Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 8
✿ Kosningavökur stjórnmálaflokkanna í kvöld
Kosningavökurnar hefjast flestar á milli átta og níu í kvöld2016
l Björt framtíð xA
l Framsókn xB
l Viðreisn xC
l Sjálfstæðisfl. xD
l Íslenski þjóðfl. xE
l Flokkur fólksins xF
l Húmanistar xH
l Píratar xP
l Alþýðufylkingin xR
l Samfylkingin xS
l Dögun xT
l Vinstri græn xV
Píratar
Bryggjan Brugghús Grandagarði 8
VG
Laugavegi 170.
Alþýðufylking
MÍR salurinn, Hverfisgötu 105
Íslenska þjóðfylkingin
Bar 7, Frakkastíg 7
Dögun
Boston, Laugavegi 28b
Húmanistar
Kaffi Haítí Geirsgötu 7b
Samfylkingin
Bergsson Grandagarði
Framsókn
Hverfisgötu 33
Björt framtíð
Björtuloftum Hörpu
Sjálfstæðisflokkurinn
Grand Hótel Reykjavik
Viðreisn
Nauthóli
Flokkur fólksins
Faxafeni 5
28. - 30. OKTÓBER
TAX FREE AF ÖLLU
NEMA FÓÐRI
TAX FREE AF ÖLLUM VÖRUM
NEMA EVERYDAY LOW PRICE
OG ÁÐURLÆKKUÐUM VÖRUM
25% AF ÖLLUM VÖRUM SEM EKKI
ERU ÞEGAR Á TILBOÐI EÐA
LÆKKUÐU VERÐI.
Það er af nægu að taka fyrir skemmt-
anaglaða kjósendur í kvöld og fram
á nótt. Flokkarnir bjóða allir upp á
kosningavökur og leggja allt í söl-
urnar til að halda sínum kjósendum
ánægðum á þessari uppskeruhátíð
eftir kosningarnar. Fylgi flokkanna
í könnunum síðustu daga bendir þó
til þess að ekki muni allir geta fagnað
og líklegt að botninn detti snemma úr
hjá nokkrum þessara flokka.
Fari svo að Samfylkingin komi jafn
illa eða verr út í kosningum en hún
hefur verið að mælast og detti jafnvel
af þingi er hægur leikur fyrir stuðn-
ingsmenn flokksins að skjótast yfir
í kosningavöku Pírata sem er aðeins
þremur húsum frá, í stóru húsnæði
Bryggjunnar við Grandagarð. Píratar
hafa verið að mælast vel í könnunum
allt síðasta ár og eru líklegir til að
geta lýst sig sigurvegara kvöldsins, að
minnsta kosti í einhverjum skilningi.
Það má bóka að hjá Pírötum verða
líka flestir nýir þingmenn, blautir á
bak við eyrun, og kjörið tækifæri fyrir
kjósendur til að spyrja þá spjörunum
úr á mest taugatrekkjandi kvöldi
ársins.
Samfylkingarfólk er þó bjartsýnt
á kvöldið. „Það verður auðvitað
rífandi stemning, lifandi tónlist og
plötusnúður fram eftir kvöldi. Allir
velkomnir,“ segir Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir, kosningastjóri Sam-
fylkingarinnar.
Allar kosningavökur flokkanna
eru í miðbænum ef frá eru taldar
vökur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks
og Flokks fólksins. Fréttablaðið reikn-
aði út að tæpa klukkustund tæki að
ganga á milli allra kosningavakanna,
allt frá Samfylkingu við Grandagarð
að Sjálfstæðisflokki á Grand Hóteli.
Það borgar sig að taka leigubíl eða
láta skutla sér á kosningavökur Við-
reisnar og Flokks fólksins.
Kosningastjóri Viðreisnar, Stefanía
Sigurðardóttir, hefur engar áhyggjur
af fjarlægðinni frá miðbænum. „Það
verður bara partí. Ég stefni á að
dansa af mér skóna. Það hefur verið
það mikil gleði í framboðinu að við
verðum að halda því áfram.“
Flestar kosningavökurnar hefjast
upp úr klukkan níu en kjörstöðum
verður lokað klukkan tíu og búast
má við fyrstu tölum tiltölulega fljót-
lega upp úr því, á ellefta tímanum.
Tölurnar verða kynntar í beinni
útsendingu á Stöð 2.
snaeros@frettabladid.is
Leið flokkaflakkarans
um kosningarvökur
Flestar kosningavökur næturinnar fara fram í miðbænum og eru öllum opnar.
Víða er boðið upp á drykki og skemmtiatriði á meðan beðið er eftir tölum.
Mikilvægt að fylgjast með gangi mála til að finna út hvar mesta stuðið verður.
Snærós Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Kosningar
2016
Það verður auðvitað
rífandi stemning,
lifandi tónlist og plötusnúð-
ur fram eftir
kvöldi. Allir
velkomnir.
Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir,
kosningastjóri Sam-
fylkingarinnar
2 9 . o K t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-5
E
B
0
1
B
1
C
-5
D
7
4
1
B
1
C
-5
C
3
8
1
B
1
C
-5
A
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K