Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 94
Það Þarf að horfa til Þess hversu gríðarlegum tekjum riff skilar í raun til ríkisins en við sem rekum hátíðina getum Þetta ekki mikið lengur við óbreyttar aðstæður. Undanfarin ár hefur Kvikmyndahátíðin í Reykjavík, Reykjavik International Film Festival, átt vaxandi vinsældum að fagna í menningarlífi landsmanna. Á ell- efu dögum á hverju hausti flykkist fólk í bíó til þess að sjá fjölbreyttar kvikmyndir frá öllum heims- hornum sem eiga það sameiginlegt að auðga líf okkar með einum eða öðrum hætti. Eða eins og Hrönn Marinósdóttir, stofnandi og stjórn- andi hátíðarinnar, bendir á þá trúa aðstandendur hátíðarinnar því að kvikmyndir geti breytt heiminum til hins betra. Mikilvægt hlutverk „Það er gaman að gefa Íslendingum tækifæri til þess að sjá allar þessar myndir og kynnast alþjóðlegri kvik- myndagerð eins og hún gerist best. Fókusinn hefur verið á splunku- nýjar framsæknar kvikmyndir, það er sérstaða hátíðarinnar ásamt sér- viðburðum á borð við sundbíó og fleira skemmtilegt sem vekur athygli víða um heim. Þess vegna m.a. sér erlent fagfólk ástæðu til að koma hingað og eins erlendir blaðamenn sem fjalla um hátíðina í sínum stóru miðlum víða um heim. En RIFF gerir líka miklu meira en það. Kvikmyndagerð er ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi, bæði með innlendri og erlendri framleiðslu, og RIFF á sinn þátt í þeim vexti. Þátt í því að koma Íslandi á kortið, halda því þar og vinna stöðugt að vexti og viðgangi greinarinnar.“ Hrönn segir að Reykjavík henti mjög vel sem kvikmyndahátíðar- borg og að hátíðin sé ákaflega mikil- vægur hlekkur í því a byggja hér upp kvikmyndaiðnað og geti gert enn betur í þeim efnum. „RIFF er komin á hið alþjóðlega kvikmyndahátíða- kort, er virt hátíð og kvikmynda- gerðarmenn keppast við að senda okkur myndirnar sínar, yfir 1.000 á hverju ári. Á vegum RIFF er líka unnið heilmikið kynningarstarf á kvikmyndalandinu Íslandi og við sýnum íslenskar myndir í útlönd- um nokkrum sinnum ári. Margir erlendir kvikmyndagerðarmenn leita til RIFF eftir upplýsingum um þjónustu hér á landi, þann- ig að hátíðin er með bæði beinum og óbeinum hætti innspýting inn í þessa ört vaxandi grein.“ Menning fyrir ekkert Þrátt fyrir þetta segir Hrönn að það sé alls ekki sjálfgefið að RIFF lifi. „Eins og fjárhagsstaðan er þá ER hátíðin borin uppi af sjálfboða- liðum og hugsjónastarfi. Yfir 100 manns starfa að RIFF hvert ár og fæstir á launum. RIFF er óháð hátíð og rekin án hagnaðar, nýtur stuðn- ings fjölda fyrirtækja og stofnana, án þeirra væri RIFF ekki til, en grunninn vantar. Hann verður að koma frá opinberum aðilum, eins og var fyrir hrun. Það gildir það sama hér og til dæmis á hinum Norðurlöndunum og á langflestum öðrum kvikmyndahátíðum sem við berum okkar saman við, grunnur- inn að rekstrinum kemur frá opin- berum aðilum. Launin sem starfsmenn RIFF fá eru ekki samkeppnishæf. Ég hef lofað starfsfólki því að það vinni ekki lengur á þessum forsendum. Launin eru stærsti kostnaðarliður- inn, hátíðin í ár var töluvert minni en árin á undan, við fækkuðum um tvo bíósali en hátíð á þessu kalíberi þarf samt ákveðið umfang til þess að ná alþjóðlegri athygli og virðingu. Í sumar sömdum við sérstaklega við erlenda samstarfsaðila okkar svo sem sölu- og dreifingaraðila, sem við höfum verið að byggja upp sam- starf við og traust í mörg ár, um að fá myndir gegn engu eða litlu gjaldi því hátíðin væri í miklum vanda. Það er ekki hægt ár eftir ár að vera á undanþágu. Spurningin á fyrst og fremst að snúast um hvort stjórnvöld hér vilji hafa metnaðarfulla alþjóðlega kvik- myndahátíð og ef svo er þá þarf að greiða fyrir það. Hér virðist stemn- ingin hjá ríkisvaldinu vera að menn- ingin eigi að fást fyrir ekki neitt.“ Minnkandi framlag Hrönn leggur áherslu á að RIFF hafi skilað því margfalt til baka sem hátíðin hefur fengi í opinbera styrki og að hagræn áhrif séu því ótvíræð. „Fyrir tilstuðlan RIFF hafa hér orðið til miklar gjaldeyristekjur og fjöldi framleiðsluverkefna. Eftir hverja hátíð verða til kvikmyndir með þátttöku Íslendinga sem bein- línis skapast vegna RIFF. Tekjur eru einnig af komu ferðamanna á hátíðina, en um 30% okkar gesta eru útlendingar. RIFF snýst um að búa til tengsl og vekja athygli á því sem vel er gert í kvikmyndaframleiðslu hér á landi, við kynnum þjónustu hér á landi, förum í ferðir á töku- staði úti á landi og þannig mætti lengi telja. Vandinn er að forsendurnar frá því að hátíðin var stofnuð eru mjög breyttar. Menningarstarfsemi almennt á undir högg að sækja. Ósk okkar sem að RIFF stöndum er að framlag frá menntamálaráðuneyti og Reykjavíkurborg verði eins og lagt var upp með í þriggja ára sam- komulagi milli ráðuneytis, borgar og RIFF. Árið 2009 var framlagið frá hvorum aðila til RIFF 9 millj- ónir en síðan hefur allt hækkað. Að núvirði ætti þessi upphæð að vera að minnsta kosti um 16 milljónir, sé tekið tillit til gríðarlegra hækkana t.d. á hótelkostnaði. En það er nú eitthvað annað.“ Hrönn bendir á að í ár hljóði fastur samningur við menntamála- ráðuneytið upp á 6 milljónir og að við borgina sé í gildi fastur samn- ingur upp á 5 milljónir árlega. „Ég veit að borgin er að endurskipu- leggja styrkjakerfi sitt og ég tel að þær breytingar séu réttar og eigi eftir að skila sér margfalt til baka. Við höfum sótt um í sérstakan sjóð fyrir stórar hátíðir sem gegna marg- þættu og mikilvægu hlutverki fyrir borgina. Ef RIFF kemst í þann sjóð þá þýðir það öryggi í einhvern tíma en það væri hins vegar ekki nóg. Upphæðin þarf að vera á verðlagi sem samsvarar hækkunum sem orðið hafa og það þarf líka stuðn- ing frá menntamálaráðuneytinu og fleiri opinberum aðilum á borð við Íslandsstofu.“ Við það að gefast upp Hrönn segir að þó svo að það komi til viðbótarframlög og styrkir að utan þá sé í raun orðið ljóst að það sé ómögulegt að reka hátíð af þessari gerð á þessum forsendum. „Þetta er eins og með hvert annað fyrirtæki í rekstri, það þarf að vera hægt að gera áætlanir með góðum fyrirvara. Það þarf stöðugleika og raunhæfar fjárhæðir svo RIFF geti sinnt sínu hlutverki vel. Við höfum að mínu mati gert nánast kraftaverk undanfarin ár, það er frábært hvað starfsfólk hefur staðið sig vel, enda vorum við öll sammála um að gera þetta að flottri hátíð og það tókst, eitt árið enn.“ Þrátt fyrir að þetta hafi gengið í ár þá segir Hrönn að það sé ekki ein- ungis opinbera framlagið sem valdi þeim áhyggjum. „Síðustu ár reynist sífellt erfiðara fyrir menningarvið- burði á borð við RIFF að fá stærstu fyrirtækin til að vera í samstarfi og það endurspeglar stemninguna hjá ríkisvaldinu. Það er eins og menn- ingin skipti ekki svo miklu máli. En hún er þó grundvöllur þjóðfélagsins. Stóra málið er að það er ekki hægt að reka þetta ár eftir ár af hugsjón. Það þarf að vera til staðar sá grunn- ur sem var lagt upp með í byrjun. Að óbreyttu þá er hætta á því að RIFF lognist út af. Það þarf að horfa til þess hversu gríðarlegum tekjum RIFF skilar í raun til ríkisins en við sem rekum hátíðina getum þetta ekki mikið lengur við óbreyttar aðstæður. Hvort hátíðin sem var að ljúka var sú síðasta verður svo að koma í ljós og ráðast af viðbrögðum þeirra sem hafa valdið til þess að gera betur.“ Ekki hægt að reka þetta ár eftir ár af hugsjón hrönn marinósdóttir, framkvæmdastjóri riff, segir aðstandendur langþreytta á skilningsleysi stjórn- valda þrátt fyrir afar jákvæð áhrif hátíðarinnar á kvikmyndagerð og hagkerfið í heild sinni. Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri RIFF, segir að það sé alls ekki sjálfgefið að RIFF lifi við núverandi aðstæður. FRéttablaðIð/anton bRInk börn skemmta sér í sundbíó í kópavogslaug en slíkir viðburðir hafa verið á meðal vinsælla sérviðburða á hátíðinni. FRéttablaðIð/SteFán Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r50 M e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 C -3 C 2 0 1 B 1 C -3 A E 4 1 B 1 C -3 9 A 8 1 B 1 C -3 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.