Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 108
Kosninga-
leiðarvísir
Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða
ein öruggustu dekk sem völ er á
ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum
breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is
MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum og hluti söluágóða
rennur til Krabbameinsfélagsins.
SENDUM UM ALLT LAND
Flutningur með Flytjanda
500 kr. hvert dekk
Bíldshöfða 5a, Reykjavík
Jafnaseli 6, Reykjavík
Dalshrauni 5, Hafnarfirði
(Knarrarvogi 2, Reykjavík
Ath. ekki dekkjaþjónusta)
Aðalnúmer:
515 7190
Opið:
Virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjá MAX1.is
Fáðu 20% afslátt af
NOKIAN dekkjum og styrktu
Bleiku slaufuna um leið
Max1_BleikaSlaufan_3x19_20150914_END.indd 1 19.9.2016 13:34:36
Hér er hann loksins kominn, kosningaleiðar-
vísir Lífsins, fyrir fólk sem byrjar alltaf aftast
í blaðinu og hefur engan áhuga á stjórn-
málum. Það er alltaf verið að hvetja til þess
að allir kjósi og nú er enn auðveldara að upp-
fylla þær óskir með aðstoð Lífsins.
Lífsins
Nú er komið að því – kosningadagur. Þó eru ekki allir með á nótunum hvað kjósa skuli og ekki er þetta endalausa
kvabb í fjölmiðlum um tölur og pró-
sentur og loforð sem standast ekki
neitt að hjálpa mikið. Hjá sumum
blandast öll þessi pólitík saman
og verður að stanslausu suði sem
þagnar ekki fyrr en síðasta atkvæðið
hefur verið talið.
Engar áhyggjur. Við hjá Lífinu
höfum rannsakað málið, tekið allar
prósentur og flóknar pólitískar
afstöður og kastað þeim og birtum
hér auðskiljanlegan kosningaleiðar-
vísi fyrir fólk sem hefur engan áhuga
á stjórnmálum.
Vinstri græn xV
Einkar þægilegur flokkur – í nafni hans kemur strax ýmislegt fram sem hægt er að byggja
á. Greinilega um vinstri flokk að ræða og hann er
grænn – þar er líklega um einhvers konar umhverfis
stefnu að ræða, en við getum þó ekki verið alveg viss.
Vinstri græn lofa því í myndböndum að þau ætli að bjóða
upp á kokteila, mögulega blanda þá fyrir landsmenn. Eins
ætlar flokkurinn að afhausa að minnsta kosti eitt hross í
nafni listarinnar og blóð þess þá líklega notað til að rita
upp stefnu flokksins, en eins og flestir vita er
það að rita í blóð mjög sterkt og kemur skila
boðum á framfæri.
Sjálfstæðisflokkurinn xD
Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið sig vel í að einfalda hlutina fyrir okkur, Bjarni Ben (formaður
flokksins – eins konar yfirmaður í flokknum) bakaði
flotta köku og gengur iðulega með bindi. Blár er litur
flokksins og er það mjög róandi litur en þó með snert af
ákveðinni depurð, gæti vísað til einhvers konar tvíhyggju
innan flokksins en allir sem Lífið spurði neituðu að svara
öllum spurningum um þetta mál.
Eftir að hafa lesið umræðuna á internetinu með mis
miklum áhuga skilst okkur að flokkurinn ætli að bjóða upp
á ódýrar ferðir til Panama. Einnig lofar flokkurinn að Garða
bær verði höfuðborg landsins, líklega yrði þá Alþingi flutt
á Garðatorg, jafnvel Alþingishúsið í heild sinni. Sjálfstæðis
flokkurinn, eða Sjallaflokkurinn eins og okkur sýnist unga
fólkið kalla hann, hefur það líka á sinni stefnuskrá að fella
niður tolla á jakkaföt og róttæki armur flokksins vill ganga
svo langt að gera aðsniðin jakkaföt að þjóðbúningi Íslands.
Samfylkingin xS
Samfylkingin er ákaflega vinalegur og jákvæður flokkur sem vill gefa öllum tækifæri og í versta falli
er fólk bara „fínt þegar maður er einn með þeim“ í Sam
fylkingunni. Sé flokkurinn litgreindur kemur þó mögulega
dekkri mynd í ljós en rauður er hans einkennislitur – litur
REIÐINNAR.
Samfylkingin hefur lofað því að ef flokkurinn verði
kosinn munu þingmenn hans gefa sér góðan tíma í að taka
rúnt á bæði Twitter og Facebook og hrósa fólki þar. Einnig
hefur Samfylkingin lofað því að klappa hundum og köttum
á ferðum sínum um bæinn.
Viðreisn xC
Í Viðreisn er fólk úr Sjálfstæðisflokknum sem býr ekki í Garðabæ og finnst Ísbúð Vesturbæjar gera besta ísinn
skilst okkur. Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði líka að fara í
staffaferð til Cancun en allir sem fóru svo síðar í Viðreisn
vildu frekar fara til Bene (Benidorm, sko).
Viðreisn er alltaf að kasta pílu í mynd af Bjarna Ben og
lofa að „roasta“ hann á Café Rosenberg eins og var gert við
Hugleik. Þau vilja líka að Benidorm sé gerður að opinberum
sumarleyfisstað á Íslandi.
Píratar xP
Píratar eru ekki sjóræningjar, enda eru sjórán ekki stunduð við strendur Íslands. Allir í Pírötum eru góðir
á tölvur og hafa kannski, eða kannski ekki, sótt að minnsta
kosti einn torrent af Deildu. Fjólublár er litur flokksins sem
við áttum okkur ekki á hérna á greiningardeild Lífsins en
mögulega er það vísun í Prince sem lést á árinu (RIP).
Annars berst flokkurinn fyrir því að kvikmyndin Hackers
verði tekin mjög alvarlega og að það verði sett í stjórnar
skrána að fyrsta Matrixmyndin sé sú eina góða í seríunni.
Píratar vilja einnig breyta sjálfri stjórnarskránni í PDFskjal
sem sé öllum aðgengilegt á stjornarskra.is.
Framsókn xB
Framsóknarflokkurinn kemur úr sveitinni, nánar tiltekið Skagafirði, og elskar lambakjöt, mjólk beint af spena og
ferskan flór á fögru túni. Fyrrverandi formaður flokksins
er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, en hann barðist hat
rammlega fyrir aðskilnaði hægri og vinstri hluta skópars á
fæti og flokkurinn ákvað í framhaldinu að gera Sigurð Inga
Jóhannsson að formanni. Sigurður hefur síðan átt greiða
leið hingað í Lífið, aðallega vegna þess að við erum mjög
upptekin af þumalhringnum hans og geggjuðum klút sem
hann var einu sinni með um hálsinn.
Annars er stefna flokksins sáraeinföld: ókeypis áburðar
sekkur handa öllum fjölskyldum í landinu, perukökur
eru bestu kökurnar og öll börn send í sveit. Síðan verður
opinber megrunarkúr flokksins, Íslenski kúrinn, nýtt við
mið fyrir næringarráðgjöf á Íslandi og prentuð verða plaköt
svipuð og næringarpýramídaplakötin sem allir muna eftir
og hengd upp í grunnskólum landsins.
Björt framtíð xA
Í Bjartri framtíð er mikið af geggjað nettu fólki sem fór samt af einhverri ástæðu í pólitík. Aðal gaurinn hjá þeim
er í hljómsveit en það hefur alltaf verið mjög töff en á
sama tíma eru stjórnmál ekki töff, við svitnum.
Björt framtíð hefur lagt mikla áherslu á að breyta klukk
unni þannig að allir geti sofið út á morgnana. Flokkurinn
hefur heimtað að hver föstudagur sé „freaky Friday“, að
minnsta kosti á Alþingi og seinna meir má skoða það að
færa út kvíarnar og hafa fleiri daga vikunnar „freaky“. Síðan
hefur Björt framtíð stungið upp á því, óþolandi oft segja
sumir, að lagið Skítapakk með hljómsveitinni Dr. Spock
verði nýr þjóðsöngur Íslands.
Kata Jak
Kata er
geggjað
fín og býr
í Vestur
bænum en á
þó ekki hjól
Bjarni Ben
Bjarni Ben er
áhugagarð
yrkjumaður
sem fékk
stjórnmála
kunnáttuna í
vöggugjöf
Oddný
Harðar
Hefur aldrei
fengið sér
pulsu en hún
sleppir alltaf
remúlaðinu
skilst okkur
Benni Jó
Benni vann
einu sinni
sem BT
músin
Smári
McCarthy
Smára finnst
rosa gaman
að reikna
og skjóta en
heldur því
leyndu
Sigurður
Ingi
Sigurður
hrIngi (haha)
talar hátt og
er alltaf með
viskípela í
brjóstvas
anum
Óttarr
Proppé
Óttarr er oft í
glimmergalla
öskrandi í
hljóðnema,
það þarf
ekkert snúa
út úr því
2 9 . O K t Ó B E r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r64 L Í F I ð ∙ F r É t t A B L A ð I ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
C
-4
6
0
0
1
B
1
C
-4
4
C
4
1
B
1
C
-4
3
8
8
1
B
1
C
-4
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K