Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 8

Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 8
✿ Kosningavökur stjórnmálaflokkanna í kvöld Kosningavökurnar hefjast flestar á milli átta og níu í kvöld2016 l Björt framtíð xA l Framsókn xB l Viðreisn xC l Sjálfstæðisfl. xD l Íslenski þjóðfl. xE l Flokkur fólksins xF l Húmanistar xH l Píratar xP l Alþýðufylkingin xR l Samfylkingin xS l Dögun xT l Vinstri græn xV Píratar Bryggjan Brugghús Grandagarði 8 VG Laugavegi 170. Alþýðufylking MÍR salurinn, Hverfisgötu 105 Íslenska þjóðfylkingin Bar 7, Frakkastíg 7 Dögun Boston, Laugavegi 28b Húmanistar Kaffi Haítí Geirsgötu 7b Samfylkingin Bergsson Grandagarði Framsókn Hverfisgötu 33 Björt framtíð Björtuloftum Hörpu Sjálfstæðisflokkurinn Grand Hótel Reykjavik Viðreisn Nauthóli Flokkur fólksins Faxafeni 5 28. - 30. OKTÓBER TAX FREE AF ÖLLU NEMA FÓÐRI TAX FREE AF ÖLLUM VÖRUM NEMA EVERYDAY LOW PRICE OG ÁÐURLÆKKUÐUM VÖRUM 25% AF ÖLLUM VÖRUM SEM EKKI ERU ÞEGAR Á TILBOÐI EÐA LÆKKUÐU VERÐI. Það er af nægu að taka fyrir skemmt- anaglaða kjósendur í kvöld og fram á nótt. Flokkarnir bjóða allir upp á kosningavökur og leggja allt í söl- urnar til að halda sínum kjósendum ánægðum á þessari uppskeruhátíð eftir kosningarnar. Fylgi flokkanna í könnunum síðustu daga bendir þó til þess að ekki muni allir geta fagnað og líklegt að botninn detti snemma úr hjá nokkrum þessara flokka. Fari svo að Samfylkingin komi jafn illa eða verr út í kosningum en hún hefur verið að mælast og detti jafnvel af þingi er hægur leikur fyrir stuðn- ingsmenn flokksins að skjótast yfir í kosningavöku Pírata sem er aðeins þremur húsum frá, í stóru húsnæði Bryggjunnar við Grandagarð. Píratar hafa verið að mælast vel í könnunum allt síðasta ár og eru líklegir til að geta lýst sig sigurvegara kvöldsins, að minnsta kosti í einhverjum skilningi. Það má bóka að hjá Pírötum verða líka flestir nýir þingmenn, blautir á bak við eyrun, og kjörið tækifæri fyrir kjósendur til að spyrja þá spjörunum úr á mest taugatrekkjandi kvöldi ársins. Samfylkingarfólk er þó bjartsýnt á kvöldið. „Það verður auðvitað rífandi stemning, lifandi tónlist og plötusnúður fram eftir kvöldi. Allir velkomnir,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, kosningastjóri Sam- fylkingarinnar. Allar kosningavökur flokkanna eru í miðbænum ef frá eru taldar vökur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins. Fréttablaðið reikn- aði út að tæpa klukkustund tæki að ganga á milli allra kosningavakanna, allt frá Samfylkingu við Grandagarð að Sjálfstæðisflokki á Grand Hóteli. Það borgar sig að taka leigubíl eða láta skutla sér á kosningavökur Við- reisnar og Flokks fólksins. Kosningastjóri Viðreisnar, Stefanía Sigurðardóttir, hefur engar áhyggjur af fjarlægðinni frá miðbænum. „Það verður bara partí. Ég stefni á að dansa af mér skóna. Það hefur verið það mikil gleði í framboðinu að við verðum að halda því áfram.“ Flestar kosningavökurnar hefjast upp úr klukkan níu en kjörstöðum verður  lokað klukkan tíu og búast má við fyrstu tölum tiltölulega fljót- lega upp úr því, á ellefta tímanum. Tölurnar verða kynntar í beinni útsendingu á Stöð 2. snaeros@frettabladid.is Leið flokkaflakkarans um kosningarvökur Flestar kosningavökur næturinnar fara fram í miðbænum og eru öllum opnar. Víða er boðið upp á drykki og skemmtiatriði á meðan beðið er eftir tölum. Mikilvægt að fylgjast með gangi mála til að finna út hvar mesta stuðið verður. Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is Kosningar 2016 Það verður auðvitað rífandi stemning, lifandi tónlist og plötusnúð- ur fram eftir kvöldi. Allir velkomnir. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, kosningastjóri Sam- fylkingarinnar 2 9 . o K t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -5 E B 0 1 B 1 C -5 D 7 4 1 B 1 C -5 C 3 8 1 B 1 C -5 A F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.