu
er bjartsýni og bros bjargar deg-
inum,“ segir Inga Sæland formaður
Flokks fólksins, spurð að því hvort
hún sé farin að gera sér vonir um
sæti. Hún segir framhaldið á valdi
kjósenda. „Ef þeir vilja mig þá er ég
hér og ég er alltaf full af von. Það er
nú þannig.“
Könnun Fréttablaðsins var gerð
þannig að hringt var í 1.303 manns
dagana 17. og 18. október þar til
náðist í 801 samkvæmt lagskiptu
slembiúrtaki. Svarhlutfallið var því
61,5 prósent. Alls tóku 68,0 prósent
þeirra sem náðist í afstöðu til spurn-
ingarinnar, 15,7 prósent sögðust
óákveðin í því hvað þau ætluðu að
kjósa, rúm 5,7 prósent sögðust ekki
ætla að kjósa eða ætla að skila auðu
en tæp 10,6 prósent neituðu að gefa
upp afstöðu sína. – jhh
VG bætir verulega við fylgið en
Samfylking enn í varnarbaráttu
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri könnun. Vinstri græn bæta við sig fylgi
milli vikna. Formaður Samfylkingarinnar segist vera bjartsýn á að flokkurinn bæti við sig fyrir kosningar.
— m e S t l e S n a dag b l a ð á Í S l a n d i * —2 4 7 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r m i ð V i K u d a g u r 1 9 . o K t ó b e r 2 0 1 6
26. nóvember kl. 20.00
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
Miðala á miði.
Fréttablaðið í dag
marKaðurinn
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair
Hotels, segir fjölmörg tækifæri
fyrir ferðamennsku í Reykjavík
en mikilvægt að varan standi
undir verðinu.
SKoðun Jakob S. Jónsson
skrifar um ferðaþjónustu. 11
Sport Veigar Páll búinn að
semja við meistara FH. 18
lÍfið Gunnar Skjöldur
felulitaði Volvo
árgerð 1987 og
klæddi að
innan með
galla-
buxum. 30
plúS Sérblað l fólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Frambjóðendur Pí rata og Samfylkingarinnar funduðu gær um málefnaáherslur flokkanna. Píratar hafa líka boðað frambjóðendur VG, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar til
fundar við sig til þess að ræða mögulegt samstarf að loknum kosningum. Enn er óljóst hvort fleiri flokkar en Samfylkingin þekkist boðið. FréttaBlaðið/EGill
Þetta eru mikil
vonbrigði. En við
stöndum hér í miðri kosn-
ingabaráttu og höfum trú á
því að þetta verði ekki
niðurstaðan á
kjördag.
Oddný Harðar-
dóttir formaður
Samfylkingarinnar
Kjörorðið hennar
Ingu er bjartsýni og
bros bjargar deginum.
Inga Sæland,
formaður Flokks
fólksins
félagSmál „Það sem þessi sím-
töl eiga öll sameiginlegt er að þau
koma frá íslenskum vinnuveit-
endum sem eru með foreldra af
erlendum uppruna í vinnu,“ segir
Anna Margrét Ólafsdóttir, leik-
skólastjóri Nóaborgar í Reykja-
vík, sem fékk símtal frá reiðum
vinnuveitanda á mánudag sem var
allt annað en sáttur.
Vegna manneklu í leikskólanum
þurftu foreldrar að sækja börnin
fyrr og það sagði þessi vinnuveit-
andi ekki koma til greina. „Samtalið
var þannig að mér var brugðið,“
segir Anna Margrét. Vinnuveitendur
erlends fólks hringi í hana af ýmsu
tilefni.
„Ég hef einu sinni fengið símtal
frá vinnuveitanda þar sem var sagt
að starfsmaðurinn hefði hringt og
væri með veikt barn heima og þá
var vinnuveitandinn að leita eftir
staðfestingu hjá mér um að barnið
væri ekki í leikskólanum
sem hann fékk auð-
vitað ekki,“ segir Anna
Margrét Ólafsdóttir.
– bbh / sjá síðu 2
Meinað að
ná í börnin
anna Margrét
Ólafsdóttir,
leikskólastjóri
Nóaborgar.
8,
5%
1
9,2
% 6,5% 7,4% 7,4%
23,7% 6,6%
20
,7
%
✿ Könnun 17. og 18. október
Aðrir
1
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
B
-8
7
5
C
1
A
F
B
-8
6
2
0
1
A
F
B
-8
4
E
4
1
A
F
B
-8
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K