Fréttablaðið - 13.10.2016, Page 22
Trönuberjauppskera í Hvíta-Rússlandi
Hvítrússneskir bændur uppskáru í gær trönuber í þorpinu Selishche, um 290 kílómetra suður af Minsk. Hvíta-Rússland er einn helsti framleiðandi
trönuberja og framleiðir um 6.500 tonn af berjunum á hverju ári. Mesta trönuberjaframleiðsla í Evrópu er í Pinsk þar í landi. Fréttablaðið/aFP
Gummi Hafsteinsson frumkvöðull
seldi Google fyrirtæki sitt Emu fyrir
tveimur árum. Síðustu tvö ár hefur
hann stýrt teyminu sem þróaði vör-
una Google Assistant meðal annars
út frá vöru Emu. Google Assistant
var kynnt þann 4. október síðast-
liðinn. Um er að ræða eitt stærsta
verkefni sem Google hefur ráðist í.
„Við höfum aldrei séð aðra eins
sameiningu innan fyrirtækisins
á bak við eina vöru. Þetta var eitt
stærsta teymi í sögu Google að
vinna að Google Assistant. Það var
mjög spennandi að vera að leiða
þetta verkefni áfram,“ segir Gummi.
Hann hefur unnið að þróun hug-
búnaðar- og nýsköpunarfyrirtækja
í Kísildalnum frá því árið 2005.
Gummi starfaði fyrst hjá Google í
fimm ár þar sem hann byrjaði að
vinna að Google Maps fyrir far-
síma og stýrði markaðssetningu
þess. Síðar starfað hann hjá Apple
þar sem hann vann meðal annars
að þróun aðstoðarforritsins Siri.
Hann stofnaði svo fyrirtækið Emu
sem bauð upp á sýndaraðstoð við
skilaboðaforrit. Google keypti svo
það fyrirtæki í ágúst 2014 og sneri
Gummi þá aftur til starfa hjá Google.
„Það má líta á Google Assistant
sem samtal við Google-leitarvélina.
Í Emu vorum við að koma með
sýndaraðstoð inn í skilaboðaforrit.
Þetta kemur svo allt saman, eins og
margir litlir lækir, í Google Assist-
ant. Eftir að þetta er búið að renna
saman síðustu tvö árin þá verður
þetta að næstu kynslóð af Google í
rauninni,“ segir hann.
„Með Google Assistant geturðu
nýtt leitarvélina með því að tala
við Google. Ef þú vilt panta borð á
veitingastað geturðu beðið Google
um lista af veitingastöðum og svo
spyrðu Google hvort sé laust borð
klukkan sjö á morgun til dæmis,“
segir hann.
Gummi segir vöruna að vissu leyti
svipaða Siri. „En með Google nær
þetta víðar en síminn. Þú getur feng-
ið Google Assistant bæði í símanum
og í Allo, nýja skilaboðaforritinu, og
svo geturðu fengið þetta í Google
Home. Í Google Home er Google
Assistant byggður inn í hátalara sem
þú getur haft inni í stofu eða eldhúsi
og getur þá til dæmis spurt hvað þú
eigir að sjóða egg lengi til að það
verði harðsoðið. Þetta er rosalega
eðlilegt og þægilegt.
Þetta er stærðarinnar verkefni
innan Google og ég er yfir vöru-
þróuninni. Þetta er orðið eitt helsta
verkefni fyrirtækisins og meira að
segja fyrir Google er þetta óvenju
stórt verkefni. Þetta er sennilega í
heildina séð eitt stærsta verkefni sem
Google hefur ráðist í,“ segir hann.
Fram undan hjá Gumma er áfram-
haldandi þróun á vörunni. „Manni
finnst alltaf eins og þegar varan komi
á markað sé hún búin, en við verðum
á fullu að fylgja þessu eftir.“
saeunn@frettabladid.is
Leiddi vöruþróun við eitt
stærsta verkefni í sögu Google
Google Assistant, forrit sem gerir fólki kleift að eiga samtal við Google-leitarvélina var kynnt á dögunum.
Gummi Hafsteinsson var yfir vöruþróun á verkefninu sem er eitt það stærsta sem Google hefur ráðist í.
Gummi hefur unnið í yfir áratug í Kísildalnum, meðal annars við þróun á Google Maps, og Siri.
Úr verksmiðju Hyundai. Mynd/Hyundai
Tíð verkföll í samsetningarverk-
smiðjum Hyundai-bílaframleið-
andans í Kóreu eru farin að bíta
hressilega í budduna hjá fyrir-
tækinu. Þessi verkföll hafa náð til
50.000 verkamanna í verksmiðjum
Hyundai og orsakað tapaða fram-
leiðslu á 132.000 bílum að virði 300
milljarða króna.
Verkfallsaðgerðirnar eru tilkomn-
ar vegna launadeilu milli stjórnenda
Hyundai og verkamanna í verk-
smiðjum þeirra og hafa viðræður
staðið yfir megnið af árinu. Eru þessi
verkföll þau umfangsmestu sem
Hyundai hefur þurft að glíma við
í annars skrautlegri verkfallssögu
sinni, en á síðustu 29 árum hafa
aðeins liðið fjögur ár án verkfalla í
verksmiðjum þess.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa
hótað að hafa afskipti af þessum
verkföllum ef þau halda áfram og
telja að verkamenn fari fram á of
rausnarlega hækkun þrátt fyrir að
laun þeirra séu góð. Stéttarfélag
verkamanna hefur margsinnis
gengið út af samningafundum og
hefur það langt í frá glatt forsvars-
menn Hyundai og stjórnvöld lands-
ins. Viðræður standa yfir og var haft
eftir samningamanni stéttarfélags
starfsmanna að góðar líkur væru á
að félagið skrifi undir nýjan samn-
ing á allra næstu dögum. – fot
Verkföll minnka
framleiðslu hjá
Hyundai
Gummi Hafsteinsson hefur unnið að þróun hugbúnaðar- og nýsköpunarfyrirtækja í Kísildalnum frá 2005. Fréttablaðið/anton brinK
Kex Hostel ehf., sem rekur sam-
nefnt hostel í Reykjavík, tapaði 37,5
milljónum króna árið 2015. Þar af
eru 19,5 milljónir króna vegna hlut-
deildar í tapi dótturfélaga. Tapið
jókst eilítið, en það nam 35 millj-
ónum árið 2014.
Bókfært eigið fé félagsins í árs-
lok 2015 var neikvætt um 65 millj-
ónir króna, samanborið við að vera
jákvætt um 2,5 milljónir árið 2014.
Eignir í árslok námu 247,9 millj-
ónum króna, samanborið við 306,5
milljónir króna árið áður.
Kex Hostel ehf. var stofnað árið
2010. Hlutafé félagsins nam 20 millj-
ónum króna í árslok 2015. Stærstu
hluthafar voru Gamli Blakkur ehf.,
KP ehf., Dagur Sigurðsson, Fiski-
sund ehf., og Pétur Marteinsson.
Kex Hostel á 75 prósenta hlut í
Sæmundi í sparifötunum sem meðal
annars rekur samnefndan veitinga-
stað á Kexi Hosteli, er stór hluthafi
í Kaffihúsi Vesturbæjar, og rekur
veitingastaðinn Dill. Kex Port ehf.
og Kexland eru svo dótturfélög Kex
Hostels. Að meðaltali var 21 stöðu-
gildi hjá félaginu á árinu 2015. – sg
Kex tapaði
37,5 milljónum
Kex Hostel ehf. var stofnað árið 2010.
Fréttablaðið/Valli
Viðskipti
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r20 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
9
-6
6
1
C
1
A
E
9
-6
4
E
0
1
A
E
9
-6
3
A
4
1
A
E
9
-6
2
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K