Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 18
Það er ekki ofsagt að allar tölur er
varða þróun ferðaþjónustunnar
á Íslandi á síðastliðnum árum og
spár um framhaldið eru eins og í
lygasögu. Það sama á svo sannar-
lega við um þróun farþegafjölda á
Keflavíkurflugvelli á sama tíma og
allar spár til næstu ára og áratuga.
Verkefnið framundan – að mæta
þeim áskorunum sem tölurnar taka
til – er risavaxið. Gagnrýnisraddir
eru háværar um aðkomu stjórnvalda
og spurt hvernig í ósköpunum það
megi vera að fjölgun ferðamanna og
þarfir ferðaþjónustunnar séu ekki
meira áberandi í pólitískri umræðu
í aðdraganda kosninga.
Stefnir í 20 milljónir farþega
Þetta er meðal þess sem kom fram í
erindum – og á göngum hótels Nor-
dica – á fundi Isavia um áhrif upp-
byggingar Keflavíkurflugvallar í gær.
Það liggur fyrir að fjölgun ferða-
langa sem fara um Keflavíkurflug-
völl og ferðamanna sem hér dvelja
í lengri eða skemmri tíma er for-
dæmalaus. Um 6,7 milljónir farþega
fara um völlinn á þessu ári og búist
er við öðrum þremur milljónum
til viðbótar á því næsta. Framtíðar-
sýnin gerir ráð fyrir 20 milljónum
farþega árið 2040 – og þá eru taldir
tveir aðskildir hópar; þeir sem eru
að koma og fara og hinir sem eru á
leið yfir hafið og koma við í Keflavík
á leiðinni annað. Mikilvægi Kefla-
víkurflugvallar verður seint ofmetið
þar sem hann er gáttin inn í landið
og stærsti hlekkurinn í langri keðju
innviða ferðaþjónustunnar.
Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri
Isavia, tiplaði á þessum tölulegu
staðreyndum en sagði jafnframt að
ekki dygði að horfa bara á flugvöll-
inn sem hlið inn í landið – hann væri
svo miklu meira en það og mikil-
vægi hans jafnvel vanmetið. Því sé
gríðarlega mikilvægt að vanda til
verka þegar kemur að nauðsynlegri
stækkun flugvallarins.
Segull
„Flugvellir eru ekki lengur bara
staðir þar sem fólk kemur og fer,
heldur vaxtarsvæði fyrirtækja sem
njóta góðs af nálægðinni við völl-
inn. Skýr stefna í þessa átt getur
skilað auknum vöru- og þjónustu-
viðskiptum, laðað til landsins
erlendar fjárfestingar, fjölgað verð-
mætum störfum og aukið hagsæld
íbúa landsins alls,“ sagði Elín og
hnykkti á samhenginu við að Kefla-
víkurflugvöllur er samgöngumiðstöð
á milli heimsálfa og þá fyrst og síðast
Evrópu og Norður-Ameríku. Því geti
svæðið verið segull fyrir hvers konar
starfsemi sem skapar verðmæti fyrir
samfélagið, og því séu þær tengingar
sem flugvöllurinn veitir gríðarlega
mikilvægar. Ekki síst eigi það við
um möguleika íslenskra fyrirtækja
til að stunda viðskipti og afla
sér alþjóðlegrar þekkingar.
Varnagli
En hér sló Elín varnagla.
Þessi þróun geti ekki
átt sér stað í tómarúmi
heldur verði nær allt
annað í samfélaginu
að ganga í takt. Tæki-
færin séu sannarlega
fyrir hendi en hvernig
viljum við nýta þau til
vaxtar fyrir samfélag
okkar?
Handleiðslu stjórnvalda sárlega saknað
Kallað er úr öllum áttum eftir heildstæðri stefnumótun stjórnvalda um uppbyggingu vegna sprengingar í ferðaþjónustu. Bjartsýnustu
sem svartsýnustu spár krefjast aðgerða og milljarða fjárfestinga. Möguleikar á uppbyggingu á flugvallarsvæðinu eru vanmetnir.
Um Keflavíkurflugvöll fara rúmlega sex milljónir farþega á þessu ári og búist er við níu milljónum á því næsta. Mynd/ISaVIa
Ljóst þykir að
vöntun er á heild-
stæðri stefnu sem tekur
meðal annars á framtíðarsýn
íslenskrar ferðaþjón-
ustu, flugrekstrar
og þeim inn-
viðum sem
byggja þarf upp
til að sú sýn nái
fram að ganga.
Elín Árnadóttir, að-
stoðarforstjóri Isavia
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Þeirri spurningu verður að svara,
sagði Elín. „Uppbygging þarf að
vera sjálfbær og í takti við stefnu-
mótun stjórnvalda. Uppbygging
þarf að fylgja aðgerðaáætlun um
hvernig taka skal á móti þeim far-
þegum sem koma til landsins,“
sagði hún. Samfélagið þurfi því að
svara áleitnum spurningum og ein
þeirra sé hvar þolmörk greinar-
innar liggi. Hvað með aðgang að
vinnuafli, samgöngur, löggæslu,
heilbrigðisþjónustu og gæði og
fjölbreytileika afþreyingar, álag á
náttúruna eða samfélagsleg áhrif í
stærra samhengi?
„Ljóst þykir að vöntun er á heild-
stæðri stefnu sem tekur meðal
annars á framtíðarsýn íslenskrar
ferðaþjónustu, flugrekstrar og þeim
innviðum sem byggja þarf upp til
að sú sýn nái fram að ganga,“ sagði
Elín því hvort sem væri litið til
bjartsýnustu spár um fjölgun far-
þega eða þeirrar svartsýnustu þá
væri ekki valkostur að sitja auðum
höndum. Bregðast verði við.
Flöskuhálsinn
Ekki er liðin vika síðan þessi mál
voru til umræðu á öðrum vettvangi
– ráðstefnu Íslenska sjávarklasans
undir heitinu Flutningalandið Ísland.
Þar komu fram sjónarmið um stöðu
mála frá hinni hliðinni þegar Skúli
Mogensen, forstjóri WOW air, sagði
frá því hvernig hann sér stöðuna.
Samantekið lítur það svona út:
Vöntun á framsýni og skilningsleysi
stjórnvalda á þróun ferðaþjónustu á
Íslandi hefur verið dragbítur á nauð-
synlega uppbyggingu. Stefnumörkun
til lengri tíma og framkvæmdir verða
að koma til. Stærsti flöskuhálsinn er
Keflavíkurflugvöllur sem er löngu
sprunginn, og á sama tíma og útflutn-
ingstekjur af ferðaþjónustu eru 500
milljarðar er rifist um smáaura við
einstakar framkvæmdir.
„Árið 2018 og árin þar á eftir erum
við að lenda á vegg mjög víða, og það
verður ekki leyst nema að það verði
allsherjar viðhorfs- og stefnubreyt-
ing. Sem hefst hjá stjórnvöldum,“
sagði Skúli.
Spilaborgin
Í lok ráðstefnunnar í gær var gest-
um og gangandi boðið að taka til
máls – fyrstur til að nýta sér það
var Þórólfur Árnason, forstjóri
Samgöngustofu og fyrrverandi
stjórnarformaður Isavia, sem setti
málið í það samhengi að Keflavík-
urflugvöllur væri aðeins ein tönn
á risastóru hjóli. Hann vildi koma
því á framfæri að starfsemin hér er
öll byggð á alþjóðlegum lögum og
reglum sem flugrekstraraðilar hér
þurfa að lúta – heima sem erlendis
undir ströngu eftirliti.
„Nýlega var fjárveitingavaldið
loksins að smella 100 milljónum til
að sjá til þess að landamæraeftirlit
stöðvaðist ekki,“ sagði Þórólfur og
var sýnilega ofboðið. Hann sagði
„fjárveitingavaldið fylgir ekki með
þessari þróun“, og vildi hafa uppi
þau varnaðarorð til stjórnvalda
„að allt getur þetta fallið eins og
spilaborg“ ef ekki er tryggt að eftir-
litsaðilar hafi mannafla og vigt til
að sinna sínu hlutverki.
415 ný störf
verða til á Keflavíkurflugvelli á
hverju ári að meðaltali allt tíma-
bilið 2018 til 2040, miðað við
farþegafjöldaspá Isavia.
40% þessara starfa tengjast
íslenskum flugfélögum beint en
önnur störf eru bein þjónustu-
störf á flugvellinum.
ný störf verða
til í ár og um
1.100 árið 2017.
1.300
20172016
1.300
störf 1.100
störf
7.500 manns munu starfa á Kefla-
víkurflugvelli árið 2018 sem
verður þá fjölmennasti vinnu-
staður landsins. Starfsmenn
verða rúmlega 16.000 árið 2040
gangi spár eftir.
37%
fjölgun farþega
árið 2016 frá fyrra ári.
25 flugfélög flugu til Keflavíkur þegar mest var
í sumar. Árið 2010 var þessi fjöldi
11 flugfélög.
6,7 milljónir
farþega fara um Keflavíkurflugvöll
í ár. Þeir verða 9 milljónir á næsta
ári, gangi spár eftir.
364 milljarða
gjaldeyristekjur af ferða-
þjónustu árið 2015. Spáð er
620 milljarða tekjum 2020
og 1.000 milljörðum 2030.
Umsvifin á Kefla-
víkurflugvelli í tölum
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r16 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
9
-6
B
0
C
1
A
E
9
-6
9
D
0
1
A
E
9
-6
8
9
4
1
A
E
9
-6
7
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K