Fréttablaðið - 13.10.2016, Side 52
Hársbreidd frá þriðja gullinu í röð
Ísland, eða öllu heldur Gerpla, varð
Evrópumeistari árin 2010 og 2012.
Fyrir tveimur árum var EM haldið
á Íslandi en þá þurftu stelpurnar að
sætta sig við silfrið. En af hverju gekk
gullið Íslandi úr greipum 2014?
„Út af því að ég var ekki í liðinu,“
sagði Íris og skellti upp úr. „Þetta var
ótrúlega hörð barátta milli Svía og
Íslendinga 2014. Svíarnir áttu bara
betri dag en bæði lið voru frábær.“
Það má til sanns vegar færa. Ísland
fékk 23,216 stig fyrir gólf æfingarnar
sem er met. Á endanum munaði
aðeins 0,684 stigum á sænska liðinu
og því íslenska.
Tveir turnar
Eins og áður sagði varð Gerpla Evr-
ópumeistari 2010 og 2012 en í ár, líkt
og 2014, sendir Ísland sameiginlegt
lið til keppni. Uppistaðan í lands-
liðinu er úr tveimur félögum, Gerplu
og Stjörnunni.
„Ég keppti bara fyrir Gerplu og hef
aldrei sjálf verið hluti af landsliði.
Þetta er auðvitað öðruvísi upplifun,
hún er ekkert betri eða verri, hún
er bara öðruvísi. Svo fer þetta eftir
liðunum, hvernig þau ná að tengja,“
sagði Íris sem segir það íþróttinni til
góðs að hafa tvö svona sterk félagslið
hérna heima. Það hjálpi landsliðinu.
„Við æfum mikið saman, alveg í
þrjá mánuði, þannig að þetta verður
svolítið eins og félagslið. Landsliðið er
eins og sambland af Barcelona og Real
Madrid,“ bætti Íris við í léttum dúr en
spænska fótboltalandsliðið er aðal-
lega skipað leikmönnum frá þessum
tveimur risafélögum.
Einbeitum okkur að okkur
sjálfum
Erfitt er að hafa bein áhrif á frammi-
stöðu andstæðingsins í hópfim-
leikum, öfugt við margar hópíþróttir.
„Við einbeitum okkur aðallega að
okkur sjálfum. Við breytum ekkert
miklu þótt við sjáum andstæðinginn,“
sagði Íris og bætti við því að lið geri
aldrei róttækar breytingar á sínum
æfingum, jafnvel þótt andstæðingur-
inn bryddi upp á einhverju óvæntu.
„Það er meira ef þau gera auðveld-
ari æfingar, þá lækkum við kannski
erfiðleikastigið og gerum auðveldara
og öruggara í stað þess að spila út
okkar helstu trompum,“ sagði Íris en
einkunnin er sambland af erfiðleika-
stigi og framkvæmd æfinganna.
Fjórir verðlaunapeningar
Ísland sendir fjögur lið til keppni á
EM; stúlknalið, kvennalið og blandað
lið í unglinga- og fullorðinsflokki. Íris
segir að markmiðið sé skýrt.
„Það er að koma með fjóra verð-
launapeninga heim,“ sagði Íris sem
fylgist með af hliðarlínunni þegar
kvennaliðið stígur á svið í undan-
keppninni í dag.
Eins og þegar
Barcelona og
Real Madrid
koma saman
Kvennalandsliðið stígur á svið á EM í hópfimleikum
í Slóveníu í dag. Ísland vann gull á EM 2010 og 2012
og ein skærasta stjarna liðsins þjálfar það í dag.
Stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í hópfimleikum eru klárar í slaginn. Þær keppa í undankeppninni í dag og ekkert nema stórslys kemur í veg fyrir að þær fari alla leið í úrslitin. FréTTablaðið/Ernir
Hópfimleikar Íris Mist Magnús-
dóttir fór fyrir besta fimleikaliði
Evrópu um nokkurra ára skeið. Hún
varð tvöfaldur Evrópumeistari í hóp-
fimleikum með Gerplu, tilnefnd sem
íþróttamaður ársins og svo mætti
áfram telja.
Þrjú ár eru liðin frá því Íris hætti
sjálf að keppa. Hún er samt enn við-
loðandi hópfimleikana og ber núna
hinn virðulega titil landsliðsþjálfari.
„Ég er að þjálfa kvennaliðið í dag.
Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokkinn
í Gerplu fyrir rúmu ári og fékk svo
þann heiður að vera boðin lands-
liðsþjálfarastaða hjá kvennaliðinu
sem er algjört draumalið, þar er ekk-
ert nema eintómir snillingar og fag-
menn,“ sagði Íris þegar blaðamaður
Fréttablaðsins hitti hana að máli á
liðshótelinu í slóvensku borginni
Maribor þar sem EM í hópfimleikum
fer fram.
Fáir æfa jafn mikið
Íris var 26 ára þegar hún lagði fim-
leikabúninginn á hilluna. Aðspurð
af hverju hún og fleiri fimleikakonur
hætti svona snemma, miðað við
margar aðrar íþróttir, segir hún að
æfingaálagið taki sinn toll.
„Það æfa fáir jafn mikið og við og
þú ert fljótari að verða saddur. Ég var
sátt þegar ég hætti þótt ég héldi að
ég gæti aldrei fengið nóg. Þú þarft að
hafa svo rosalega mikla ástríðu fyrir
þessu til að vera tilbúin að æfa 3-4
klukkutíma á dag.“
Ingvi Þór
Sæmundsson
Skrifar frá Maribor
„Á heildina litið gekk þetta mjög vel.
Þetta var eiginlega fáránlega vel gert
og við náðum markmiðum okkar,“
sagði Viktor Elí Sturluson, liðsmaður
blandaða unglingaliðsins, eftir að það
tryggði sér örugglega sæti í úrslitum á
EM í hópfimleikum.
Íslensku krakkarnir fengu samtals
53,416 stig fyrir æfingar sínar og end-
uðu í þriðja sæti af níu liðum. Ísland
fékk 16,200 stig fyrir stökk, 17,000
stig fyrir æfingar á trampólíni og
20,216 stig fyrir gólf æfingarnar. Fyrsta
umferðin gekk ágætlega en það virt-
ist þó vera stress í hópnum. Nokkur
föll voru í stökkinu og því ljóst að
liðið þurfti að stilla sig af fyrir næstu
umferð á trampólíni. Það gerðu
krakkarnir, kláruðu sínar æfingar
með stæl á trampólíni og fengu svo
öll móment gild á gólfinu.
Viktor segir að íslenska liðið ætli
sér að komast á verðlaunapall og
vinna til gullverðlauna. „Við ætlum
að stefna á gullið, það er klárt mál,“
sagði Viktor sem er að keppa á sínu
öðru Evrópumóti en hann var einn-
ig með á EM á Íslandi fyrir tveimur
árum. – iþs
Var fáránlega vel gert
Kvennaliðið er
algjört draumalið,
þar sem eru ekkert nema
eintómir
snillingar og
fagmenn.
Íris Mist
Magnúsdóttir
Íslenska stúlknalandsliðið flaug
áfram í úrslitin á EM í hópfimleikum
í gær. Ísland endaði í 2. sæti í undan-
keppninni. Stelpurnar fengu 52,350
stig fyrir æfingar sínar og voru
aðeins 0,50 stigum á eftir Dönum.
Íslenska liðið gerði fá mistök á
trampólíni en á gólfi vantaði smá
upp á. Fyrir lokaumferðina á dýnu
var ljóst að liðið væri komið í úrslit,
nema til stórslyss kæmi. Til þess
að ná fyrsta sæti þurftu stúlkurnar
að ná einkunninni 15,505. Mistök
á dýnunni þýddu mikinn frádrátt
og heildareinkunn var því aðeins
15,000.
„Þetta er mjög fínt. Markmiðið
var að vera í efstu þremur sætunum.
Svo eru úrslitin á föstudaginn og
við gerum bara enn betur þá,“ sagði
Stjörnustelpan Tinna Ólafsdóttir
skömmu eftir að íslenska liðið steig
af sviðinu. Hún segir að stefnan sé
sett á að komast á verðlaunapall.
„Við ætlum að njóta hvers ein-
asta augnabliks og negla öll stökkin
okkar. Við stefnum á fyrstu þrjú
sætin og það yrði geggjað að enda í
fyrsta sæti,“ sagði Tinna. – iþs
Stúlknalandsliðið stefnir á verðlaunapall á morgun
birta Ósk Þórðardóttir og félagar eru til
alls líklegar. Mynd/STEinunn anna
Tveggja turna tal
Ellefu af tólf í kvennaliði Íslands
koma úr tveimur félögum, Stjörn-
unni og Gerplu. Síðarnefnda liðið
einokaði Íslandsmeistaratitilinn í
hópfimleikum um árabil og liðið
varð Evrópumeistari 2010 og 2012.
Nú hafa valdahlutföllin í íslenskum
hópfimleikum breyst. Stjarnan rauf
níu ára sigurgöngu Gerplu þegar
liðið varð Íslandsmeistari 2015 og
Garðbæingar vörðu titilinn í ár. Og þá
á Stjarnan núna sjö fulltrúa í lands-
liðshópnum en Gerpla aðeins fjóra.
Stjarnan:
Andrea Sif Pétursdóttir, fyrirliði
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Íris Arna Tómasdóttir
Jóhanna Marín Benediktsdóttir
Kolbrún Þöll Þórðardóttir
Tinna Ólafsdóttir
Þórey Ásgeirsdóttir
Gerpla:
Edda Sigríður Sigfinnsdóttir
Glódís Guðgeirsdóttir
Sólveig Ásta Bergsdóttir
Valgerður Sigfinnsdóttir
Selfoss:
Eva Grímsdóttir
Við stefnum á fyrstu
þrjú sætin og það
yrði geggjað að enda í fyrsta
sætinu.
Tinna Ólafsdóttir
2
íslensk unglingalið komust í
úrslit á EM í gær.
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 f i m m t U D a G U r34 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
9
-B
0
2
C
1
A
E
9
-A
E
F
0
1
A
E
9
-A
D
B
4
1
A
E
9
-A
C
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K