Fréttablaðið - 13.10.2016, Side 72

Fréttablaðið - 13.10.2016, Side 72
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F isk islóð 39 M I N N I N G A R O G L E Y N DA R M Á L Frá sumarbústöðunum sjást Nesjaey og Sandey stinga kryppum sínum upp úr vatninu og stundum siglir þar bátur. Fólk er hingað komið til að vera í friði með minningar sínar og leyndarmál. Kvöldin eru orðin dimm og það er erfitt að finna þá sem týnast. Hestvík er dularfull saga úr Grafningnum, og þriðja skáldsaga höfundar fyrir fullorðna. „Yfirborðið er slétt og fellt en undir niðri kraumar myrkur. Frábærlega skrifað.“ ÁRNI MAT THÍASSON Þrátt fyrir að vera orðin fimmtug er söngkonan Janet Jackson nú ólétt að sínu fyrsta barni. Þetta kemur fram í nýjasta hefti People Magazine og fylgir fréttunum mynd af Janet þar sem hún er öll klædd í hvítt og skartar afar glæsilegri óléttubumbu. Slúðursíðurnar hafa velt sér upp úr málinu lengi en Jackson frestaði tónlistarferðalagi sínu í apríl síðast- liðnum og sagði ástæður þess per- sónulegar. Í myndbandi á Twitter við það tækifæri sagðist hún ásamt eigin- manni sínum „vera með plön um fjölskyldu“ svo að þessar fréttir lágu í loftinu síðan í vor. Reyndar hafði slúðurfréttamiðillinn Entertain- ment Tonight náð söngkonunni þar sem hún var að kaupa barnaföt fyrr á árinu en að öðru leyti höfðu engar staðreyndir í málinu komið fram síðan í vor. Eiginmaður hennar er Wissam Al Mana en hann er milljarðamær- ingur frá Katar. Slúðursíðurnar velta fyrir sér hvort það verði núna trend að eign- ast barn eftir fertugt eða fimmtugt en söngkonan Sophie B. Hawkins eignaðist einnig barn þegar hún var fimmtug – en hún átti þó barn fyrir. Janet Jackson er ólétt Janet Jackson varð fimmtug á þessu ári og ákvað af því tilefni að eignast sitt fyrsta barn. Nordic Photos/Getty Trendið Regnkápur og regnjakkar Haustið virðist ætla að verða venju fremur votviðrasamt hér á Fróni og því ekki úr vegi að sníða sér stakk eftir vexti, eða öllu heldur sníða regnstakk eftir veðri. Regnkápur og regnjakkar eru þeim kostum búin að henta bæði afskaplega vel til að verjast veðri og vindum og geta líka verið afar fallegar flíkur. Hér sjáum við nokkur dæmi um það heitasta í regnfatatískunni í dag. Þessi grái regnjakki hentar vel til að draga hettuna vel yfir höfuðið eins og oft er nauðsynlegt. Líklega færi betur á að klæðast síð- buxum með þessari grænu regnkápu í íslenska haustveðrinu, en falleg er hún. hvítir regnjakkar eru flottir. Það mætti vera meira af þeim. 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r54 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð 1 3 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A E 9 -A 6 4 C 1 A E 9 -A 5 1 0 1 A E 9 -A 3 D 4 1 A E 9 -A 2 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 8 0 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.