Fréttablaðið - 13.10.2016, Qupperneq 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 4 2 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorvaldur Gylfason
skrifar um þing gegn þjóð. 23
sport Íslenska kvennalands
liðið stígur á svið á EM í hópfim
leikum í Slóveníu í dag. 34
Menning Benjamin Levy
segir að það sé mikilvægt fyrir
Íslendinga að geta séð klassísk
meistaraverk á borð við Évgení
Onegin. 42
295 kr.pk.
Verð áður 369 kr. pk.
Lífrænir sveppir í öskju, 250 g, Pólland
- 20%
15 - 20% afsláttur af
Laugavegi 178 - Sími 568 9955
AFSLÁTTARDAGAR
20%
SÖFNUNAR-
STELL
HNÍFAPÖR
GLÖS
13.-20. október 2016
-
Ferðaþjónusta Gangi farþegafjölda
spá Isavia eftir verða að meðaltali til
415 ný störf á Keflavíkurflugvelli á
hverju ári allt tímabilið 2018 til ársins
2040. Það slagar upp í starfsmanna
fjölda álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðar
firði sem tók til starfa árið 2007 – en
þeir eru um 450. Alls verða til 1.300
ný störf í ár og um 1.100 árið 2017, en
flugvöllurinn verður stærsti vinnu
staður landsins árið 2018 að óbreyttu.
Þetta kemur fram í skýrslu ráð
gjafarfyrirtækisins Aton sem var
unnin fyrir Isavia.
Á fundi Isavia í gær var kallað eftir
stefnumótun og aðgerðaáætlun frá
hendi stjórnvalda en það liggur fyrir
að fjölgun ferðalanga sem fara um
Keflavíkurflugvöll og ferðamanna
sem hér dvelja í lengri eða skemmri
tíma er fordæmalaus. Um 6,7 millj
ónir farþega fara um völlinn á þessu
ári og búist er við öðrum þremur
milljónum til viðbótar á því næsta.
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri
Isavia, sagði að ekki dygði að horfa
bara á flugvöllinn sem hlið inn í
landið – hann væri svo miklu meira
en það og mikilvægi hans jafnvel
vanmetið.
„Flugvellir eru ekki lengur bara
staðir þar sem fólk kemur og fer,
heldur vaxtarsvæði fyrirtækja sem
njóta góðs af nálægðinni við völlinn.“
– shá / sjá síðu 16
Fjölgun eins og álver árlega
Flugvellir eru ekki
lengur bara staðir
þar sem fólk
kemur og fer.
Elín Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri
Isavia
saMFélagsMál Dæmi eru um að
verðandi mæður hafi frestað gang
setningu og reyni allt hvað þær
geta til að fresta fæðingum fram að
15. október þegar nýjar reglur um
fæðingarorlofsgreiðslur taka gildi.
Foreldrar sem eignast barn fyrir
15. október geta orðið af hundruðum
þúsunda króna og því er mikið í húfi.
Nýjar reglur sem ríkisstjórnin sam
þykkti fela í sér hækkun hámarks
greiðslu í fæðingarorlofi úr 370.000
krónum í 500.000 krónur á mánuði.
Fæðingarstyrkur og lágmarksgreiðsl
ur í fæðingarorlofi hækka einnig.
„Þetta er auðvitað algjört rugl, að setja
mann í svona stöðu á lokametrum
meðgöngunnar,“ segir Hildur Guð
mundsdóttir sem gengin er 38 vikur
með barn sitt og vonar innilega að
fara ekki af stað fyrr en eftir 15. októ
ber. „Það er ekki sanngjarnt hvernig
þetta er uppsett. Þetta getur skipt
mig hundruðum þúsunda. Ég ligg
bara fyrir og bíð eftir að 15. október
gangi í garð.“
Mikil ólga er meðal verðandi for
eldra þessa dagana vegna breyting
anna. Eva Rós Ólafsdóttir félags
ráðgjafi átti að fara í gangsetningu á
föstudeginum 14. en lét fresta henni
fram yfir helgi. „Í fullu samráði við
lækni og ljósmæður frestuðum við
gangsetningu fram yfir 15. október
því þetta hefur mikil áhrif á fjölskyld
una fjárhagslega,“ segir Eva Rós. „Þetta
getur líka haft mikil áhrif á hvort faðir
barnsins geti tekið fullt fæðingarorlof
með barninu sínu.“ – sa
Fresta gangsetningu fyrir hærri greiðslur
Verðandi mæður reyna nú allt hvað þær geta til að fresta fæðingu fram yfir 15. október. Þá taka gildi nýjar reglur um fæðingarorlofs-
greiðslur. Hámarksgreiðslur hækka úr 370 í 500 þúsund krónur og eru því töluverðar hagsmunir í húfi fyrir margar fjölskyldur.
Eygló hefði viljað taka stærri skref
Eygló Harðardóttir velferðarráðherra segist hafa viljað
stíga stærri skref en samstöðu hafi vantað, þá líklega í
ríkisstjórn. „Ég hefði viljað gera miklu betur en það var
ekki samstaða um þær breytingar. Þetta er eins langt og
ég komst með málið. Til að mynda var andstaða meðal
atvinnulífsins við frekari kjarabætur til handa foreldrum
í fæðingarorlofi,“ segir Eygló.
Það er ekki sann-
gjarnt hvernig þetta
er uppsett. Þetta getur skipt
mig hundruðum
þúsunda.
Hildur Guðmunds-
dóttir, komin 38
vikur á leið
Eva Rós Ólafsdóttir átti að fara í gangsetningu á morgun, 14. október. Daginn eftir taka gildi breytingar á fæðingarorlofsgreiðslum. Hámarksgreiðslurnar hækka um 130 þúsund krónur á
mánuði. Eva hefur því í samráði við lækni frestað gangsetningunni fram yfir 15. október. Meðal annars til að auka möguleika föður barnsins á að taka fullt fæðingarorlof. Fréttablaðið/Eyþór
lÍFið Bibbi í
Skálmöld hitar
upp fyrir sjálfan
sig á átta tón
leikum um
helgina. 58
plús 2 sérblöð l Fólk l lÍFið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
9
-6
B
0
C
1
A
E
9
-6
9
D
0
1
A
E
9
-6
8
9
4
1
A
E
9
-6
7
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K