Fréttablaðið - 19.10.2016, Qupperneq 60
beint frá LondonGrime er mjög ung tón-listarstefna sem nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi og ann-ars staðar eftir að hafa verið frekar lítt þekkt tónlistarfyrirbæri sem hírðist
að mestu vel falið í neðanjarðarsenu
breskrar tónlistarflóru. Hingað til
lands hafa komið nokkrir listamenn
sem kenna sig við stefnuna og á næstu
Airwaves-hátíð kemur grime-risinn
Dizzee Rascal til landins. Áður hafa
komið hingað Stormzy, sem ætlaði að
mæta á Airwaves en þurfti að afboða
sig, Section Boyz, Skepta og JME, Lady
Leshurr, Foreign Beggars og The Bug
og Flowdan.
Líklega má rekja þessar skyndi-
legu vinsældir á heimsvísu til þess að
bæði kanadíski tónlistarmaðurinn
Drake og bandaríski hipphopp-
risinn Kanye West hafa hampað
grime-inu frekar nýlega – Kanye
West fékk nánast alla grime-tón-
listarmenn Bretlands með sér upp á
svið þegar hann spilaði á Brit-verð-
laununum árið 2015 og Drake og
grime-tónlistar maðurinn Skepta
hafa verið miklir mátar; Drake fékk
hann til að spila á tónlistarhátíðinni
Skepta er einn af
fáum grime-
listamönnum
sem varð vinsæll
á hinum kröfu-
harða Ameríku-
markaði. Nordic
PhotoS/Getty
Lífið
fyrstu gekk stefnan undir alls kyns
nöfnum – 8-bar, nu shape, sublow
og eskibeat en hefur síðan síðar
meir verið sett undir einn hatt sem
grime. Tónlistarstefnan þróaðist að
mestu út frá bresku tónlistarstefn-
unum UK garage og jungle auk þess
sem hún ber sterk áhrif frá amerísku
hipphoppi, en jungle og garage eru
að mestu „instrumental“ með grunn-
tónlistarhefð frá Karíbahafinu, líkt
og hipphoppið ameríska, þar sem
tíðkast að kynnar hrópi slagorð sem
ríma yfir tónlistina.
Oft er litið á grime sem breska
útgáfu af amerísku hipphoppi en
það er að vissu leyti ruglandi. Auð-
vitað er til breskt hipphopp en á
sama tíma aðskilur grime sig frá
því með að vera byggt á allt
öðrum grunni, þó að það
eigi það sameiginlegt með
amerísku hipphoppi að
það inniheldur rapp. Í dag,
á tímum inter netsins, er
þessi munur kannski enn
minni en ef munurinn á
að vera einfaldaður eins
mikið og hægt er má segja
að grime
sé byggt
á elektr-
ó n í s ku m
g r u n n i e n
hipphopp á
rætur í fönki og diskó
– en síðan auðvitað
flækjast öll þessi áhrif
saman nú til dags þegar
nálgast má tónlist á inter-
netinu með einum smelli og alls
konar tónlist nær að hafa áhrif á
alls konar fólk.
Nokkrir Íslandsvinir
Dizzee Rascal kemur hingað til
lands í næsta mánuði til að spila á
Iceland Airwaves. Hann er ásamt
Skepta stærsti grime-listamaður
allra tíma. Dizzee Rascal vakti
mikla athygli fyrir plötu sína Boy
in da corner sem kom út árið 2003
og hlaut hann Mercury-verðlaunin
eftirsóttu fyrir plötuna og varð þar
með yngsti tónlistarmaðurinn sem
hefur fengið verðlaunin en hann
var einungis 19 ára.
Stormzy hætti því miður við að
koma á Iceland Airwaves í ár en
hann hafði áður spilað á Secret Sol-
stice festival og því nú þegar orðinn
Íslandsvinur. Stormzy er rísandi
stjarna í heimalandinu og hefur
verið að sanka að sér verðlaunum
og var nú um daginn í auglýsingu
fyrir fótboltamanninn Paul Pogba
og Adidas. Lag hans Shut Up hefur
verið ansi vinsælt jafnvel þó að
það sé upphaflega „freestyle“ þar
sem hann notar lagið Functions
on the low með XTC sem undir-
spil. Stormzy á enn eftir að senda
frá sér plötu og aðdáendur hans
eru að missa sig í spennu.
Skepta gaf út sína fyrstu plötu
árið 2007 en síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Hann kom
meðal annars hingað til lands
ásamt rapparanum JME sem
reyndar er bróðir hans og eins
og Dizzee Rascal hlaut hann
Mercury-verðlaunin fyrir
sína nýjustu plötu, Konn ichiwa,
en á henni snýr hann aftur
til upprunans, en hann hafði
yfirgefið grime-hljóminn fyrir
talsvert poppaðri tónlist, sem
hann svo viðurkenndi síðar að
hefðu verið mjög mikil mistök.
Þessi nýja plata hans hefur vakið
mikinn áhuga utan heimalandsins
og jafnvel í Bandaríkjunum, en
grime-ið hefur aldrei átt auðvelt
uppdráttar þar.
Stormzy er ungur og upp-
rennandi tónlistarmaður
sem á þó enn eftir að gefa
út sína fyrstu plötu.
Nordic PhotoS/Getty
Wiley er einn
fyrsti grime-
listamaðurinn.
Nordic PhotoS/
Getty
dizzee rascal ætlar að heim-
sækja Ísland nú í nóvember.
Nordic PhotoS/Getty
Stefán Þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
OVO Fest sem Drake heldur á hverju
ári og skrifaði síðan undir samning
við Boy Better Know, plötufyrirtæki
Skepta.
Sambræðingur
úr sjóræningjaútvarpi
Grime á upphaf sitt í byrjun síðasta
áratugar og varð tónlistarstefnan
til í austurhluta London þar sem
starfræktar voru nokkrar ólöglegar
útvarpsstöðvar sem spiluðu jungle,
garage og fleiri urban-tónlistar-
stefnur reglulega sem svo síðar meir
hrærðust saman og urðu grime. Í
H E I L S U R Ú M
Haust
tilboð
KING KOIL
SUMMER GLOW
QUEEN SIZE AMERÍSKT HEILSURÚM
40%
afsláttur
Fullt verð 278.710 kr.
TILBOÐSVERÐ 167.226 kr.
A
R
G
H
!!!
1
11
01
6
Sambræðingur
tónlistarstefna
Á Iceland Airwaves hátíðina í ár kemur tónlistarmaðurinn Dizzee Rascal en hann er stórt
nafn úr grime heiminum. Grime er ung tónlistarstefna sem hefur verið að rísa í vinsældum
utan heimalands síns síðustu ár eftir að hafa verið neðanjarðar í nokkurn tíma.
1 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r32 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
1
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
B
-A
E
D
C
1
A
F
B
-A
D
A
0
1
A
F
B
-A
C
6
4
1
A
F
B
-A
B
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K