Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 6
Haldið upp á Diwali
Á síðustu sjö dögum hafa Íslend-
ingar sem eru að fletta upp stjórn-
málaflokkum með leitarvél Google
oftast leitað að Pírötum.
Samkvæmt nýjum tölum frá
Google leituðu 33 prósent þeirra
sem voru að fletta upp stjórnmála-
flokkum að Pírötum. Næstflestir,
eða 25 prósent, flettu upp Bjartri
framtíð. Þriðji vinsælasti leitar-
kosturinn var Sjálfstæðisflokkur-
inn, sem 19 prósent flettu upp, en
13 prósent leituðu að leitarorðinu
Samfylkingin.
Þegar kemur að frösum tengdum
kosningunum er vinsælasti leitar-
frasinn „hvern á ég að kjósa?“ Í
öðru sæti er það svo „hvernig virka
alþingiskosningar?“ og í því þriðja „í
hvaða kjördæmi er ég?“ Íslendingar
vilja einnig vita hvar kjörstaðir eru
í Reykjavík og klukkan hvað þeir
verða opnaðir. saeunn@frettabladid.is
Oftast spurt hvern eigi að kjósa
Ef marka má niðurstöður leitarvélar Google hafa Íslendingar margir hverjir áhuga á að kynna sér Pírata og
Bjarta framtíð betur. Í síðastliðinni viku leituðu flestir kjósendur að spurningunni Hvern ætti ég að kjósa?
Aðrir
10%
33%
25%
19%
13%
Heimild: Google Trends
Stjórnmálaflokkar
sem leitað er að
Algengustu
kosningaspurningar
1. Hvern ætti ég að kjósa?
2. Hvernig virka
alþingiskosningar?
3. Í hvaða kjördæmi er ég?
4. Hvar get ég kosið
í Reykjavík?
5. Hvenær opna kjörstaðir?
Tökum einnig að okkur
Gámaflutninga
Sendibílaþjónustu
Vörudreifingu
Vélaflutninga
Vöruflutninga
DAGLEGAR VÖRUFERÐIR
Brottför virka daga
Frá Flúðum kl. 8:00
Frá Reykjavík kl. 12:00
Vörum keyrt heim að
dyrum á Suðurlandi
fraktlausnir.is / fraktlausnir@fraktlausnir.is
Á milli Flúða, uppsveita Árnessýslu
og Reykjavíkur
Flúðir - Uppsveitir Árnessýslu - Reykjavík BAndAríkin Alríkislögregla Banda-
ríkjanna (FBI) hefur á ný tekið upp
rannsókn á notkun Hillary Clinton,
forsetaframbjóðanda Demókrata,
á einkatölvupóstþjóni meðan hún
gegndi embætti utanríkisráðherra.
Í júlí var tilkynnt um lok rannsókn-
arinnar og mælti FBI þá ekki með
ákæru, en fram hefur komið að gögn
er varða þjóðaröryggi hafi farið um
póstþjóninn.
Hefð er fyrir því að ráðherrar
styðjist við opinbera póstþjóna sem
eru öruggari fyrir netárásum. Þá
eyddi starfslið Clinton 33 þúsund
tölvupóstum áður en póstþjóninum
var skilað til FBI fyrir fyrri rannsókn.
Clinton hefur sagt þá óvinnutengda
en FBI hefur sagt að á meðal endur-
heimtra tölvupósta hafi allnokkrir
verið vinnutengdir.
„Í fyrri vitnisburði mínum fyrir
nefndum þingsins sagði ég að
FBI hefði lokið rannsókn sinni á
póstþjóni Hillary Clinton, fyrrver-
andi utanríkisráðherra. Vegna nýrra
vendinga skrifa ég þetta bréf til að
breyta þeim vitnisburði,“ segir í bréfi
sem James Comey alríkislögreglu-
stjóri sendi á formenn þingnefnda
sem fjölluðu um mál Clinton.
Comey segir í bréfinu að fleiri
tölvupóstar hafi nú verið endur-
heimtir af póstþjóni Clinton við
vinnu á ótengdu máli. Þeir komi
málinu við og því verði þeir tölvu-
póstar rannsakaðir. Hann segir ekki
víst hversu langan tíma hin nýja rann-
sókn muni taka en tíu dagar eru til
forsetakosninga.
Donald Trump,
forsetaframbjóð-
andi Repúblikana, tjáði sig um fregn-
irnar á kosningafundi í New Hamp-
shire í gær. „Ég er mjög stoltur af FBI
fyrir að taka þetta skref í áttina að því
að leiðrétta hryllileg mistök sín,“ sagði
Trump sem hefur gagnrýnt FBI fyrir
að „sleppa“ Clinton. Þá sagði hann
kosningastjóra sinn hafa grínast með
það að nú gæti hann hætt við kosn-
ingafundinn, málið væri svo stórt að
kosningabaráttan væri á enda. – þea
FBI rannsakar tölvupósta Clinton á ný
Hillary Clinton,
forsetafram-
bjóðandi
Demó-
krata.
Í tengslum við
annað mál upp-
götvaði FBI nýja tölvupósta
sem tengjast rannsókninni.
James Comey alríkis-
lögreglustjóri
umhverfiSmál Eigendur Akrakots á
Álftanesi mótmæla fyllingu skurðar á
mörkum jarðarinnar. Sú framkvæmd
er hluti af endurheimt votlendis
Kasthúsatjarnar að því er segir í bréfi
landeigendanna til Garðabæjar.
„Samkvæmt uppdrætti Land-
græðslunnar á að fylla alla skurði í
landi bæjarfélagsins, sem tilheyrðu
Landakoti. Einnig er fyrirhuguð fyll-
ing í landamerkjaskurð Landakots og
Akrakots,“ segir í bréfi landeigend-
anna. „Það kom landeigendum Akra-
kots í opna skjöldu þegar í ljós kom
að votlendisvinna og undirbúningur
hafi farið fram með þeim hætti að
land okkar kæmi þar ekki inn. Við
eigum stóran hlut í tjörninni. Við
mótmælum framkvæmdum á landa-
merkjaskurði og óskum eindregið
eftir því að við okkur verði rætt,“
skrifa Akrakotsmenn. – gar
Vilja ekki að
skurður sé fylltur
verSlun Mikil veltuaukning var
í smásöluverslun í september-
mánuði, samkvæmt samantekt
Rannsóknaseturs verslunarinnar
(RV). Þetta er til marks um greini-
lega kaupmáttaraukningu frá sama
mánuði í fyrra, segir í frétt RV.
Í sumum vöruflokkum jókst
veltan um fjórðung frá því í fyrra,
má þar nefna húsgögn, bygginga-
vöru og snjallsíma. Velta dagvöru-
verslana var 9,1 prósenti meiri en
í september í fyrra og sala áfengis
í september, í lítrum talið, um 15,7
prósentum meiri á milli ára.
Kippur varð í fataverslun í sept-
ember, sem var 8,3 prósentum meiri
en í sama mánuði í fyrra. Að magni
til jókst sala á fötum um 14,8 pró-
sent. Magnaukningin orsakast af
því að verð á fötum var 5,7 pró-
sentum lægra en í samanburðar-
mánuðinum í fyrra. Þetta skýrist
væntanlega aðallega af afnámi tolla
á föt um síðustu áramót, er mat RV.
– shá
Smásöluverslun
eykst mikið
Menn gera vel við sig í mat og drykk
þessa dagana. FRéttAblAðið/VAlli
Indverskir verslunareigendur sitja innan um ýmsan varning sem þeir selja hindúum nú þegar haldið er upp á ljósahátíðina Diwali. Hátíðin er ein sú
stærsta innan hindúasiðar og er hún haldin til að fagna sigri ljóssins á myrkrinu, sigri góðs á illu, þekkingar á vanþekkingu og vonar á ótta. Einn Diwali-
siða er að tendra ljós á húsþökum, hurðum og í gluggum og má sjá milljónir slíkra ljósa í borginni Kolkata þar sem myndin er tekin. NoRDiCpHotos/AFp
kosningar
2016
2 9 . o k t ó B e r 2 0 1 6 l A u G A r d A G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-4
A
F
0
1
B
1
C
-4
9
B
4
1
B
1
C
-4
8
7
8
1
B
1
C
-4
7
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K