Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 70
Líf Herberts utan
sviðsLjóssins Hefur
ekki aLLtaf verið dans á rósum. Myndin varpar ljósi á líf og drauma, sigra og ósigra Her-b e r t s G u ð -mundssonar,
sem hefur komist yfir hindranir
lífsins með fáheyrða jákvæðni að
vopni,“ segir Friðrik Grétarsson
kvikmyndagerðarmaður spurður
út í heimildarmyndina Can't Walk
Away, sem frumsýnd verður næst-
komandi helgi.
Herbert er landsmönnum að
góðu kunnur fyrir tónlist sína
og hefur hann fært miklar fórnir
í gegnum tíðina til þess að geta
Kvikmyndagerðarmennirnir Friðrik Grétarsson og Ómar Örn Sverrisson ásamt
Herberti.
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
miðlað listinni til aðdáenda sinna.
„Líf Herberts utan sviðsljóss-
ins hefur ekki alltaf verið dans á
rósum. Hann á meðal annars að
baki gjaldþrot, fangelsisvist, hjóna-
skilnaði, fíkniefnavanda, atvinnu-
leysi og einelti.“
Kv i k m y n d a g e r ð a r m e n n -
irnir Friðrik Grétarsson og Ómar
Sverrisson hafa fylgt Herberti eftir
undanfarin fimm ár. Herbert þurfti
að skrifa undir samning þess efnis
að hann fengi ekki að sjá myndina
fyrr en á frumsýningu. Þannig
hafa þeir Friðrik og Ómar fengið
fullt ritstjórnarlegt frelsi við gerð
myndarinnar.
„Herbert talar afdráttalaust um
það sem á daga hans hefur drifið en
einnig er rætt við samferðamenn
sem hafa margar merkilegar sögur
að segja,“ segir Friðrik.
ferill Herberts
Guðmundssonar
frá árinu 1970
til dagsins í dag
1970 Herbert kemur fyrst fram á sjónarsviðið, þá söngvari
með ýmsum hljómsveitum. Fyrst kemur
hann fram með skólahljómsveitinni Raf-
losti í Laugalækjarskóla í Reykjavík. Í kjöl-
farið kemur hljómsveitin Tilvera, en það
er þá sem Herbert verður fyrst þekktur
á Íslandi. Á þessum tíma eru þekktustu
hljómsveitir landsins, ásamt Tilveru, Ævin-
týri og Trúbrot. Herbert söng inn á sína
fyrstu plötu með Tilveru 1971.
1980 Á árunum 1982-1984 spilar Herbert með hljómsveitinni Kan sem gerð er út frá
Bolungarvík. Kan gefur út plötuna Í ræktinni og meðal
þekktustu laga sveitarinnar eru Megi sá draumur og
Vestfjarðaóður. Árið 1985 kemur út platan Dawn of the
Human Revolution sem inniheldur lagið fræga Can't Walk
Away, sem slær heldur betur í gegn. „Þarna stimplaði ég
mig endanlega inn, það þekktu allir lagið. Þetta var alveg
æðislega gaman, ég er virkilega þakklátur fyrir það.“
1990 Hollywood kallar. Fljótlega upp úr 1990
fer Herbert á vit draumanna alla
leið til Los Angeles, í þeim til gangi
að taka upp myndbönd við lögin
Hollywood og Night of the Show.
„Ég var með fullt af fólki með mér
í þessu, Kristinn Þórðarson var
framkvæmdastjóri verkefnisins.
Það var alveg frábært að vinna með
honum og virkilega skemmtilegt að
vinna þarna úti.“ Árið 1990 fæðist
eldri sonur Herberts, Svanur, og
árið 1992 fæðist yngri sonur hans,
Guðmundur.
2000 Smellurinn Svaraðu kemur út í kringum aldamótin. Herbert
fer til Portúgals og tekur upp myndband við
lagið sem vekur talsverða athygli.
2010 Herbert fer í samstarf við yngri son sinn, Svan. Þeir gefa út
plötuna Tree of Life. Árið 2012 fagnar Her-
bert 40 ára starfsafmæli sínu með tónleikum
á Kexi Hostel, sama ár tekur hann þátt í
söngvakeppni Sjónvarpsins með framlagi
sínu Eilíf ást. Kvikmyndagerðarmennirnir
Friðrik Grétarsson og Ómar Örn Sverrisson
hafa samband við Herbert í þeim tilgangi að
gera heimildarmynd um kappann.
2016 Heimildarmyndin Can’t Walk Away frumsýnd 15. október.
Heimildarmyndin Can’t Walk away um líf og feril tónlistarmannsins Herberts Guð-
mundssonar verður frumsýnd á laugardaginn. Ferill söngvarans hefur ekki alltaf verið
dans á rósum. Fréttablaðið tók saman hæðir og lægðir á ferli kappans.
fáheyrð
jákvæðni
að vopni
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r52 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð
Lífið
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
9
-A
B
3
C
1
A
E
9
-A
A
0
0
1
A
E
9
-A
8
C
4
1
A
E
9
-A
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K