Fréttablaðið - 12.10.2016, Side 8

Fréttablaðið - 12.10.2016, Side 8
Bandaríkin Nú hefur Chris Christie, ríkisstjóri í New Jersey, bæst í hóp þeirra þungavigtarrepúblikana sem Donald Trump hefur gengið fram af. Christie sagði í gær að ummæli Trumps á myndbandinu, sem lekið var í fjölmiðla fyrir helgina, hafi verið algerlega óverjanleg: „Ég mun ekki verja þau og hef ekki varið þau.“ Trump stærði sig þar af því að geta áreitt konur að vild. Christie atti um tíma kappi við Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins, en lýsti síðan yfir stuðningi við hann. Hann vill raunar ekki ganga svo langt að segjast ekki lengur styðja Trump til forseta, en segir að Trump hafi ekki beðist afsökunar með nægilega afgerandi hætti. Þetta kemur í beinu framhaldi af yfirlýsingu Pauls Ryan, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem á mánudaginn lýsti því yfir að hann treysti sér ekki lengur til að hvetja flokksmenn til að styðja framboð Trumps. Úr því sem komið er hafi hann meiri áhyggjur af gengi flokksins í þingkosn- ingum. Þingmenn flokksins eigi nú að hugsa frekar um sjálfa sig hver í sínu kjördæmi. „ Þ i n g f o r - setinn ætlar að einbeita sér að því næsta mánuðinn að verja þingmeiri- hluta okkar,“ sagði AshLee Strong, talskona hans, í yfirlýsingu sem f r é t t a s t ö ð i n CNN skýrði frá. „Hann mun verja allri orku sinni í að tryggja að Hillary Clinton fái ekki óútfylltan tékka með Demókrata í meirihluta á þinginu.“ Forsetakosning- arnar eru þar með í raun orðnar að auka- atriði fyrir flokkinn. Fleiri þungavigtar- menn í flokknum hafa nýlega lýst yfir andstöðu við Trump eða í það minnsta neitað að styðja hann. Þar á meðal eru John McCain, Condol eezza Rice og John Kasich. Harðir stuðningsmenn Trumps hafa margir hverjir tekið þessu illa og segja nauðsynlegt að flokkurinn gangi sameinaður til forsetakosn- inga. Enda geti gengi flokksins í for- setakosningum haft mikil áhrif á gengi hans í þingkosningum. Margir áhrifamenn flokksins halda reyndar enn tryggð við Trump, eða hafa í það minnsta ekki gefið annað til kynna. Meðal þeirra eru Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, og öldungadeildarþing- maðurinn Marco Rubio, sem rétt eins og Christie keppti upphaflega við Trump um að verða forsetaefni flokksins. Trump sjálfur virðist síðan ekki ætla að láta þetta neitt á sig fá, heldur ræðst af hörku gegn þeim áhrifa- mönnum innan flokksins sem hafa gagnrýnt hann. Til þess notar hann Twitter og fagnar því reyndar að vera nú laus úr hlekkjunum: „Það er svo gott að hlekkirnir hafa verið teknir af mér og nú get ég barist fyrir Banda- ríkin með þeim aðferðum sem ég vil.“ Segir þar meðal annars að Paul Ryan sé veikburða og áhrifa- lítill leiðtogi. Hann segir einnig að Repúblikana flokkurinn geti lært ýmislegt af Demókrötum um flokkshollustu: „Að undanskildu því að svíkja Bernie um útnefningu þá hafa Demókratar alltaf reynst miklu trygglyndari hver öðrum en Repúblikanar,” segir Trump. gudsteinn@frettabladid.is Trump fagnar því að vera laus við þungavigtarmennina Ríkisstjórinn Chris Christie vill ekki lengur koma Trump til varnar, ekki frekar en ýmsir aðrir þungavigtar­ menn úr Repúblikanaflokknum sem hafa haldið sig til hlés eftir að upptöku sem sýndi Trump viðhafa óviðeigandi ummæli um konur var lekið til fjölmiðla. Trump segist ekki þurfa stuðning áhrifamanna. Donald Trump og Chris Christie í apríl 2016. Þá var ríkisstjórinn einn einarðasti stuðningsmaður Trumps. NorDiCphoTos/AFp Það er svo gott að hlekkirnir hafa verið teknir af mér og nú get ég barist fyrir Bandaríkin með þeim aðferðum sem ég vil. Donald Trump Umhverfismál „Því er fljótsvarað. Það hefur ekki verið neitt slíkt,“ segir Guðmundur Þorbjörn Björns- son, rekstrarstjóri meindýravarna hjá Reykjavíkurborg, spurður um það hvaða aðgerða hafi verið gripið til í því skyni að fækka kanínum í höfuðborginni. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá slysi sem Hlöðver Bernharður Jökuls son sjúkraþjálfari lenti í þegar hann hjólaði á kanínu í Elliðaár- dalnum. Hlöðver datt af hjólinu með þeim afleiðingum að fimm rifbein brotnuðu, lunga féll saman og annað herðablaðið fór í tvennt. Hlöðver kallar eftir aðgerðum borg- arinnar til að fækka kanínunum. Guðmundur Þorbjörn segir að eina fækkunin sem eigi sér stað sé þegar ökumenn keyri á kanínurnar við Stekkjarbakka. „Það er þó nokk- uð um það.“ Guðmundur Þorbjörn segir kan- ínur vera friðaðar en Reykjavíkur- borg hafi fengið undanþágu til að taka á málum ef borgarbúar kvarta. „Það hefur komið fyrir að þær hafa verið í görðum hjá fólki og svona og þá höfum við tekið á stöku dýrum.“ Guðmundur Þorbjörn segist vita til þess að það hafi komið til tals að grípa til aðgerða varðandi kanín- urnar. Það hafi vakið hörð viðbrögð þegar þær hugmyndir voru reifaðar í fjölmiðlum. „Ég veit ekki hvort borgaryfir- völd leggja í það,“ segir hann. Hann segist sjálfur ekki fara í Elliðaárdal- inn til þess að lóga kanínum. „Alveg sama hversu margir myndu kvarta. Ef farið verður í aðgerðir þar þá verður það bara að vera ákveðið á háum stöðum,“ segir Guðmundur. – jhh Engar aðgerðir fyrirhugaðar gegn fjölgun kanína í borginni Fjöldi kanína er í Elliðaárdalnum og eru skiptar skoðanir um það hvort fækka eigi þeim. FréTTAblAðið/ ANToN frakkland Vladimír Pútin, forseti Rússlands, hefur afboðað heim- sókn sína til Frakklands, þar sem til stóð að hann myndi eiga fund með François Hollande forseta um ástandið í borginni Aleppo í Sýr- landi. Forsagan er sú að á laugardag- inn beittu Rússar neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þegar greidd voru atkvæði um álykt- un um að stöðva ætti án tafar allar sprengjuárásir á Aleppo í Sýrlandi. Kínverjar, sem einnig hafa neitunar- vald í ráðinu og hafa rétt eins og Rússar oft beitt því gegn hvers kyns íhlutunum í málefni annarra landa, beittu þessu valdi sínu ekki að þessu sinni heldur sátu hjá. Einungis Venesúela stóð með Rússum og greiddi atkvæði gegn ályktuninni. Hollande tók þessu afar illa og hefur sagt að sennilega væri fundur með Pútín tilgangslaus sem stendur, en þeir áttu að hittast í París í næstu viku. Hollande hefur einnig sagt að vegna þátttöku sinnar í loftárás- unum á Aleppo geti Rússar átt yfir höfði sér málaferli vegna stríðs- glæpa. – gb Pútín vill ekki hitta Frakklandsforseta François hollande og Vladimír pútín, þar sem þeir hittust í Moskvu í nóvem- ber á síðasta ári. FréTTAblAðið/AFp Forsetakosningar í USA 2016 neytendUr DV braut ákvæði laga um neytendasamninga og ákvæði laga um húsgöngu og fjarsölu- samninga með því að veita neyt- endum ekki nægar upplýsingar í og eftir sölusímtöl þegar DV var boðið í áskrift. Þetta er niðurstaða Neyt- endastofu sem úrskurðaði um málið eftir að stofnuninni bárust ábend- ingar og kvartanir vegna símasölu DV á blaðaáskriftum. Neytendur kvörtuðu yfir því að þeim hafi verið boðin frí áskrift að DV en ekki hafi komið fram nauð- synlegar upplýsingar um að þeir færu sjálfkrafa í þriggja mánaða áskrift að frítímabili loknu. Þá hafi neytendum reynst erfitt að segja samningi upp. Neytendastofa sendi DV fyrir- spurnir vegna málsins. Bent var á að fyrirtæki í símasölu verða í sam- talinu að veita fullnægjandi upp- lýsingar um tilboðið, meðal annars varðandi uppsagnarfrest og bindi- tíma, auk þess að senda þær skrif- lega að sölu lokinni. - jhh Brutu lög við sölu á DV reykjavík Skrifað var undir samn- inga í dag milli Faxaflóahafna og Björgunar um að Björgun fari af lóðinni Sævarhöfða 33. Að auki er samið um að Björgun vinni að 25 þúsund fermetra landfyllingu sem er fyrsti áfangi í stækkun Bryggju- hverfisins. Faxaflóahafnir munu kaupa þrjár húseignir Björgunar á svæðinu og laust malarefni á lóðinni sem notað verður við landfyllinguna. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg segir að samningar við Björgun hafi það í för með sér að starfsemi fyrirtækisins færist annað, landrými eykst fyrir íbúðabyggð á svæðinu og unnt verður að hefja vinnu við deili- skipulag þess. - jhh Björgun fer af Sævarhöfða Neytendastofa segir að símsölumenn hafi ekki látið vita af þriggja mánaða bindingu sem fylgdi tilboðinu. Það hefur komið fyrir að þær hafa verið í görðum hjá fólki og svona og þá höfum við tekið á stöku dýrum. Guðmundur Þor- björn Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna hjá Reykjavíkurborg Hann mun verja allri orku sinni í að tryggja að Hillary Clinton fái ekki óútfylltan tékka með Demókrata í meirihluta á þinginu. AshLee Strong, talskona Pauls Ryan, forseta fulltrúadeildarinnar 1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 6 m i Ð v i k U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 3 -E 9 6 4 1 A E 3 -E 8 2 8 1 A E 3 -E 6 E C 1 A E 3 -E 5 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.