Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 2
Veður
Gengur í austan hvassviðri eða storm
sunnan- og suðvestanlands með tals-
verðri rigningu, en dregur úr vindi eftir
hádegi. Síðdegis bætir í vindinn norðan-
og austantil með slyddu eða rigningu.
Hlýnar eftir því sem líður á daginn.
sjá síðu 48
Myndir með forseta og rektor
Dublin
Flug og hótel | 3. nóv. | 3 nætur
Frábært verð frá: 49.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi með morgunverði
á O´Callaghan Mont Clare.
Verð án Vildarpunkta: 59.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
samfélag „Neyðarsendirinn fer í
gang um leið og hann snertir sjóinn.
Við fundum hann þrátt fyrir hafrótið
því merkið sem kemur frá sendinum
er mjög nákvæmt,“ segir Sigurður
Ásgeirsson, þyrluflugstjóri hjá Land-
helgisgæslunni, en áhöfn hans fór að
Selatanga, rétt hjá Grindavík, til að
sækja neyðarsendi sem þar var í gangi.
Áhöfnin sá brátt ljóstýru frá neyð-
arsendinum og seig Teitur Gunn-
arsson sigmaður niður eftir honum.
Komið hefur í ljós að sendirinn var af
erlendri skútu, Red Heol, sem ætlaði
að koma til Asoreyja 16. júlí í sumar.
Einn maður var um borð en líklega
varð hann bráðkvaddur um borð og
hefur skútuna rekið um hafið. Líkið
af manninum fannst svo daginn eftir.
„Neyðarsendirinn gefur út ótrúlega
nákvæmt merki og hver sé skráður
eigandi. Við fljúgum þannig lagað
séð beint á hann og notumst við sér-
stakar miðunargræjur til að sjá hann
nákvæmlega. Tilkynningin kom um
fimm leytið um nóttina og við notuð-
umst við nætursjónauka. Neyðar-
sendirinn er með litlu ljósi sem næt-
ursjónaukinn magnar mjög mikið
upp. Þannig lagað séð var þetta lítið
mál,“ segir Sigurður hógvær. Skútan
hafði brotnað í spón þegar hana rak
upp á klettana og dreifðist hún víða
um fjörurnar.
„Við vildum ekki að sendirinn væri
í gangi því hann gæti truflað önnur
merki þannig það þurfti að sækja
hann og slökkva á honum.“
Neyðarsendirinn er ekki miklu
stærri en epli að sögn Sigurðar og
hægt er að fá enn minni sendi sem
gæti nýst fólki í vanda. „Það er hægt
að fá svona neyðarsenda fyrir fólk og
þetta er mjög sniðug græja eins og til
dæmis fyrir rjúpnaskyttur. Þetta spar-
ar tíma við leit því staðsetningin sem
hann sendir er svo nákvæm. Ef fólk
er að verða úti eða drukkna eða hvað
sem er þá þarf ekki að leita lengi og
gætu þeir bjargað mannslífum. Þeir
eru með litlu ljósi og við sjáum ljós
langt frá.“
Náðu neyðarsendinum
úr brimhvítu hafrótinu
Neyðarsendir frá franskri skútu var sóttur í kolniðamyrkri og mikilli öldu. Send-
irinn er ekki miklu stærri en epli. Hann gaf frá sér ljós sem þyrluáhöfn Land-
helgisgæslunnar kom auga á og var sigmaður sendur að sækja hann.
Áhöfnin
Sigurður Ásgeirsson flugstjóri
Jóhannes Jóhannesson flugmaður
Teitur Gunnarsson sigmaður
Jón Tómas Vilhjálmsson spil-
maður
Jón Örvar Kristjánsson læknir
Ferðalag Red Helol
7. júlí Skútan fer frá portúgölsku
borginni Porto í vikusiglingu til
Asoreyja.
11. júlí Leit hefst.
18. ágúst Leit hætt og skútan talin
af.
28. ágúst Flutningaskip sér
skútuna um eitt þúsund mílur
suðsuðvestur af Reykjanesi.
26. október Neyðarsendirinn
sendir merki.
27. október Líkamsleifar skipstjór-
ans, Josephs Le Goff, finnast.
Tilkynningin kom
um fimm leytið um
nóttina og við notuðumst
við nætursjónauka. Neyðar-
sendirinn er með litlu ljósi
sem nætursjónaukinn
magnar mjög mikið upp.
Þannig lagað séð
var þetta lítið
mál.
Sigurður Ásgeirs-
son, þyrluflugstjóri
hjá Landhelgis-
gæslunni
Aðstæður við Selatanga voru erfiðar. Mynd/ÚR einkASAFni
Morgunblaðið birti á heilsíðu
auglýsingu erlenda þrýstihóps-
ins Iceland Watch í gær. Sama
auglýsing var einnig birt á fimmtudag.
Í auglýsingunni er flennistór mynd
af Má Guðmundssyni seðlabanka-
stjóra og spurt er hver greiði fyrir opin-
bera spillingu og mismununarreglur á
Íslandi. Í samtali við fréttastofu segir
Már að auglýsingin hafi ekki raskað ró
sinni því hann sé ýmsu vanur.
Staðhæfing um háttsettan starfs-
mann Seðlabankans hefur vakið
athygli en í auglýsingunni segir: „Við
höfum nú komist að því að verið er að
rannsaka innanhúss Sturlu Pálsson,
háttsettan aðila í Seðlabanka Íslands,
fyrir meintar innherjaupplýsingar.“
Már segir þetta ekki eiga við nein rök
að styðjast.
„Þeir eru hér með þessari aug-
lýsingu að henda stríðshanska inn
í íslenska kosningabaráttu,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis-
ráðherra. – þea, þþ
Már gagnrýnir
Iceland Watch
Leiðtogar þeirra flokka sem
bjóða fram til Alþingis mætt-
ust í umræðuþætti á RÚV í gær.
Leiðtogar flokka sem mælast inni á
þingi mættust í fyrri hluta þáttar en
aðrir í seinni hlutanum.
Til skörpustu deilnanna kom þegar
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðis-
flokki, spurður um hvaða möguleika
flokkurinn ætti þegar kæmi að stjórn-
arsamstarfi eftir kosningar.
Bjarni sagði samstarf við Pírata
ólíklegast. „Mér finnst þetta varla vera
stjórnmálaflokkur, meira hreyfing
sem hefur hrist upp í hlutunum.“ Þá
vék myndavél RÚV að Birgittu sem
hélt á lofti fjólubláum miða sem á
stóð „#Panama“.
Bjarni hélt áfram og sagði: „Mér
finnst flokkurinn hvorki tilbúinn með
alvöru stefnumál né hafi komið þann-
ig fram og hegðað sér þannig að hann
sé tilbúinn að taka ábyrgð.“
Birgitta skaut inn í stuttu síðar og
svaraði: „Hvaða vitleysa er þetta?“
Stuttu síðar vék umræðunni að
fjármögnun stefnumála framboða,
en öll framboð eiga það sameiginlegt
að vilja innviðauppbyggingu í land-
inu. „Það er ekkert eins hættulegt og
stjórnmálamaður í kosningaham,“
sagði Benedikt Jóhannesson, Við-
reisn, og vísaði til þess að Viðreisn vilji
ekki lofa öllu fögru gegn atkvæðum
heldur treysta á varanlegar lausnir,
til að mynda með því að festa gengi
krónu við erlendan gjaldmiðil. – þea
Segir Pírata
varla stjórn-
málaflokk
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Nemendum Menntaskólans í Reykjavík stóð til boða að fá mynd af sér með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, og Yngva Péturssyni rektor
gegn því að styrkja Einstök börn, stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða skerðingar. Myndatakan var liður í árlegri góð-
gerðaviku Framtíðarinnar, annars nemendafélaga skólans. FRéttABlAðið/eyþóR
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-2
3
7
0
1
B
1
C
-2
2
3
4
1
B
1
C
-2
0
F
8
1
B
1
C
-1
F
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K