Fréttablaðið - 19.10.2016, Blaðsíða 40
Markaðurinn Íslenska úrvalsvísitalan1.710,24 -1,12% (-19,45)
Miðvikudagur 19. október 2016fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Ég, óflokksbundin kratasál, setti mig aldrei úr
færi að lesa Evrópuvaktina. Og nú sakna ég
hennar þrátt fyrir vankantana. Einn
af kostum þess miðils var sá að
lestur hans sparaði tíma, t.d. þurfti
miklu síður að fylgjast með þeim
eintölum sálarinnar sem kallast
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins.
Hannes Pétursson
17.10.2016
Könnun Gallup sýnir að um 84 prósent
Íslendinga telja að það sé ábatasamt
fyrir samfélagið að fyrirtæki skili
hagnaði og þrír af hverjum fjórum
telja að aukinn hagnaður fyrirtækja sé
jákvæður fyrir samfélagið. Nærri níu af
hverjum tíu Íslendingum eru sammála
því að atvinnurekstur sé undirstaða
velferðar í samfélaginu.
84%
telja hagnað jákVæðan
varð á vísitölu húsnæðisverðs
síðastliðna 12 mánuði samkvæmt
Þjóðskrá Íslands. Vísitala íbúðaverðs
á höfuðborgarsvæðinu var 491,8 stig
í september 2016 og hækkaði um
0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna
þrjá mánuði hækkaði vísitalan um
3,5%, síðastliðna sex mánuði hækk-
aði hún um 7,7%.
12,2%
hækkun
Hermt er að kaupendur hafi viljað
stærri hlut í Ölgerðinni en var í boði.
Höskuldur H. Ólafsson setur fund
Arion banka um afnám gjaldeyrishafta
og tækifærin sem þeim fylgja.
Sala á hlut í Ölgerðinni hefur verið
uppspretta vangaveltna meðal
áhugafólks um viðskipti með fyrir
tæki. Verðið fékkst ekki uppgefið
og hafa heyrst vangaveltur um að
fyrirtækið hafi farið á bilinu 10 til 14
milljarða að heildarvirði. Efsta talan
myndi þýða að félagið hafi verið
selt á sirka sjö sinum EBITDA sem
er rekstrarhagnaður fyrir afskriftir,
skatta og fjármagnsliði.
Vaxandi bjartsýni gætir í efna
hagslífinu og er mál manna að
það sé farið að segja til sín þegar
fyrirtæki eru verðmetin. Ölgerðin
er öflugt fyrirtæki og trú manna
á framtíðina er mikil. Forstjóri og
stjórnarformaður seldu ekki og
hermt er að allir þeir sem keyptu
hefðu verið til í meira, margar vörur
fyrirtækisins eru þess eðlis að eftir
neyslu þeirra kalla þær á aðeins
meira.
Verðmiðinn
á ölinu
Fjármálafyrirtæki eru á fullu að
undir búa gildistöku nýrra gjald
eyrislaga. Samkvæmt þeim hafa
einstaklingar leyfi til áramóta til að
fjárfesta erlendis fyrir allt að 30 millj
ónum króna. Ekki verður heimilt til
áramóta að kaupa einstök hlutabréf
erlendis og því beinast augu manna
að sjóðum í vörslu fjármálafyrirtækja.
Arion banki verður með morgun
fund í dag kl. 8.30 í höfuðstöðvum
sínum, þar sem farið verður yfir þessi
mál. Ný lög munu taka gildi þegar
þau hafa verið auglýst í Stjórnar
tíðindum og í framhaldi mun Seðla
bankinn útlista nánar hvað sé heim
ilt gagnvart þeim. Eitt af því sem
hefur tiltölulega hátt flækjustig er
hvernig svokallaðir blandaðir sjóðir
munu geta fjárfest erlendis. Erfitt er
að sjá að það geti gengið fyrsta kastið
þar sem takmarkanir miða við ein
staklinga sem eiga misháar fjárhæðir
í sjóðunum. Sjóðirnir eru þægileg
leið fyrir almenning og fagfjárfesta
til að dreifa áhættu, en líklegt er að
dreifing áhættu erlendis muni fyrsta
kastið fara fram í gegnum hreina
erlenda sjóði.
Gjaldeyrishöft
og sjóðasöfnun
1
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
B
-D
1
6
C
1
A
F
B
-D
0
3
0
1
A
F
B
-C
E
F
4
1
A
F
B
-C
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K