Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 40
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Fyrstu níu mánuði ársins söfnuðust
um hundrað tonn af plasti í grænu
tunnuna. Græna tunnan var viðbót
við söfnun á plasti sem áður var
hægt að skila á grenndar- og endur-
vinnslustöðvar. „Plast er orðið eitt
algengasta efnið í umhverfi okkar
og notkun þess eykst í sífellu. Hlut-
ur plasts er um tuttugu prósent í
blönduðum úrgangi í gráum tunn-
um en allur sá úrgangur er urðað-
ur. Alls féllu til um 18.400 tonn af
blönduðum úrgangi frá heimilum í
Reykjavík árið 2015 og því má ætla
að ríflega 3.680 tonn af plasti hafi
verið urðuð í Álfsnesi það árið,“
segir Eygerður Margrétardótt-
ir, deildarstjóri umhverfis- og úr-
gangsstjórnunar hjá umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar.
Hún bætir við að skil á plasti hafi
aukist gríðarlega síðan Reykja-
víkur borg fór að bjóða upp á hirðu
á endurnýtanlegu plasti við heimili
í Reykjavík. „Á heildina litið er um
120% aukning á flokkun og skilum
á plasti til endurvinnslu saman-
borið við síðasta ár.“
Greiða í takt við þjónustustig
Reykjavíkurborg hefur þá sér-
stöðu að íbúar velja það þjónustu-
stig sem þeim hentar og greiða
fyrir þjónustuna í takt við það.
Þannig geta íbúar valið hvort þeir
vilja nýta sér þjónustu grenndar-
eða endurvinnslustöðva eða hvort
þeir kjósa að endurvinnanlegur
úrgangur sé sóttur að heimilum
þeirra. „Íbúar þurfa því að óska
eftir grænni tunnu undir plast og
blárri tunnu undir pappír og pappa
við heimili sitt. Hins vegar er gerð
sú krafa að íbúar flokki ákveðna
úrgangsflokka frá blönduðum úr-
gangi, það er endurvinnanleg-
an pappír og pappa, umbúðir með
skilagjaldi, garðaúrgang, gróf-
an úrgang og spilliefni,“ útskýr-
ir Eygerður. Með þessum hætti
hefur Reykjavíkurborg náð meiri
árangri í flokkun pappírs og pappa
en flest önnur sveitarfélög.
Í Reykjavík er ekki lagt eitt og
sama sorphirðugjaldið á íbúa held-
ur ræðst gjaldskráin annars vegar
af mengunarbótareglunni, um að
sá geldur sem veldur, og hins vegar
af þjónustustigi. Íbúar sem kjósa
að flokka úrgang til endur-
vinnslu og draga þann-
ig úr fjárhagsleg-
um og umhverfis-
legum kostnaði við
meðhöndlun úrgangsins
greiða minna. Eygerður
tekur sem dæmi að tunna
undir plast er sextíu pró-
sent ódýrari en tunna undir
blandaðan úrgang. „Aukin
þjónusta við íbúa eykur
kostnað sveitarfélaga sem
þeim ber lagaleg skylda til
að innheimta að fullu með hækkun
hirðugjalda. Hirða endurvinnslu-
efna í tunnum við heimili er kostn-
aðarsamari en ef íbúar skila sjálf-
ir á grenndar- og endurvinnslu-
stöðvar og íbúar í Reykjavík sem
velja þá leið njóta góðs af því með
lægri hirðugjöldum. Um 85% íbúa
hafa aðgengi að grenndarstöðvum
í fimm hundruð metra fjarlægð frá
heimili sínu eða minna og því eru
skil á grenndarstöðvar hagkvæm
og aðgengileg leið fyrir flesta
Reykvíkinga.“
Pokalaus lífsstíll
Margir velta fyrir sér hvað eigi
að nota utan um úrgang sem til
fellur á heimilinu eða í fyrirtæk-
inu ef þeir hætta að kaupa einnota
burðarpoka úr plasti við innkaup.
„Staðreyndin er að flokkun endur-
vinnsluefna dregur úr þörfinni
fyrir poka undir blandaðan úrgang
því endurvinnsluefnum má skila í
lausu í endurvinnsluílát. Á mark-
aðnum eru einnig pokar úr niður-
brjótanlegu efni, svo sem maís-
pokar, sem hafa nokkra yfirburði
í umhverfislegu tilliti saman-
borið við plastpoka. Íbúar í
Reykjavík mega setja bland-
aðan úrgang lausan í gráu
tunnuna og því er hægt að
stunda pokalausan lífsstíl
ef vilji er til. Þá þarf að
hreinsa tunnuna oftar og
hafa margir brugðið á það
ráð að nota poka sem hvort
sem er falla til á heimilinu
undir úrganginn, svo sem
pokana undan brauðinu og
kartöflunum,“ segir hún.
Árangur í endurvinnslu
Markmið reykjavíkurborgar er að draga úr myndun úrgangs og auka endur-
vinnslu enn frekar. Mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum í endurvinnslu
pappírs og pappa. Plastið hefur hins vegar verið í forgrunni síðasta árið eða frá því
að byrjað var að bjóða upp á græna tunnu undir plast við heimili í Reykjavík.
Á heildina litið er um 120% aukning á flokkun og skilum á plasti til endurvinnslu samanborið við síðasta ár, segir eygerður
margrétardóttir, deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá umhverfis- og skipulagssviði reykjavíkurborgar.
Íbúar í reykjavík
mega setja blandaðan
úrgang lausan í gráu
tunnuna og því er hægt
að stunda pokalausan
lífsstíl ef vilji er til.
Eygerður Margrétardóttir, deildarstjóri
umhverfis- og úrgangsstjórnunar
KOMUM ÞVÍ Í ENDURVINNSLU
Lengi lifir
plastið ...
endUrVinnSla Kynningarblað
13. október 20162
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
9
-6
1
2
C
1
A
E
9
-5
F
F
0
1
A
E
9
-5
E
B
4
1
A
E
9
-5
D
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K