Fréttablaðið - 19.10.2016, Síða 64

Fréttablaðið - 19.10.2016, Síða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Margir greinast með lífsógnandi sjúk-dóm allt of snemma á æviferlinum. Þegar slíkt hendir upplifir fólk sorg, söknuð eftir því sem var, kvíða og vanmátt. Margir upplifa þegar þeir fá ógnandi sjúkdóms- greiningu að þeir séu sviptir sjálf- ræði, ekki ólíkt því sem fólk skynjar við ótímabært andlát ástvinar. Skyndilega er lífið gjörbreytt án þess að maður ráði neinu. Þá er mikil- vægt að fá að vera við stjórnvölinn þar sem því verður við komið, m.a. í sjálfu lækningaferlinu. Af reynslu minni af samskiptum við fólk í slíkum aðstæðum sé ég þrennt sem ekki má svipta neinn. Það er trúin, vonin og kærleikurinn. Þegar lífi okkar og heilsu er ögrað reynist mörgum styrkur að eiga trú á æðri mátt og margur kemst einmitt til trúar í þeim aðstæðum. Þegar faðir minn greindist með ólæknandi sjúkdóm á besta aldri og ég fór með honum að hitta lækni til að fá niður- stöður greiningar þá hafði læknirinn þann háttinn á í stað þess að ræða ítarlega um framvindu sjúkdómsins að hann spurði: Bolli, hvers nýtur þú best í lífinu? Hann svaraði: Ég nýt þess að hlusta á tónlist, fara í leik- hús, lesa góðar bækur og vera með fólkinu mínu. Þá horfði læknirinn á hann með mikilli hlýju og sagði: Gerðu mikið af þessu öllu. Ég verð þessum lækni alltaf þakklát hvernig hann efldi föður minn í voninni og lífsfegurðinni í þessu þjáningarfulla samtali. Loks tel ég að allir sem lifa skyndi- legt heilsuleysi hafi ríka þörf fyrir samkennd og skapandi kærleika. Ef samskiptavandi ríkir í fjölskyldum er fátt brýnna en að ganga til verka og leyfa nýrri sátt að fæðast þannig að dagarnir sem eftir eru séu fullir af tilgangi, því það er ein af frum- þörfum mannsins. Lífsógnandi sjúkdómar Jónu Hrannar Bolladóttur Bakþankar 䐀最甀渀 猀琀攀渀搀甀爀 洀攀 猀樀洀渀渀甀洀℀ *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS KANADA * Nóvember–desember 2016 MONTRÉAL TORONTO f rá 15.999 kr. FYRIR JÓL AINNKAUPIN FLJÚGÐU VESTUR Í VETUR Fjörugt næturlíf og mögnuð matarmenning gera Montréal að einni mest spennandi borg Norður–Ameríku og hin töfrandi Toronto kemur öllum á óvart. Fljúgðu með WOW air og leyfðu Kanada að koma þér í jólaskap. OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 1 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A F B -8 7 5 C 1 A F B -8 6 2 0 1 A F B -8 4 E 4 1 A F B -8 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.