Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.10.2016, Blaðsíða 20
Svona skiptist fylgið milli flokka Kosningar 2013 Könnun 3. og 4. október 2016 Könnun 10. og 11. október 2016 Skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis 201 6 l Björt framtíð xA l Framsókn xB l Viðreisn xC l Sjálfstæðisfl. xD l Íslenska þjóðf. xE l Flokkur fólksins xF l Húmanistar xH l Píratar xP l Alþýðufylkingin xR l Samfylkingin xS l Dögun xT l Vinstri græn xV Könnun 10 og 11. október 2016 19 ,2 % 5, 1% 22 ,8 % 8, 8% 12 ,9 % 7, 3% 25 ,9 % 26 ,7 % 22 ,7 % 11 ,4 % 24 ,4 % 8, 5% 0, 0% 6, 9% 8 ,4 % 2, 0% 0, 0% 0, 9% 0, 3% 0, 0% 0, 0%0, 8% 0, 0% 3, 3% 0, 8% 3, 1% 2, 1% 2, 2% 0, 1% 0, 2% 12 ,6 % 10 ,9 % 15 ,1 % 6, 9%8 ,2 % 8, 2% Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar halda öruggri forystu í könnunum Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Niðurstöður könnunar sem gerð var 10. og 11. október benda þó til þess að Sjálfstæðisflokkurinn tapi ein­ hverju fylgi frá könnun sem gerð var viku fyrr. Núna mælist Sjálfstæðis­ flokkurinn með 22,7 prósenta fylgi en mældist með 25,9 prósent fyrir viku. Píratar bæta aftur á móti nokk­ uð við sig fylgi milli vikna. Þeir voru með 19,2 prósenta fylgi í síðustu viku en eru með 22,8 prósent núna. Þá bæta Vinstri græn við sig 2,5 pró­ sentum og Framsóknarflokkurinn tapar 2,9 prósentum milli vikna. Að öðru leyti eru litlar breytingar á fylgi flokkanna. „Það má kannski segja að þetta sé að byrja að setjast. Ég myndi nú samt ekki ganga svo langt að segja að myndin sé orðin skýr. Það sem vekur mesta athygli hjá mér hérna er að þið eruð að fá betri svörun,“ segir Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Þar vísar hann til þess að í könnuninni sem gerð var í byrjun vikunnar tóku 67,2 prósent afstöðu en 58,6 prósent tóku afstöðu í könnuninni í síðustu viku. „Það segir mér að fólk er svona betur farið að gera upp sinn hug. Og hugsan­ lega er könnunin orðin marktækari en þær sem á undan gengu,“ segir Eiríkur Bergmann um þessa þróun í könnuninni. Hann segir nokkrar áhugaverðar línur birtast í könnuninni. Sú fyrsta að fjórflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur­ inn, Framsóknarflokkurinn, Sam­ fylkingin og VG, eru einungis með 53,6 prósent af fylginu. Önnur sé sú að Sjálfstæðisflokkurinn sé farinn að lækka í könnunum Fréttablaðsins. „Hann er reyndar ekkert lægri en hann hefur verið sumstaðar í öðrum könnunum. En hann er farinn að lækka hjá ykkur og það er eftir­ tektarvert,“ segir Eiríkur Bergmann. Í síðustu könnun Gallup sem gerð var 16. til 29. september var Sjálfstæðis­ flokkurinn með 23,7 prósenta fylgi og 20,6 prósent í könnun MMR sem gerð var 20. til 26. september. Þá segir Eiríkur það líka eftirtektarvert hvað Píratar halda sínu fylgi. „Það veit á að þeir muni kannski ekki hrynja fyrir kosningar eins og einhverjir hefðu getað spáð.“ Þá veki það líka athygli að Björt framtíð haldi áfram að klóra sig upp og í þessari könnun sé flokkurinn kominn dálítið vel yfir fimm prósenta þröskuldinn. Þá segir Eiríkur stöðu Viðreisnar athyglisverða. „Mér finnst eftirtektar­ vert að Viðreisn, þó hún mæti sterk til leiks, þá nær hún ekki því háflugi sem maður hefði getað haldið um tíma að hún myndi ná,“ segir Eiríkur. Þar bendir hann líka á að Frétta­ blaðið mæli Viðreisn ögn lægri en aðrir könnunaraðilar. Í nýjustu könnun MMR mældist flokkurinn til dæmis með 12,8 prósenta fylgi og í könnun Gallup mælist flokkurinn með 13,4 prósent. „En það er sama. Til þess að ná mjög góðum árangri í kosningunum þá þyrfti svona flokkur að ná mjög góðu flugi,“ segir Eiríkur. Af minni flokkum er vert að nefna að Dögun fær 2,1 prósents fylgi og Flokkur fólksins fær 3,3 prósent. Aðrir flokkar fá minna. Eiríkur segir að frammistaða Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, í umræðuþáttum í Ríkissjónvarpinu skipti sköpum. „Þetta fylgi Flokks fólksins er auðvitað tilkomið út af góðri frammistöðu Ingu. Hún hefur sprottið fram eins og fullbúin póli­ tísk stjarna,“ segir hann. Eiríkur segir að miðað við niður­ stöður nýju könnunarinnar sé hægt að tala um fjórar deildir á pólitíska sviðinu. Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar séu í efstu deild, síðan koma Vinstri græn sem eru ein í annarri deild. Svo koma Framsóknarflokkur­ inn, Viðreisn, Björt framtíð og Sam­ fylkingin í þriðju deildinni. „Það er alveg óvíst að allir þessir flokkar nái inn á þing. Það gæti alveg verið að einhver þeirra detti út í utandeild­ ina,“ segir Eiríkur Bergmann. Yrðu niðurstöður kosninganna í takti við niðurstöður könnunar­ innar fengju Píratar og Sjálfstæðis­ menn sextán þingmenn hvor. Tíu þingmenn sætu í þingflokki VG, sex í þingflokki Framsóknarflokksins. Þingflokkar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar yrðu svo jafnstórir eða með fimm menn í hverjum flokki. Fjórflokkarnir með helming fylgisins Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn gætu myndað mjög nauman meirihluta með 32 þingmönnum. Prófessor í stjórnmálafræði segir athyglisvert hve vel Píratar halda fylgi sínu og að Viðreisn nái ekki meira flugi. Fjórflokkurinn er einungis með tæplega 54 prósenta fylgi. Skipting þingsæta xA xVxSxPxDxCxB Könnun 10. og 11. október 2016 Kosningar 2013 6 5 19 6 5 0 19 16 3 16 9 5 7 10 Kosningar 2013 Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Kosningar 2016 Það má kannski segja að þetta sé að byrja að setjast. Ég myndi nú samt ekki ganga svo langt að segja að myndin sé orðin skýr. Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor Það blasir ekki við hvernig stjórn verður mynduð eftir kosningar. Í Ráðhúsinu er meirihluti fjögurra flokka, Samfylkingarinnar, Pírata, Bjartrar framtíðar og VG. Slík stjórn myndi hafa 36 manna meirihluta að baki sér á Alþingi. Eina mögulega tveggja flokka stjórnin væri stjórn Sjálfstæðismanna og Pírata. FRéTTABlAðið/EyÞóR 1 3 . o K t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r18 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 1 3 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 9 -5 7 4 C 1 A E 9 -5 6 1 0 1 A E 9 -5 4 D 4 1 A E 9 -5 3 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.