Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 18
Það er ekki ofsagt að allar tölur er varða þróun ferðaþjónustunnar á Íslandi á síðastliðnum árum og spár um framhaldið eru eins og í lygasögu. Það sama á svo sannar- lega við um þróun farþegafjölda á Keflavíkurflugvelli á sama tíma og allar spár til næstu ára og áratuga. Verkefnið framundan – að mæta þeim áskorunum sem tölurnar taka til – er risavaxið. Gagnrýnisraddir eru háværar um aðkomu stjórnvalda og spurt hvernig í ósköpunum það megi vera að fjölgun ferðamanna og þarfir ferðaþjónustunnar séu ekki meira áberandi í pólitískri umræðu í aðdraganda kosninga. Stefnir í 20 milljónir farþega Þetta er meðal þess sem kom fram í erindum – og á göngum hótels Nor- dica – á fundi Isavia um áhrif upp- byggingar Keflavíkurflugvallar í gær. Það liggur fyrir að fjölgun ferða- langa sem fara um Keflavíkurflug- völl og ferðamanna sem hér dvelja í lengri eða skemmri tíma er for- dæmalaus. Um 6,7 milljónir farþega fara um völlinn á þessu ári og búist er við öðrum þremur milljónum til viðbótar á því næsta. Framtíðar- sýnin gerir ráð fyrir 20 milljónum farþega árið 2040 – og þá eru taldir tveir aðskildir hópar; þeir sem eru að koma og fara og hinir sem eru á leið yfir hafið og koma við í Keflavík á leiðinni annað. Mikilvægi Kefla- víkurflugvallar verður seint ofmetið þar sem hann er gáttin inn í landið og stærsti hlekkurinn í langri keðju innviða ferðaþjónustunnar. Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, tiplaði á þessum tölulegu staðreyndum en sagði jafnframt að ekki dygði að horfa bara á flugvöll- inn sem hlið inn í landið – hann væri svo miklu meira en það og mikil- vægi hans jafnvel vanmetið. Því sé gríðarlega mikilvægt að vanda til verka þegar kemur að nauðsynlegri stækkun flugvallarins. Segull „Flugvellir eru ekki lengur bara staðir þar sem fólk kemur og fer, heldur vaxtarsvæði fyrirtækja sem njóta góðs af nálægðinni við völl- inn. Skýr stefna í þessa átt getur skilað auknum vöru- og þjónustu- viðskiptum, laðað til landsins erlendar fjárfestingar, fjölgað verð- mætum störfum og aukið hagsæld íbúa landsins alls,“ sagði Elín og hnykkti á samhenginu við að Kefla- víkurflugvöllur er samgöngumiðstöð á milli heimsálfa og þá fyrst og síðast Evrópu og Norður-Ameríku. Því geti svæðið verið segull fyrir hvers konar starfsemi sem skapar verðmæti fyrir samfélagið, og því séu þær tengingar sem flugvöllurinn veitir gríðarlega mikilvægar. Ekki síst eigi það við um möguleika íslenskra fyrirtækja til að stunda viðskipti og afla sér alþjóðlegrar þekkingar. Varnagli En hér sló Elín varnagla. Þessi þróun geti ekki átt sér stað í tómarúmi heldur verði nær allt annað í samfélaginu að ganga í takt. Tæki- færin séu sannarlega fyrir hendi en hvernig viljum við nýta þau til vaxtar fyrir samfélag okkar? Handleiðslu stjórnvalda sárlega saknað Kallað er úr öllum áttum eftir heildstæðri stefnumótun stjórnvalda um uppbyggingu vegna sprengingar í ferðaþjónustu. Bjartsýnustu sem svartsýnustu spár krefjast aðgerða og milljarða fjárfestinga. Möguleikar á uppbyggingu á flugvallarsvæðinu eru vanmetnir. Um Keflavíkurflugvöll fara rúmlega sex milljónir farþega á þessu ári og búist er við níu milljónum á því næsta. Mynd/ISaVIa Ljóst þykir að vöntun er á heild- stæðri stefnu sem tekur meðal annars á framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjón- ustu, flugrekstrar og þeim inn- viðum sem byggja þarf upp til að sú sýn nái fram að ganga. Elín Árnadóttir, að- stoðarforstjóri Isavia Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Þeirri spurningu verður að svara, sagði Elín. „Uppbygging þarf að vera sjálfbær og í takti við stefnu- mótun stjórnvalda. Uppbygging þarf að fylgja aðgerðaáætlun um hvernig taka skal á móti þeim far- þegum sem koma til landsins,“ sagði hún. Samfélagið þurfi því að svara áleitnum spurningum og ein þeirra sé hvar þolmörk greinar- innar liggi. Hvað með aðgang að vinnuafli, samgöngur, löggæslu, heilbrigðisþjónustu og gæði og fjölbreytileika afþreyingar, álag á náttúruna eða samfélagsleg áhrif í stærra samhengi? „Ljóst þykir að vöntun er á heild- stæðri stefnu sem tekur meðal annars á framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu, flugrekstrar og þeim innviðum sem byggja þarf upp til að sú sýn nái fram að ganga,“ sagði Elín því hvort sem væri litið til bjartsýnustu spár um fjölgun far- þega eða þeirrar svartsýnustu þá væri ekki valkostur að sitja auðum höndum. Bregðast verði við. Flöskuhálsinn Ekki er liðin vika síðan þessi mál voru til umræðu á öðrum vettvangi – ráðstefnu Íslenska sjávarklasans undir heitinu Flutningalandið Ísland. Þar komu fram sjónarmið um stöðu mála frá hinni hliðinni þegar Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, sagði frá því hvernig hann sér stöðuna. Samantekið lítur það svona út: Vöntun á framsýni og skilningsleysi stjórnvalda á þróun ferðaþjónustu á Íslandi hefur verið dragbítur á nauð- synlega uppbyggingu. Stefnumörkun til lengri tíma og framkvæmdir verða að koma til. Stærsti flöskuhálsinn er Keflavíkurflugvöllur sem er löngu sprunginn, og á sama tíma og útflutn- ingstekjur af ferðaþjónustu eru 500 milljarðar er rifist um smáaura við einstakar framkvæmdir. „Árið 2018 og árin þar á eftir erum við að lenda á vegg mjög víða, og það verður ekki leyst nema að það verði allsherjar viðhorfs- og stefnubreyt- ing. Sem hefst hjá stjórnvöldum,“ sagði Skúli. Spilaborgin Í lok ráðstefnunnar í gær var gest- um og gangandi boðið að taka til máls – fyrstur til að nýta sér það var Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu og fyrrverandi stjórnarformaður Isavia, sem setti málið í það samhengi að Keflavík- urflugvöllur væri aðeins ein tönn á risastóru hjóli. Hann vildi koma því á framfæri að starfsemin hér er öll byggð á alþjóðlegum lögum og reglum sem flugrekstraraðilar hér þurfa að lúta – heima sem erlendis undir ströngu eftirliti. „Nýlega var fjárveitingavaldið loksins að smella 100 milljónum til að sjá til þess að landamæraeftirlit stöðvaðist ekki,“ sagði Þórólfur og var sýnilega ofboðið. Hann sagði „fjárveitingavaldið fylgir ekki með þessari þróun“, og vildi hafa uppi þau varnaðarorð til stjórnvalda „að allt getur þetta fallið eins og spilaborg“ ef ekki er tryggt að eftir- litsaðilar hafi mannafla og vigt til að sinna sínu hlutverki. 415 ný störf verða til á Keflavíkurflugvelli á hverju ári að meðaltali allt tíma- bilið 2018 til 2040, miðað við farþegafjöldaspá Isavia. 40% þessara starfa tengjast íslenskum flugfélögum beint en önnur störf eru bein þjónustu- störf á flugvellinum. ný störf verða til í ár og um 1.100 árið 2017. 1.300 20172016 1.300 störf 1.100 störf 7.500 manns munu starfa á Kefla- víkurflugvelli árið 2018 sem verður þá fjölmennasti vinnu- staður landsins. Starfsmenn verða rúmlega 16.000 árið 2040 gangi spár eftir. 37% fjölgun farþega árið 2016 frá fyrra ári. 25 flugfélög flugu til Keflavíkur þegar mest var í sumar. Árið 2010 var þessi fjöldi 11 flugfélög. 6,7 milljónir farþega fara um Keflavíkurflugvöll í ár. Þeir verða 9 milljónir á næsta ári, gangi spár eftir. 364 milljarða gjaldeyristekjur af ferða- þjónustu árið 2015. Spáð er 620 milljarða tekjum 2020 og 1.000 milljörðum 2030. Umsvifin á Kefla- víkurflugvelli í tölum 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r16 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 3 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 9 -6 B 0 C 1 A E 9 -6 9 D 0 1 A E 9 -6 8 9 4 1 A E 9 -6 7 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.