Fréttablaðið - 13.10.2016, Side 44

Fréttablaðið - 13.10.2016, Side 44
Kvikmyndin Janis um söngkonuna Janis Joplin, hefur verið í undir- búningi í fjögur ár en nú er talið að skriður sé kominn á vinnslu henn- ar. Leikstjórinn er Sean Durkin sem er best þekktur fyrir myndina Martha Marcy May Marlene. Nýjustu fréttir herma að verið sé að semja við leikkonuna Michelle Williams um að leika hina goð- sagnakenndu söngkonu. Ekkert er þó niðurneglt í þeim efnum enda hafa leikkonur á borð við Amy Adams, Zooey Deschanel og Renée Zellweger verið orðaðar við hlutverkið á síðustu árum. Myndin er byggð á bókinni Love, Janis sem Laura Joplin, systir Janis, skrifaði eftir að söng- konan lést af of stórum skammti af heróíni aðeins 27 ára gömul. Laura notaði bréf sem söngkonan sendi til vina og vanda- manna til að segja sögu hennar. Michelle orðuð við hluverk Joplin Michelle Williams gæti farið með aðal- hlutverkið í myndinni um Janis Joplin. Rok og rigning eru ávísun á slæm- an hárdag. Rokið sér um að feykja síðu hári í allar áttir og flækja það og rigningin annaðhvort klessir það niður, eða ýfir upp alla lausa enda og krullur. Þó má komast í gegnum rigningardag tiltölulega skammlaust með „regn- og vind- heldum“ hárgreiðslum. Fléttur í ýmiss konar útfærslum eiga vel við. Hliðarfléttur í anda Lauru Ingalls standa allt af sér og fastar fléttur sem snúnar eru upp í hnút í hnakkann ættu að halda hár- inu í föstum skorðum. Einnig eru hnútar hentugir í rigningu, hátt uppi á höfðinu eða í hnakkanum og því „tætingslegri“, þeim mun betri, því þá gerir rokið frek- ar gagn en ógagn. Klass- ísk rigning- argreiðsla er að sleikja gelbor- ið hárið upp í tagl. Sú greiðsla batnar bara þegar tagl- ið ýfist upp í vætunni. Veðurhelt hár Fastar fléttur henta vel í íslensku veðurfari. Til hvers er liTli vasinn? Hefur þú einhvern tíma hugleitt af hverju galla- buxur eru með pínulítinn vasa ofan við venju- lega vasann? Levi’s-verksmiðjan hefur framleitt gallabuxur frá árinu 1873. Hvert smáatriði var úthugsað á gallabuxunum sem áttu að endast vel og vera þægilegar. Á fyrstu gallabuxunum voru fjórir vasar, aðeins einn rassvasi en tveir vasar að framanverðu auk litla vasans sem var ætlaður fyrir vasaúr. Á þessum tíma voru allir karlmenn með vasaúr og einhvers staðar þurfti að geyma það. Litli klukkuvasinn er þó enn á sínum stað. Í dag þykir vasinn heppilegur til að geyma nauðsynlega hluti eins og smokk, smá- mynt eða bíómiða. Litli vasinn var sérhannaður fyrir karlmenn. © 2 01 6 Es té e La ud er In c. 12 litir. Lýtalaus fyrir alla húðtóna. CUSHION STICK RADIANT MAKEUP NÝTT DOUBLE WEAR NUDE Berið á og blandið til að ná fullkominni ósýnilegri áferð. Sléttir, jafnar og gefur fullkominn heilbrigðan ljóma. Gefur raka samstundis. Situr allan daginn. esteelauder.com 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r8 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A 1 3 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A E 9 -7 9 D C 1 A E 9 -7 8 A 0 1 A E 9 -7 7 6 4 1 A E 9 -7 6 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.