Fréttablaðið - 19.10.2016, Page 38
Laukverð á niðurleið
Indverskur maður athugar verðið á poka af lauk á Malakpet grænmetismarkaðnum í Hyderabad í gær. Bændur á Kurnool-svæðinu í Andhra
Pradesh hafa lýst því yfir að þeir óttist lækkun á laukverði úr 3 INR kílógrammið í 2,2 INR kílógrammið. Fréttablaðið/aFP
Fyrsta vara
Genki Instru-
ments í augsýn
Ólafur Bogason,
einn stofnenda Genki
Lars Christensen
alþjóðahagfræðingur
Það eru spennandi tímamót hjá
Genki Instruments. Í átján mánuði
höfum við unnið að því að þróa
nýstárleg stafræn hljóðfæri og
nýjar útfærslur á hljóðfærum sem
heimurinn hefur ekki séð áður.
Undir lok náms þriggja okkar í
BS-námi í rafmagnsverkfræði vorið
2015 leiddi sameiginlegur áhugi
á tækni og tónlist okkur saman í
vinnu við lokaverkefni í áfanga. Þar
fengum við tækifæri til að hanna og
þróa frumstæða frumgerð af hugar-
fóstri okkar.
Það fylgir því einstök og ólýsanleg
tilfinning að sjá tól sem þú hefur
hannað sjálfur verða til og skila
því sem lagt er upp með. Jafnvel þó
langt sé í að hægt sé að skilgreina
tólið sem „vöru“.
Um það leyti sem við vorum að
ljúka námi var auglýst eftir þátttak-
endum í viðskiptahraðalinn Startup
Reykjavík. Við stóðumst ekki freist-
inguna að senda inn umsókn, jafn-
vel þó að í því hefði falist umtals-
verð vinna í miðjum lokaprófum.
Við erum þakklátir fyrir að umsókn
okkar var samþykkt og stóð verk-
efnið yfir sumarið 2015. Við nýttum
tímann vel og lögðum nótt við dag
við að halda áfram vinnu við þróun
hugmynda okkar, ásamt því að soga
að okkur þá þekkingu og reynslu
sem okkur bauðst í Start up Reykja-
vík hraðlinum.
Fljótlega eftir að Startup Reykja-
vík hófst þá kynntumst við vöru-
hönnuðinum Jóni Hólmgeirssyni
sem kom með reynslu og sjónar-
mið sem hjálpaði okkur við að sjá
hugmyndir okkar í nýju og jafnvel
enn meira spennandi samhengi. Þar
takast fyrst tæknin og hönnunin á
en renna svo saman í eina heild.
Tækniþróun er tímafrek og
krefjandi glíma en með sama hætti
geysilega skemmtileg og spenn-
andi. Sérstaklega þegar afrakstur
þrotlausrar vinnu skilar sér. Opnar
hugbúnaðarlausnir og þrívíddar-
prentarar gera vinnu við gerð frum-
gerða aðgengilegri og auðveldari en
áður. Það hefur gert okkur kleift
að gera tilraunir með útfærslur
sem áður hefðu ekki verið fram-
kvæmanlegar.
Nú eru hafnar notendaprófanir
á nýjustu frumgerðum fyrirtækis-
ins. Við finnum fyrir áhuga þeirra
sem þegar hafa prófað lausnirnar
okkar og það er sannarlega mikil-
væg hvatning. Fram undan eru
spennandi tímar þegar í ljós kemur
hvernig markaðurinn tekur í vör-
urnar okkar.
Áhugasömum er bent á Face-
book-síðu Genki Instruments. Þar
má fylgjast með fréttum af fyrirtæk-
inu og vöruþróun. Genki Instru-
ments tók þátt í Startup Reykjavík
viðskiptahraðlinum 2015.
Undanfarið hef ég fengið margar
spurningar um mikið gengisfall
breska pundsins í kjölfar Brexit-
atkvæðagreiðslunnar 23. júní.
Síðan þá hefur pundið virst vera
í nánast frjálsu falli og eðlilegt að
spurt sé hve lengi það muni halda
áfram. Það er alkunna að erfitt er
að spá fyrir um þróun gengis og
ég ætla ekki að reyna að koma
með spá um þróun pundsins (að
minnsta kosti ekki hér). En við
getum reynt að meta hvað veldur
falli pundsins og spyrja hversu
veikt pundið verður áfram.
Ódýr breskur big Mac
Hagfræðingar vilja hugsa um verð-
gildi gjaldmiðils með hliðsjón af
því sem við köllum kaupmáttar-
jöfnuð (PPP) eða það sem þekkist
sem vinsælli útgáfa, svokölluð Big
Mac-vísitala. Samkvæmt PPP-
kenningunni ætti verðgildi gengis,
til dæmis punds gagnvart evru,
að endurspegla hlutfallslegt verð
vöru í löndunum tveim. Eða hvað
Big Mac varðar ætti verðið á Big
Mac að vera það sama í London
og Berlín ef við mælum það í sama
gjaldmiðli.
Ef við notum þetta viðmið – en
í víðara samhengi fleiri vörur en
bara Big Mac – þá gefa útreikn-
ingar mínir til kynna að pundið
sé vissulega orðið „ódýrt“ við-
víkjandi PPP. Þannig er pundið
sennilega 15% vanmetið gagnvart
evrunni og 25% vanmetið gagn-
vart dollarnum. Þetta er reyndar
mjög nálægt því sem hin einfalda
Big Mac-vísitala í tímaritinu Eco-
nomist sýnir.
Pundið er ekki ódýrt
að ástæðulausu
En sú staðreynd að pundið er
nokkuð vanmetið gagnvart kaup-
máttarjöfnuðinum gefur ekki
sjálfkrafa til kynna að pundið
ætti að styrkjast – að minnsta
kosti ekki á næstunni. Með öðrum
orðum: Það er ástæða fyrir því
að pundið er ódýrt, eða reyndar
nokkrar ástæður.
Í fyrsta lagi er auðvitað niður-
staðan í Brexit-kosningunni ein
og sér býsna mikill hnykkur sem
hefur valdið verulegri óvissu,
sérstaklega varðandi stöðu
London sem alþjóðlegrar (og
evrópskrar) fjármálamiðstöðvar
þar sem spurningar vakna um
hvort bankar með höfuðstöðvar í
London geti haldið svokölluðum
fjármálavegabréfum. Ef ekki, gæti
það neytt bankana til að flytjast
frá London til borga í ESB. Þetta
yrði augljóslega meiri háttar áfall
fyrir breska hagkerfið.
Í öðru lagi hefur niðurstaða
Brexit valdið því að Englands-
banki hefur aukið lausatök í pen-
ingamálum allverulega og gefið
sterk merki til markaðanna um
að hann muni gera hvað sem þarf
til að vega upp á móti áhrifum
Brexit á hagvöxt og verðbólgu.
Þetta virðist virka og breskar hag-
tölur eru enn nokkuð öflugar og
verðbólguvæntingar hafa hækkað
í kjölfar aðgerða Englandsbanka.
En þessi lausatök á peningamál-
unum munu augljóslega veikja
pundið.
Í þriðja lagi þarf Bretland enn
að berjast við mikinn viðskipta-
halla, eða 5-6% af vergri lands-
framleiðslu, sem ætti einnig undir
venjulegum kringumstæðum að
leiða til veikari gjaldmiðils.
Svo að þegar öllu er á botninn
hvolft er pundið vissulega „ódýrt“
en það eru góðar ástæður fyrir
því. Að því sögðu þá gæti ástandið
breyst þegar fram í sækir, sérstak-
lega þar sem líklegt er að óviss-
an um stöðu London sem fjár-
málamiðstöðvar muni minnka
– á einhverjum tímapunkti – og ef
breskar hagtölur halda áfram að
þróast á tiltölulega jákvæðan hátt
í framtíðinni þá ættu markaðirnir
að byrja að vænta minni lausataka
á peningamálastefnunni þegar
fram í sækir. Báðir þessir þættir
gætu hjálpað pundinu að bragg-
ast – einhvern tímann.
Hríðfallandi pund
Svo að þegar öllu er
á botninn hvolft er
pundið vissulega „ódýrt“ en
það eru góðar ástæður fyrir
því.
Nýverið tilkynnti menntamála-
ráðherra að afhenda ætti öllum
börnum í 6.-7. bekk forritanlegar
örtölvur að gjöf. Frábært verkefni
að fyrirmynd frá Bretlandi sem
unnin var í samvinnu við BBC.
Að verkefninu hér á landi standa
menntamálaráðuneytið, Samtök
iðnaðarins, Menntamálastofnun
og Krakka RÚV.
Frábært verkefni ef haldið er
rétt á spöðunum. Krakkar fá tæki
í hendur og RÚV setur upp verk-
efnasíðu og skemmtilegt efni til
stuðnings. En hvað gleymdist? Voru
skólar og kennarar undirbúnir?
Nei. Samt áttu skólarnir að sækja
um græjurnar fyrir nemendur. Samt
eru hafnir forritunarleikar tengdir
græjunni. Mér finnst enn og aftur
verið að gera lítið úr starfi kennara
og þeirri skipulagningu og undir-
búningi sem felst í kennslu. Eiga
kennarar alltaf að hlaupa upp til
handa og fóta án fyrirvara þegar
ráðherra þarf að fá jákvæða athygli
út á við? Eiga kennarar að lengja
vinnudaginn til að styðja við verk-
efnið án þess að fá greitt fyrir það?
Ef kennarar gera það ekki fá þeir
skammir frá foreldrum fyrir að vera
ekki að nýta þetta frábæra tæki í
kennslu STRAX.
Ég þarf ekkert að skafa utan af
því að Illugi er ekki og hefur ekki
verið minn ráðherra. Honum hefur
tekist að hrinda af stað verkefnum
sem virðast frekar snúa að eigin
hagsmunum og með það að leiðar-
ljósi að reyna að fegra hann út á
við heldur en að gæta hagsmuna
barnanna okkar og styðja við skóla-
kerfið. Hver man ekki eftir „fræga“
lestrarátakinu sem var hent út með
laginu hans Bubba með nýjum
texta og myndbandi í stíl! Ráð-
herra blés sig síðan út með heim-
sóknum um landið til að kynna
átakið sem átti aldeilis að bjarga
lestri barnanna okkar. Eins og svo
oft áður þá gleymdi ráðherra að
ráðfæra sig við skóla og kennara
og hafa meðfylgjandi fjármuni og
markvissa áætlun, efni og þjálfun til
að fylgja eftir. Í það minnsta að hafa
tengingu við nýja aðalnámskrá. En
þess virðist greinilega ekki þurfa
þegar fókusinn er að slá ryki í augun
á almúganum, þykjast vera að vinna
vinnuna sína og allt þetta á kostnað
kennara. Hver fær jú skammirnar
þegar börnin hafa ekki bætt sig í
lestri? Kennararnir og skólarnir.
Er ekki kominn tími til að kenn-
arar og nemendur séu metnir meira
en athygli eins ráðherra?
EkkiMinnRáðherra
Hin hliðin
rakel Sölvadóttir
framkvæmdastjóri
Skema
Tækniþróun er
tímafrek og krefj-
andi glíma en með sama
hætti geysilega skemmtileg
og spennandi.
1 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r10 markaðurInn
1
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
B
-B
D
A
C
1
A
F
B
-B
C
7
0
1
A
F
B
-B
B
3
4
1
A
F
B
-B
9
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K