Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 46
| AtvinnA | 29. október 2016 LAUGARDAGUR2
LANDSPÍTALI ... SUÐUPOTTUR ÞEKKINGAR!
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á barnadeild á Barnaspítala
Hringsins. Deildin er 21 rúma legudeild, með breiðan skjólstæðingahóp
barna frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Unnið er í
vaktavinnu. Boðið er upp á góða starfsaðlögun með reyndum
hjúkrunarfræðingi.
Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn og
unglinga á Íslandi. Á barnadeildinni er sérhæfð læknis- og
hjúkrunarþjónusta. Börn dvelja þar með ýmis heilbrigðisvandamál og
sjúkdóma. Stefna deildarinnar er að veita faglega og fjölskyldumiðaða
þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Barnaspítali Hringsins
Við leitum eftir liðsauka í öflugt bráðateymi geðsviðs og viljum ráða
til starfa sérfræðing í geðlækningum, deildarlækni og hjúkrunarfræðing.
Í boði eru spennandi störf fyrir öfluga og áhugasama einstaklinga.
Markhópur teymisins eru einstaklingar með alvarlegan og bráðan geð-
vanda. Starfsemi bráðaþjónustu er þríþætt, bráðamóttaka, bráða eftirfylgd
og ráðgjafaþjónusta. Þangað leita um 3.200 einstaklingar á ári hverju.
Starfið byggir á öflugri þverfaglegri teymisvinnu og er í mikilli þróun.
SÉRFRÆÐILÆKNIR
DEILDARLÆKNIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Bráðateymi geðsviðs
Sjúkraliði óskast til starfa á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
á skurðlækningasviði. Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu
teymi og sinna einstaklingum sem farið hafa í aðgerð vegna sjúkdóma
í hjarta og lungum, einnig er þar legurými fyrir augnsjúklinga.
Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi. Tökum vel á móti nýjum
starfsmönnum og veitum góða aðlögun.
SJÚKRALIÐI
Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Viltu öðlast mikla reynslu og þekkingu á hjartasjúkdómum? Við leitum
eftir öflugum hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á og vilja vinna við
bráðahjúkrun, aðallega hjartasjúklinga. Um er að ræða afar
áhugaverðan og spennandi starfsvettvang með þverfaglegri nálgun á
greiningu, meðferð og umönnun sjúklinga með bráða hjartasjúkdóma.
Möguleikar eru á þróun í starfi, ekki síst í formi spennandi fræðslu,
námskeiða og ráðstefna.
Hjartagátt er sólarhringsdeild sem er opin alla daga vikunnar. Þar
starfa um 50 manns sem veita bráðaþjónustu við hjartasjúklinga auk
fjölbreyttrar dag- og göngudeildarþjónustu. Að auki er veitt þjónusta
við aðra sjúklingahópa eftir þörfum.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hjartagátt
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra
fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐU LANDSPÍTALA;
WWW.LANDSPITALI.IS/MANNAUDUR OG STARFATORGI; WWW.STARFATORG.IS
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-7
C
5
0
1
B
1
C
-7
B
1
4
1
B
1
C
-7
9
D
8
1
B
1
C
-7
8
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K