Fréttablaðið - 19.10.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.10.2016, Blaðsíða 2
Veður Suðaustanhvassviðri eða stormur með morgninum SV- og V-lands, en stormur eða rok eftir hádegi, hvassast SV- og V-lands. sjá síðu 18 Numinn á brott Starfsmenn Furu fjarlægðu í gær helsta kennileiti Útvarpshússins, gervihnattadiskinn stóra sem settur var upp 1991. Diskurinn tók við ýmsu efni frá Sambandi evrópskra sjónvarsstöðva auk þess að senda efni frá landinu. Tveir minni gervihnattadiskar leysa þann gamla af. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM samfélag „Það sem þessi símtöl eiga öll sameiginlegt er að þau koma frá íslenskum vinnuveitendum sem eru með foreldra af erlendum upp- runa í vinnu, ég hef aldrei  fengið slíkt símtal varðandi íslenska for- eldra,“ segir Anna Margrét Ólafs- dóttir, leikskólastjóri Nóaborgar í Reykjavík, sem fékk símtal frá reiðum vinnuveitanda á mánudag sem var allt annað en sáttur. Ástæðan var að vegna manneklu í leikskólanum þurftu foreldrar að sækja börnin fyrr og í Nóaborg á þriðjungur nemenda foreldra af erlendum uppruna. Símtalið fékk mjög á Önnu Margréti. „Samtalið var þannig að mér var brugðið. Ég er búin að vera leik- skólastjóri í yfir tuttugu ár og þetta er í sjötta eða sjöunda sinn sem svona gerist. Ég settist niður eftir símtalið og rifjaði það upp að öll símtölin voru frá vinnuveitendum sem voru með foreldra af erlendu bergi brotna í vinnu,“ segir Anna Margrét. Svo fór að foreldrið fékk ekki frí frá vinnuveitanda sínum til að sækja barnið sitt en hún gat bjargað því þannig að annar kom og sótti. Anna Margrét segir að vinnuveit- endur með erlent vinnuafl hringi af alls konar tilefni. „Ég hef einu sinni fengið sím- tal frá vinnuveitanda þar sem var sagt að starfsmaðurinn hefði hringt og væri með veikt barn heima og þá var vinnuveitandinn að leita eftir staðfestingu hjá mér að barnið væri ekki í leikskólanum sem hann fékk auðvitað ekki.“ Anna Margrét útskrifaðist sem leikskólakennari 1994 og hefur verið leikskólastjóri á Nóaborg Útlendingar fá ekki frí þegar leikskólinn lokar Íslenskur vinnuveitandi útlendings hringdi í leikskólastjóra í Reykjavík, sem þurfti að senda börn heim vegna manneklu og tilkynnti að starfsmaðurinn fengi ekki frí. Leikskólastjórinn segist hafa heyrt fleiri slík tilvik um alla borg. Önnu Margréti Ólafsdóttur var brugðið eftir símtal. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon BRInk frá 1. september 2001. Hún segist reyna að útskýra fyrir erlendu for- eldrunum að svona sé ekki algengt á Íslandi og þurfi að nýta alla sína reynslu til að miðla málum. „Foreldrarnir eru algjörlega miður sín þegar svona gerist. Þetta er ekkert annað en fordómar,“ segir Anna Margrét. Í Nóaborg séu mörg börn sem eigi foreldra af erlendum uppruna. „Við sem erum hér reynum að útskýra að svona sé ekki algengt á Íslandi en ég heyri alls konar sögur útundan mér að fleiri leik- skólastjórar séu að lenda í þessu og jafnvel grunnskólar. Mér var brugðið eftir símtalið og setti smá hugleiðingu á Facebook þar sem ég fékk mikil viðbrögð og þetta ein- skorðast ekki bara við leikskólann minn. Þetta er greinilega þekkt og mér finnst slæmt ef vinnuveitendur halda, í alvöru, að þeir geti hringt og reynt að stjórna lífi starfsmanna sinna.“ benediktboas@365.is Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna alþingiskosninga 29. október nk. liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 19. október fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá og hvar þeir eiga að kjósa. Athugasemdum vegna kjörskrárskráninga í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður Skrifstofa borgarstjórnar sVíÞjÓð Um tólf þúsund einstakl- ingar sem hefur verið synjað um hæli í Svíþjóð eru í felum. Ekki er talið útilokað að einhverjir hafi þegar yfirgefið landið. Samkvæmt frétt Dagens Nyheter telur lögreglan að þeim sem fara í felur muni fjölga í allt að 15 þúsund á næstu tveimur árum þar sem búast megi við fleiri synjunum. Fulltrúi landamæralögreglunnar segir að þeir sem ekki geti lengur búið á flóttamannaheimilum þurfi að finna leið til að sjá fyrir sér. Það kunni að leiða til aukinnar svartrar vinnu og misnotkunar. – ibs Tólf þúsund fara huldu höfði VEðuR Veðurstofan varar við óveðri á landinu í dag og aðfaranótt fimmtu- dags. Gert er ráð fyrir sunnan- og suðaustanstormi eða roki á Suður- og Vesturlandi. Búist er við því að mestur vind- hraði verði á norðurhluta Snæfells- ness. Þar gæti vindhraði farið yfir 40 metra á sekúndu í hviðum. Einnig verður afar hvasst á Reykjanesskaga og hlutum höfuðborgarsvæðisins. Reikna má með vindhraða yfir 20 metrum á sekúndu á Norðurlandi fram eftir morgundeginum. Varað er við vexti í ám á Snæ- fellsnesi, á Hvítársvæðinu, kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul. – jóe Vara við stormi og vatnavöxtum Búist er við vætu og talsverðum vindi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM sV E i taR stj Ó R n i R   Tveir full- trúar Arion banka mættu  á fund bæjarráðs Siglufjarðar í gær til að skýra uppsagnir starfsmanna í 6,2 stöðugildum í útibúum bankans í sveitarfélaginu. Gunnar Birgisson bæjarstjóri segir bæjarráðsfundi lokaða og að hann vilji ekki tjá sig um það sem sagt var né hvort skýringar Arion- manna hafi breytt viðhorfi heima- manna til uppsagnanna. „Það er hins vegar alveg ljóst að fulltrúar Arion banka sögðu í fyrra, þegar þeir yfirtóku Sparisjóðinn, að þá myndi ekki fækka fólki. Þeir ræddu um það við bæjarráð og bæjarfull- trúa og það hefur ekki gengið eftir og þeir reyndu að skýra það,“ segir bæjar- stjórinn.  – gar Fulltrúar Arion hittu bæjarrráð Gunnar I. Birgisson. Foreldrarnir eru algjörlega miður sín þegar svona gerist. Þetta er ekkert annað en fordómar. Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri Nóaborgar Alls voru átta starfsmenn af 17 fjarverandi þennan mánudag hjá Önnu Mar- gréti og því ekki möguleiki að klára daginn vegna manneklu. 1 9 . o k t Ó b E R 2 0 1 6 m i ð V i k u D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð 1 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F B -8 C 4 C 1 A F B -8 B 1 0 1 A F B -8 9 D 4 1 A F B -8 8 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.