Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 52
Leikhús hannes & smári eftir Halldóru Geirharðsdóttur, Jón Pál Eyjólfsson og Ólafíu Hrönn Jóns- dóttur HHHHH Borgarleikhúsið í samstarfi við Leikfélag Akureyrar Leikendur: Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Kolbeinn Orfeus Eiríksson Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson Leikmyndir og búningar: Brynja Björnsdóttir Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson Tónlist: Hannes og Smári Hljóð: Baldvin Þór Magnússon og Þórður G. Þorvaldsson Myndband: Jón Páll Eyjólfsson Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir Leikhúsgestum er boðið upp á list- ræna samsuðu, samda og leikna af tón- listarmönnunum Hannesi og Smára, hliðarsjálfum leikkvennanna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur á Litla sviði Borgarleik- hússins um þessar mundir. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarleikhúss- ins og Leikfélags Akureyrar en hún var frumsýnd síðastliðinn föstudag í Reykjavík og fer á fjalirnar fyrir norðan þann 18. nóvember. Á sviðinu ríkir ringulreið nánast frá byrjun en þeir kumpánar gerðu ráð fyrir því að sýningin myndi enda á stóra sviði Borgarleikhússins, eðlilega. Stuttu fyrir frumsýningu steig trommarinn til hliðar vegna listræns ágreinings og í hans stað eru þeir búnir að ráða ellefu ára dreng; Eyjólfur Flóki var sá eini sem svaraði auglýsingu hljómsveitarinnar Úlfanna. Leikmyndin, hugvitsamlega hönnuð af Brynju Björnsdóttur, var því bókstaflega söxuð niður svo að hún passi á smærra svið. Drag, eða klæðaskipti, er í eðli sínu pólitísk athöfn, þá sérstaklega innan hinsegin heimsins. Með því að klæðast fötum gagnstæðs kyns geta einstakling- ar tekið til sín vald sem þeim er vana- lega neitað um, yfirleitt vegna kyn- hneigðar eða kyngervis síns, og á sama tíma gagnrýnt valdasamsetningu sam- félagsins. Hannes og Smári sýna okkur þannig tilfinningarót karlmennskunnar en gagnrýna óskemmtilegar hliðar hennar á sama tíma. Söngtextar og tónlist eru alfarið eftir Halldóru og Ólafíu Hrönn en Jón Páll Eyjólfsson kemur að handritinu, ásamt leikkonunum tveimur. Óum- deilanlegt er að þær tvær eru miklar hæfileikakonur og leika hér á als oddi: spila á ýmis hljóðfæri, syngja og takast að lokum á loft. Persónusköpun þeirra er nákvæm allt frá smámælgi Smára til tómlegs augnaráðs Hannesar. Jón Páll hikar ekki við að hrista upp í sviðsetn- ingunni með uppbrotum og óvæntum uppákomum. En enn og aftur, enn og aftur, er ekki nægilega vel hugsað um handrit sýninga í íslensku atvinnu- leikhúsi. Brotakennt á það kannski að vera, líkt og sálarlíf aðalpersónanna, en það er ekki nægilega góð ástæða fyrir óhnýttum endum, ókláraðri persónu- sköpun og endasleppri niðurstöðu. Endurgerð þeirra á ónefndu atriði úr frægri rómantískri Hollywood-bíó- mynd er gjörsamlega óborganleg, þó Elma Stefanía Ágústsdóttir fái allt of lítið að gera. Sömuleiðis er ljóðahorn Smára óbærilega fyndið sem og gítar- sóló Hannesar sem ætlar engan enda að taka. Kolbeinn Orfeus Eiríksson fær líka einn af bestu bröndurum kvöldins sem er svo óviðeigandi og svakalegur að ekki er hægt að endurtaka á prenti. Í þessum atriðum birtast möguleikarnir sem felast í karakterum Hannesar og Smára, hvernig hægt er að nota drag sem tvíeggja vopn á súran íslenskan veruleika. Leikgervi Árdísar Bjarnþórsdóttur verður að nefna sérstaklega en þau eru sett saman af kostgæfni og fagmennsku. Þess væri þó óskandi að hljóðið hefði verið í sama gæðaflokki en oft var frek- ar erfitt að heyra orðaskil í söngtextum Úlfanna, sem er algjör synd því þeir eru einn af hápunktum sýningarinnar. Bara ef hárbeittu augnablikin væru fleiri og betur skipulögð. Bara ef hand- ritið væri þéttara og sterkara. Hand- ritið hangir nefnilega varla saman nema á lyginni einni og sviðsverund leikkvennanna, enda eru þær þaul- vanar og frábærar í sínum hlutverkum. Textann þyrfti að stytta hressilega og sömuleiðis skrúfa samfélagsádeiluna upp í ellefu. Sigríður Jónsdóttir NiðurstAðA: Þó nokkur bráð- fyndin atriði bjarga ekki gölluðu handriti. Úlfar í listrænum ham „Ég telst jú einn af leikstjórum myndarinnar, þó að ég sé smiður að aðalatvinnu. Við erum þrjú sem stöndum að henni en hún er eigin- lega mér að kenna,“ segir Haukur Sigvaldason, hugmyndasmiður að heimildarmyndinni Brotið. Hún fjallar um aftakaveður sem skall á í dymbilvikunni árið 1964 með þeim afleiðingum að sjö sjómenn fórust frá Dalvík og þrettán börn misstu feður sína, þar á meðal Haukur. Brotið verður sýnt í Bíói Para- dís við Hverfisgötu á morgun. „Við köllum þetta frumsýningu sunnan heiða en Dalvíkingar fengu að sjá myndina í fiskidagsvikunni, meðan hún var enn í klippivélinni og svo sýndum við á Ólafsfirði um síðustu helgi. Þetta er engin gleði- mynd en henni var vel tekið því fólki fannst hún áhrifarík,“ segir Haukur. Ástæðu hinna skyndilegu veður breytinga segir Haukur þá að hlýr loftmassi hafi legið yfir landinu um tíma þegar allt í einu hafi komið ískaldur strókur frá Grænlandi, sem ekki hafði komið fram í spám. „Þessi kaldi massi ræðst á hlýja loftið og úr verður hvellur sem stóð í þrjá daga með látum. En aðfaranótt 9. apríl höfðu sjómenn á Dalvík haldið til veiða, enda veðurspáin þokkaleg. Voru á línu austur á Skjálfanda í steinbít, grandalausir, þegar veðrið ræðst að þeim. Það fórust fjórir Dalvík- urbátar í þessum látum en mann- björg varð af tveimur trillum. Strandferðaskipið Esjan kom að Valnum sem faðir minn og Gunn- Engin gleðimynd en áhrifarík Heimildarmyndin Brotið verður frumsýnd sunnan heiða í Bíói Paradís og er á dagskrá þar fram yfir helgi. Þar er lýst mann- skaðaveðri í apríl árið 1964 og áhrifum þess á Dalvík þar sem þrettán börn misstu feður sína í hafið. „Við erum þrjú sem stöndum að myndinni en hún er eiginlega mér að kenna,“ segir smiðurinn Haukur. FréTTabLaðið/GVa Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Trommarinn Kolbeinn Orfeus í hlut- verki sínu ásamt þeim Hannesi og Smára á Litla sviði borgarleikhússins. Mynd/GríMur bJarnaSOn 1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 6 M i ð V i k u D A G u r28 M e N N i N G ∙ F r É t t A B L A ð i ð menning 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A E 3 -C 1 E 4 1 A E 3 -C 0 A 8 1 A E 3 -B F 6 C 1 A E 3 -B E 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.