Fréttablaðið - 13.10.2016, Page 54
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Fyrsti þáttur grínþáttanna Fóstbræðra
birtist á skjánum á þessum degi árið 1997
en þátturinn varð upphaflega til á Stöð 3
og var síðan sýndur á Stöð 2.
Upphaflegir meðlimir gríngengisins á
bak við Fóstbræður voru Jón Gnarr, Sigur-
jón Kjartansson, Helga Braga Jónsdóttir,
Hilmir Snær Guðnason og Benedikt
Erlingsson. Hilmir Snær var aðeins Fóst-
bróðir í eina seríu en Þorsteinn Guð-
mundsson kom í hans stað. Í þriðju seríu
bættist Gunnar Jónsson síðan í hópinn.
Það má með sanni segja að Fóstbræð-
ur hafi slegið í gegn á sínum tíma og geri
enn. Búið er að horfa á atriði úr þáttunum
mörg þúsund sinnum á YouTube og eru
þeir reglulega endursýndir á sjónvarps-
rásum 365.
Margir ódauðlegir karakterar urðu
til í þáttunum, til dæmis Júlli, Gyða Sól
og Helgi, persónulegi trúbadorinn og
má enn heyra fólk á förnum vegi vitna í
þættina og reglulega deila notendur sam-
félagsmiðlanna atriðum úr Fóstbræðrum
á síðum sínum.
Þættirnir slógu ekki aðeins í gegn hjá
áhorfendum heldur hrifsuðu einnig til
sín verðlaun. Þátturinn var valinn leikið
sjónvarpsefni ársins árið 1999 á Eddu-
verðlaunahátíðinni og árið eftir var hann
valinn skemmtiþáttur ársins. Þá hlaut
Jón Gnarr verðlaun sem leikari ársins í
aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í
þáttunum árið 2001 en það ár var Ragnar
Bragason einnig tilnefndur sem leikstjóri
ársins fyrir Fóstbræður.
1 3 . o któ b e r 1 9 9 7
Fóstbræður fóru fyrst í loftið
50 Neró tekur við keis-
aratign í Róm eftir
lát Kládíusar.
1307 Allir must-
erisriddarar í
Frakklandi eru
handteknir að
skipun Filippusar
fagra og pyntaðir
þar til þeir játa á sig
villutrú.
1943 Síðari heimsstyrjöldin: Ítalía segir
fyrrum bandamanni sínum, Þýskalandi,
stríð á hendur.
1987 Kýrin Harpa syndir yfir Önundar-
fjörð frá Flateyri að Kirkjubóli í Val-
þjófsdal á flótta þegar leiða á hana til
slátrunar. Eftir sundafrekið er hún nefnd
Sæunn og fær að lifa lengur.
1992 Haukur Morthens söngvari deyr 68
ára, eftir nær hálfrar aldar söngferil.
1994 Bókmenntaverð-
laun Tómasar Guð-
mundssonar eru
veitt í fyrsta sinn
og hlýtur þau
Helgi Ingólfsson.
1996 Eldgosi,
sem hófst í Gjálp
2. október sama ár,
lýkur.
1997 Gamanþátturinn Fóstbræður hefur
göngu sína á Stöð 2.
2006 Suður-Kóreumaðurinn Ban Ki-
moon er kosinn aðalritari Sameinuðu
þjóðanna.
Merkisatburðir
Ástkær faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Viðar Þorláksson
rafvirkjameistari,
lést 3. október síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Bjarney Viðarsdóttir
Steinunn Viðarsdóttir Pétur Valsson
Sveinn Viðarsson
Jón Þór Viðarsson Erna Friðriksdóttir
Hilmar Viðarsson Kerstin Viðarsson
Anna Sigrún Paul Del Paul
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragna Bjarnadóttir
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar aðfaranótt
laugardagsins 8. október á Deild K1,
Landakoti. Jarðarförin fer fram
frá Laugarneskirkju 18. október klukkan 15. Sérstakar
þakkir til starfsfólksins á K1 á Landakoti fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Sigrún Hermannsdóttir Sveinn Aðalsteinsson
Jónas Hermannsson Anna Sigurlína Karlsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Jóhanna Dagfríður
Arnmundsdóttir Backman
lést 10. október sl. Útför hennar fer
fram frá Háteigskirkju föstudaginn
14. október kl. 15.00.
Inga Jónína Backman Friðrik Páll Jónsson
Ernst Jóhannes Backman Ágústa Hreinsdóttir
Valgerður Bergsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur sonur og bróðir,
Jón Páll Blöndal Sigurðsson
Stafholtsey,
verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju
laugardaginn 15. október kl. 1300.
Sigríður Blöndal
Jóhanna Sigurðardóttir
Pálfríður Sigurðardóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug
og vináttu vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Bjargar Jóhönnu
Benediktsdóttur
Mánatúni 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Vífilsstaða
fyrir góða umönnun og virðingu.
Auður R. Guðmundsdóttir Guðmundur Hermannsson
Bjarni Þ. Guðmundsson Kristín V. Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Ólafíu Jónsdóttur
arkitekts,
Bergstaðastræti 81, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Helga Sigurðssonar læknis
og starfsfólks krabbameinsdeildar 11E á Landspítalanum
við Hringbraut.
Hulda Sigríður Jeppesen
Anna Salka Knútsdóttir Jeppesen
Stefán Jón Knútsson Jeppesen
Páll Jakob Líndal
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórdís Haraldsdóttir
Gaukshólum 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og
Hólakirkju föstudaginn 14. október
klukkan 13.
Hilmar B. Gunnarsson Ann Mary Jörgensen
Kristján Á. Gunnarsson Jóna Björg Pálsdóttir
Haraldur Gunnarsson Katrín Steingrímsdóttir
Gunnar G. Gunnarsson Jóna K. Rögnvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnars Inga Ólsen
Túngötu 12,
Eyrarbakka.
Inga Kristín Guðjónsdóttir
Ingibjörg Gunnarsdóttir Heimir Hjaltason
Þuríður Gunnarsdóttir Friðrik Sigurjónsson
Þórunn Gunnarsdóttir Finnur Kristjánsson
Guðjón Gunnarsson Kristjana Garðarsdóttir
Pétur R. Gunnarsson Rut Björnsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Móðursystir mín,
Randi Træen
kennari,
Grettisgötu 45a,
lést að heimili sínu 4. október
sl. Útförin fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 14. október nk. og hefst
athöfnin kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingunn Edvardsen
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Svanhildur Stefánsdóttir
lést á Fossheimum, Selfossi,
fimmtudaginn 6. október.
Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju mánudaginn
17. október kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jón Jóhann Vigfússon
Steinunn Kristín Jónsdóttir
Ingi Þór Jónsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og vinur,
Stefán Þórisson
frá Hólkoti í Reykjadal,
verður jarðsunginn
frá Einarsstaðakirkju laugardaginn
15. október kl. 14.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á að láta Skógarbrekku á Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Húsavík eða Harmonikkufélag Þingeyinga
njóta þess.
Aðalheiður Stefánsdóttir Sveinn B. Sveinsson
Þórir Stefánsson Svanhvít Jóhannesdóttir
Stefán Stefánsson Lovísa Leifsdóttir
Olga Ásrún Stefánsdóttir Sigurjón B. Kristinsson
Gunnhildur Stefánsdóttir Leifur Hallgrímsson
Hólmfríður F. Svavarsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Jón Gnarr, Benedikt Erlingsson, Sigurjón Kjartansson, Hilmir Snær, Helga Braga og Benedikt Erl-
íngsson skipuðu fyrst Fóstbræður en síðar einnig Þorsteinn Guðmundsson og Gunnar Jónsson.
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r36 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð
tímamót
1
3
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
9
-9
C
6
C
1
A
E
9
-9
B
3
0
1
A
E
9
-9
9
F
4
1
A
E
9
-9
8
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K