Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 76
„Ég kláraði byggingartæknifræði
frá HR og fór í framhaldi af því
í meistaranám í byggingarverk-
fræði í HR með sérsvið í fram-
kvæmdastjórnun,“ segir Sandra
Dís sem vann meðfram skóla hjá
verktakafyrirtæki en hefur unnið
hjá VSÓ Ráðgjöf frá árinu 2012 og
líkar mjög vel. „VSÓ Ráðgjöf er
rótgróin verkfræðistofa enda var
hún stofnuð árið 1958 og er hún
alhliða verkfræði- og ráðgjafar-
fyrirtæki.
Skemmtileg verkefni
Sandra starfar á verkefnastjórn-
unarsviði hjá VSÓ Ráðgjöf og sinn-
ir þar mjög fjölbreyttum verkefn-
um. „Öll verkefnin eru áhuga-
verð á sinn hátt. Meðal þess sem
er skemmtilegt er að maður getur
upplifað ólík stig í verkferlinu,
allt frá hönnunarferli og yfir í að
sjá mannvirki rísa og vera tekin í
notkun.“
Sjálf segist Sandra hingað til
hafa unnið meira á framkvæmda-
endanum en hafi undanfarið færst
meira yfir í hönnunarferlið sem
henni þykir góð áskorun. Hún
nefnir nokkur af þeim verkefnum
sem hún hefur unnið að undan-
farið.
„Ég sinni til dæmis verkeftirliti
vegna tengivirkis HS Veitna í Vest-
mannaeyjum. Það þýðir að ég flýg
þangað einu sinni í viku og sinni
framkvæmdaeftirliti, það er að
segja bæði framvindueftirliti og
gæðaeftirliti. Ég held verkfundi
um stöðu verksins og fer síðan í
úttektir. Þá passa ég að allt komi
heim og saman við teikningar og
verklýsingar. Reglulega koma svo
upp vandamál sem þarf að leysa úr.
Sandra er einnig í verkefna-
stjórnun fyrir nýja Landspítalann
við Hringbraut. „Við erum hluti af
CORPUS hópnum sem sér um að
hanna meðferðarkjarnann. Þetta
er rosalega stórt og flott verkefni
en að sama skapi flókið.“
Af öðrum verkefnum Söndru
má nefna nýjan skóla í Mosfellsbæ
sem er enn á hönnunarstigi, ýmis
þróunarverkefni og útboð fyrir
Strætó í Reykjanesbæ. „Þessi fjöl-
breytileiki er það sem gerir starf
mitt mjög skemmtilegt.“
Góður andi á VSÓ
Sandra segir mjög gott að vinna
hjá VSÓ. „Þetta er mjög fjölskyldu-
vænn vinnustaður og mikið lagt
upp úr fjölskyldugildum og því
að starfsfólki líði vel. Það er mjög
gott þegar maður á tveggja ára
barn,“ segir hún glaðlega.
Hún segir starfsandann einnig
mjög góðan. „Samstarfsfólk mitt
er fjölbreytt og stjórnendur vinna
meðvitað að því að jafna kynja-
hlutfall og hafa sem mestan fjöl-
breytileika í aldri,“ segir Sandra
og telur að þetta skili sér vel enda
sé lítil hreyfing á fólki af því að
langflestum líði vel í sínu starfi.
Fjölbreytt og spennandi starf
Sandra Dís Dagbjartsdóttir byggingarverkfræðingur starfar á verkefnastjórnunarsviði VSÓ Ráðgjafar. Hún segir fjölbreytileikann það
besta við starf sitt en Sandra vinnur að mörgum ólíkum verkefnum, meðal annars nýja Landspítalanum og tengivirki í Vestmannaeyjum.
„Það hafa ekki áður verið gerðar
langtímaáætlanir varðandi upp-
byggingu innviða í ferðaþjónust-
unni með áherslu á verndun nátt-
úru og á menningarsögulegar
minjar,“ segir Örn Þór Halldórs-
son, arkitekt og verkefnastjóri hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
en hann verður meðal fyrirlesara á
málþingi um ferðamannastaði sem
Arkitektafélag Íslands og Félag ís-
lenskra landslagsarkitekta standa
fyrir þann 10. nóvember.
Örn fjallar um landsáætlun um
uppbyggingu innviða fyrir ferða-
menn og segir að tala megi um
hrun í náttúruvernd á Íslandi vegna
ágangs.
„Ég mun tala um tækifæri fyrir
arkitekta, landslagarkitekta og
hönnuði til þess að taka þátt í að
móta uppbyggingarverkefni þar
sem virkilega þarf að vanda sig
gagnvart náttúrunni og hugsa til
framtíðar. Við erum ekki komin
enn á þann stað að hreinlega geta
það því það er ákveðið hrun í nátt-
úruvernd á Íslandi vegna ágangs.
Það má segja að við við séum í
sömu stöðu gagnvart náttúrunni
núna og Íslendingar voru fyrst
eftir fjármálahrunið, við erum
að slökkva elda,“ segir Örn. „Það
hefur orðið gífurleg sprenging í
fjölda ferðamanna hingað til lands,
svo mikil að þeir litlu innviðir sem
þó voru til staðar hafa sprungið.“
Örn segir að skilgreina þurfi
betur einstök ferðamannasvæði
og ferðamannaleiðir. Sveitarfélög
og stofnanir þurfi að bretta upp
ermar. Horfa megi til þjóðgarða,
friðlanda og jarðvanga þegar
kemur að útfærslum verkefna.
„Við fáum mjög vel undirbú-
in verkefni þar sem eru þjóðgarð-
ar, friðlönd og jarðvangar. Við vilj-
um því hvetja til þess að stofnað sé
til fleiri svona heilda. Þó kaos geti
verið sjarmerandi verður miklu
meiri fagmennska þegar svæði
eru skilgreind. Það eru nokkur stór
verkefni að fara í gang eins og við
Geysi, Gullfoss og í Landmanna-
laugum. Á málþinginu ætla ég að
fabúlera um tækifæri fyrir arki-
tekta og skipulagsfræðinga til að
koma inn í slík verkefni á ákveðn-
um tímapunkti. Það er hægt að
gera marga staði sem ekki láta
mikið yfir sér í dag stórkostlega,
en það er líka hægt að eyðileggja
þá með ofhönnun eða prjáli,“ segir
Örn og vill meina að nú sé lag að
efla staðbundinn arkitektúr.
„Við erum að flytja inn þekk-
ingu, eðlilega, og arkitektar sækja
innblástur í erlend blöð og Pint-
erest en það á ekki alltaf við. Það
er ekki hægt að notast við ítalska
flísabæklinga hér þar sem veður-
aðstæður eru sérstakar. Mér finnst
persónulega mjög spennandi að það
er kominn nýr notendahópur, ferða-
menn, sem sækir í upplifun og er
ekki ginnkeyptur fyrir til dæmis
húsnæði sem er endurgerð af ein-
hverju sem þeir upplifa hvort sem
er í sínu heimalandi. Ég er ekki að
segja að menn eigi að vera eins og
Guðjón Samúelsson en þarna fel-
ast tækifæri til þess að rækta stað-
bundinn arkitektúr. Ferðamenn
vilja sjá eitthvað „ekta“.
Málþingið fer fram í sal Íslenskrar
erfðagreiningar, Sturlugötu 8, þann
10. nóvember.
Öll verkefnin eru
áhugaverð á sinn hátt.
Meðal þess sem er
skemmtilegt er að
maður getur upplifað
ólík stig í verkferlinu, allt
frá hönnunarferli og yfir
í að sjá mannvirki rísa og
vera tekin í notkun.
Sandra Dís Dagbjartsdóttir
Sandra Dís Dagbjartsdóttir byggingarverkfræðingur starfar við mörg ólík en skemmtileg verkefni hjá VSÓ Ráðgjöf. MynD/GVA
Örn Þór Halldórsson, arkitekt og verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra sveitar-
félaga, fjallar um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn á mál-
þinginu þann 10. nóvember. MynD/GVA
Tækifæri í hönnun ferðamannastaða
Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta standa fyrir málþingi um ferðamannastaði 10. nóvember. Örn Þór Halldórsson,
arkitekt og verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fjallar um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn.
Ég er ekki að segja
að menn eigi að vera
eins og Guðjón Samúels-
son en þarna felast
tækifæri til þess að
rækta staðbundinn
arkitektúr. Örn Þór Halldórsson
www.vso.is
VSÓ er að leita að góðu fólki til starfa. Erum við kannski að leita að þér?
Fleira gott fólk
VeRkFRæði oG ARkiTekTúR kynningarblað
29. október 20166
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
C
-9
5
0
0
1
B
1
C
-9
3
C
4
1
B
1
C
-9
2
8
8
1
B
1
C
-9
1
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K