Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Hafliði Helgason haflidi@frettabladid.is Þann 19. september var skrifað undir samkomulag um breytingu á lífeyrissjóðum opinberra starfs-manna. Það samkomulag átti að ramma inn frumvarp um breytingar á lögum lagt fyrir Alþingi á yfir- standandi þingi. Forystufólk opinberu stéttarfélaganna skrifaði undir samkomulagið í trausti þess að öll réttindi núverandi sjóðsfélaga væru tryggð og óbreytt. Samræmt lífeyriskerfi er skynsamlegt og um það er ekki deilt, en dettur nokkrum í hug að það ágæta fólk sem hefur forystu í stéttarfélögunum hafi skrifað með bros á vör undir samkomulag sem rýrir réttindi umbjóðenda? Góðu heilli var fyrirliggjandi frumvarp ekki afgreitt á Alþingi því það var ekki í anda samkomulagsins frá 19. september. Svik, segir forseti ASÍ. Ég virði baráttu ASÍ fyrir bættum kjörum sinna félags- manna. ASÍ hefur átt frumkvæði að mörgum góðum málum til handa launþegum almennt. En á sama tíma bið ég forseta ASÍ að virða stöðu annarra stéttarfélaga og sýna þeirra baráttu sömu virðingu. Hingað til hefur ASÍ lítið umburðarlyndi haft fyrir því ef laun sumra stétta opinberra starfsmanna hækka meira en á almennum markaði. Þá er hótað öllu illu og „launa- löggan“ sér til þess að okkar viðsemjendur hugsa sig um tvisvar áður en þeir rétta af kjör opinberra starfsmanna af ótta við að styggja forystu annarra launþega. Og er það þá virkilega þannig að forysta ASÍ berjist fyrir lægri launum opinberra starfsmanna? Og fyrir skertum lífeyrisrétt- indum þessa sama hóps? Ég bið forseta ASÍ að hafa það í huga að opinberir starfsmenn hafa verið, og eru enn, lægra launasettir en kollegar þeirra á almennum markaði. Samræming lífeyrisréttinda á almennum og opinberum markaði má ekki fela í sér réttindaskerðingu þeirra sem hafa búið við lægri laun í þeirri vissu að betri lífeyrisréttindi séu í það minnsta verðmæti sem ekki verði frá þeim tekin. Það getur því aldrei nokkurn tímann skapast sátt um breyt- ingar á lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna eigi það að fela í sér skerðingu á réttindum núverandi sjóðfélaga. Og rétt er auðvitað, áður en lengra er haldið, að leiðrétta laun opinberra starfsmanna. Þegar sú vegferð hefst verður það vonandi án þess að launalögga ASÍ hóti öllu illu. Launalögga ASÍ Ég bið forseta ASÍ að hafa það í huga að opinberir starfsmenn hafa verið, og eru enn, lægra launasettir en kollegar þeirra á al- mennum markaði. Guðríður Arnardóttir mynd sem þú mátt ekki missa af - v a r i e t y- E n t e r t a i n m e n t w e e k l y “emily blunt gives rachel multiple dimensions” “superb job” “emily blunt is perfect” “solid thriller” “the girl on the train is sexy and brutal” “vivid performances from the cast” Alþingi samþykkti í gær frumvarp um gjaldeyrisviðskipti sem kynnt voru fyrir nokkru. Ný lög eru mikilvægt skref á þeirri vegferð að landið verði aftur þátttakandi í alþjóðlegu við-skiptaumhverfi. Með lögunum eru heimildir Íslendinga til að dreifa áhættu sinni út fyrir íslenska hagkerfið rýmkaðar verulega. Seðlabankinn hefur þó enn mikil völd og getur fylgst náið með gjaldeyrisviðskiptum almenn- ings og fyrirtækja. Þegar gjaldeyrishöft voru sett á óttuðust margir að því lengur sem þau vörðu, því fleiri hefðu af því hagsmuni að þau væru um kyrrt. Sem betur fer virðist sú hætta að baki og almenn sátt um að landið eigi að haga málum sínum með þeim hætti að það sé fullur þátttakandi í heimsviðskiptum. Ein af stoðum EES-samningsins er frjálst flæði fjár- magns og enda þótt það kunni enn um sinn að vera draumórar að við uppfyllum öll skilyrði þess samn- ings þá eru ný gjaldeyrislög mikilvægt skref í þá átt. Við losun hafta hefur mögulegur fjármagns- flótti verið mesta ógnin. Nú er staðan sú að Seðla- bankinn situr á miklum gjaldeyrisforða og jöfnuður við umheiminn er með þeim hætti að margir gætu öfundað okkur af. Hagvöxtur er mikill og hann hefur verið drifinn áfram af gjaldeyrisskapandi grein eins og ferðaþjón- ustunni. Allar hirslur eru að fyllast af gjaldeyri og staða á alþjóðamörkuðum er þannig að þó mönnum bjóðist að fara eru þeir tregir til. Lífeyrissjóðir fengu heimild til að flytja þó nokkra fjármuni úr landi, en hafa farið sér hægt vegna óvissu og lágra vaxta í löndunum í kringum okkur. Til þessa hafa þeir ekki nýtt alla þá heimild sem þeim stóð til boða. Til lengri tíma ættu þeir þó að nýta tækifæri til að dreifa áhættu sinni. Þetta er staða sem engan hefði órað fyrir, þó ekki sé litið lengra um öxl en til þriggja til fimm ára. Ef raunin af slökun haftanna nú verður sú að fé leiti lítið úr land- inu er einboðið að stíga frekari skref og afnema höft að fullu. Að óbreyttu bendir flest til þess að krónan muni halda áfram að styrkjast næsta árið sem kann að reyna á samkeppnis- og útflutningsgreinar.  Ástandið nú minnir um margt á upphafsár útrásar íslenskra fyrirtækja. Hagsveifla hér var meiri en í nágrannalöndum og fjármunamyndun og aðgengi að lánsfé opnaði mikil tækifæri fyrir fjárfesta. Mikil skuldsetning fjárfestinga gaf vel af sér, en því miður hélst skuldsetning há sem leiddi til þess að stór hluti eiginfjár einkafjárfesta tapaðist. Ekki er að efa að tækifæri munu opnast á ný og þá er mikilvægt að nýta lærdóm síðustu uppsveiflu. Hann er í stuttu máli sá að vera klæddur fyrir rysjótt veður og ganga hægt um gleðinnar dyr. Loksins slaknar á höftunum Nú er staðan sú að Seðla- bankinn situr á miklum gjaldeyris- forða og jöfnuður við umheiminn er með þeim hætti að margir gætu öfundað okkur af. Hagsmunirnir Segja má að hnýttur hafi verið rembihnútur á raflínur sem flytja eiga rafmagn frá Þeista- reykjum og Kröflu að Bakka við Húsavík. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, segir svo mikla hagsmuni í húfi í viðtali við Fréttablaðið í dag, að þingið eigi að vera læst inni þar til málið leysist. En ef hagsmunirnir eru svona ríkir, hefði þá ekki verið nær að vanda betur til verka í upphafi? Eða sýnir málið að sameining sveitarfélaga er nauðsynleg svo styrkja megi faglega ferla innan sveitarfélaga til að koma í veg fyrir svona hnúta? Rasískt eða þjóðernislegt? Í kosningaspjalli Vísis, sem er ávallt í beinni útsendingu eftir hádegi á virkum dögum, sagðist Gunnlaugur Ingvarsson þreyttur á því að flokkurinn hans væri sakaður um rasisma í fjölmiðlum. Gunnlaugur er oddviti Íslensku þjóðfylkingar- innar og segir flokkinn alls ekki rasískan á nokkurn einasta hátt. Hins vegar bætti hann við að mikilvægt væri að gyrða sig í brók í innflytjendamál og ýta hælisleitendum aftur úr landi sem fyrst. Þá sagði hann að Þjóðfylkingin væri á móti íslam- svæðingu eins og hann kallaði það. Það var ágætt að fá þettta á hreint hjá Gunnlaugi. sveinn@ frettabladid.is 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r16 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð SKOÐUN 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 3 -A 9 3 4 1 A E 3 -A 7 F 8 1 A E 3 -A 6 B C 1 A E 3 -A 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.