Fréttablaðið - 02.07.2016, Blaðsíða 4
Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur og nýkjörinn forseti
Íslands
sagði í viðtali
daginn eftir
kjördag að hann
vildi skapa
umræðu í sam-
félaginu og ræða
um það sem hann
fyndi að fólkið vildi
ræða um. Ekki væri útilokað að sú
umræða hæfist að einhverju leyti
á samfélagsmiðlum. Hann sagðist
þó ekki vera búinn að gera það
upp við sig hvort hann yrði forseti
á Facebook. Ábyrgðarmestu ár
ævinnar væru að fara í hönd og
þess vegna vildi hann stíga varlega
til jarðar.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
formaður BHM
sagði launa-
hækkun æðstu
embættismanna
og þjóðkjörinna
fulltrúa, sem heyra
undir kjararáð, endurspegla að það
hefði verið vond ákvörðun að setja
lög á kjaradeilu átján aðildarfélaga
BHM og færa í gerðardóm. Kröfur
um að menntun yrði metin til
launa hefðu verið málefnalegar og
ríkið átt að geta samið við félagið.
Aðrir á vinnumarkaði hefðu gert
niðurstöðu gerðardóms að sinni.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
formaður velferðarnefndar Alþingis
og þingmaður Samfylkingar
sagði lækkun vaxta-
bóta alvarlega
þróun. Lækkunin
væri meiri en
skýrðist af minni
skuldsetningu
heimila. Verið
væri að auka tekju-
tengingu þannig að sífellt minni
hópur fengi vaxtabæturnar.
Þrjú í fréttum
Nýr forseti,
hærri laun og
minni bætur
Tölur vikunnar 26.06.2016 - 02.07.2016
20
prósenT
75,7% 10.
sæTið
4,3 milljarða
króna greiðir
ríkissjóður í
vaxtabætur í ár. Árið 2012
var upphæðin 7,6 milljarðar
króna og nemur lækkunin um
43 prósentum á fimm árum.
kosningabærra manna
greiddu atkvæði í forsetakosningunum.
1 milljón
króna
hafa einstaka læknar
fengið í styrk frá lyfja
fyrirtækjum vegna endur
menntunar eða annarra verkefna.
7,5 prósenta
launahækkun minnst fá æðstu emb
ættismenn og þjóðkjörnir fulltrúar
sem heyra undir kjararáð. Heildar
laun ráðuneytisstjóra forsætis
ráðuneytisins verða 1,8 milljónir á
mánuði en forsætisráðherra fær 1,6
milljónir króna.
131
hefur verið fluTTur úr landi
með lögregluvaldi það sem af er
þessu ári að beiðni Útlendingastofn
unar. Í fyrra var fjöldinn 123.
þjóðarinnar verða
orðin 65 ára og
eldri eftir 20 ár
samkvæmt spá
Hagstofu Íslands.
er sæti Íslands í vísitölu
yfir velferð samfélaga.
Landið fellur um sex
sæti milli ára og er
neðst Norðurlanda.
heilbrigðismál Læknar sem fá smá-
vægilegar gjafir frá lyfjafyrirtæki eru
líklegri til þess að vísa á lyf frá við-
komandi lyfjafyrirtæki. Þetta sýna
niðurstöður nýrrar rannsóknar sem
birtist í júníútgáfu Tímarits banda-
rísku læknasamtakanna (e. The
Journal of the American Medical
Association).
Samkvæmt rannsókninni virðast
greiddar máltíðir heilt yfir vera um 80
prósent þeirra gjafa sem heilbrigðis-
starfsfólkið sem rannsóknin tók til
fær frá lyfjafyrirtækjunum. Tilgangur
rannsóknarinnar var að rannsaka
tengsl milli slíkra máltíða og ávísaðra
hjarta- og þunglyndislyfja.
Niðurstaða greinarhöfunda er að
þessi tengsl séu fyrir hendi, jafnvel
þótt máltíðin sé einungis 20 dala
(jafnvirði 2.400 króna) virði. Ávís-
unum fjölgar svo eftir því sem fleiri
og dýrari máltíðirnar eru. Greinar-
höfundar taka fram að þó þeim hafi
tekist að sýna fram á tengsl sé ekki
hægt að fullyrða að orsakatengsl séu
fyrir hendi.
Í greininni segir að leiðbeinandi
reglur frá samtökum amerískra
lækna og samtökum lyfjaframleið-
enda þar í landi geri ráð fyrir að
gjafir til lækna megi nema allt upp
undir 100 dollurum, andvirði um 12
þúsund króna. Ráðlegt sé að fylgjast
vel með greiðslum og gjöfum til
lækna í Bandaríkjunum.
Mælt er með því fyrirkomulagi
sem evrópskir lyfjaframleiðendur
hafa sett sér um að birta upplýsingar
um greiðslur til lækna, þótt þar sé
matur og drykkir undanskilið.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær eru dæmi um að lyfjafyrirtæki
hafi greitt einstökum læknum hér
á landi hundruð þúsunda í styrki
vegna endurmenntunar eða annarra
verkefna. Í einstaka tilfellum hafa
styrkveitingar farið yfir eina milljón
króna. Oft er um að ræða ferðir á ráð-
stefnur erlendis eða annað slíkt.
Upplýsingar um þetta voru birtar
á vefsíðu Frumtaka, samtaka frum-
lyfjaframleiðenda á Íslandi, fyrr í
vikunni. Þetta er í fyrsta sinn sem
upplýsingarnar eru birtar.
Formaður Læknafélags Íslands
sagði það sína skoðun að þær upp-
hæðir sem um væri að ræða hefðu
ekki áhrif á dómgreind lækna.
„Á þessu geta menn haft mismun-
andi skoðanir og ég held að þetta séu
upphæðir sem rugli alls ekki dóm-
greind lækna eða valdi því að menn
upplifi einhverja óeðlilega hollustu
við lyfjafyrirtækið,“ segir Þorbjörn
Jónsson, formaður Læknafélags
Íslands, en bætir því við að styrkirnir
geti hins vegar verið mikilvægir fyrir
endurmenntun lækna.
jonhakon@frettabladid.is
Rannsókn bendir til tengsla
milli gjafa og lyfjaávísana
Erlend rannsókn sýnir að læknar sem þiggja gjafir frá lyfjafyrirtækjum séu líklegri til að vísa á lyf frá sömu
framleiðendum. Þó ekki sýnt fram á orsakatengsl. Dæmi eru um að íslenskir læknar fái háar fyrirgreiðslur.
Dæmi eru um að læknar hafi fengið hundruð þúsunda króna í styrki frá lyfjafyrirtækjum. Fréttablaðið/anton brink
Ég held að þetta séu
upphæðir sem rugli
alls ekki dómgreind lækna.
Þorbjörn Jónsson,
formaður Lækna
félags Íslands
breTland Michael Gove, dómsmála-
ráðherra og frambjóðanda til emb-
ættis formanns Íhaldsflokks Breta,
var í gær líkt við undirförlu sjón-
varpspersónurnar Francis Urquhart
og Frank Underwood í bresku og
bandarísku útgáfum þáttanna House
of Cards. Var það meðal annars gert
í BBC, Washington Post og The Tele-
graph.
Gove, sem hugðist styðja Boris
Johnson í formannsstól, tilkynnti
í fyrradag að hann byði sig sjálfur
fram. Johnson væri ekki réttur leið-
togi fyrir Bretland en sá sem verður
formaður flokksins tekur við for-
sætisráðherraembættinu af David
Cameron.
The Telegraph sagði Gove hafa
hringt í Lynton Crosby, kosninga-
stjóra Johnsons, og sagt honum frá
ætlan sinni. Crosby og Johnson voru
þá á lokametrunum við að undirbúa
tilkynningu Johnsons um framboð
en í kjölfarið hættu þeir við. Þá segir
The Telegraph Johnson og Gove
hafa átt að mynda saman svokall-
að draumaframboð en þeir börðust
einna harðast fyrir Brexit, aðskilnaði
Bretlands frá Evrópusambandinu,
sem samþykktur var í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í síðustu viku.
Samflokksmenn Goves hafa einnig
gagnrýnt hann fyrir ákvörðun hans.
Anna Soubry, viðskiptaráðherra
Bretlands, sagði í gær að Gove hefði
hegðað sér á vítaverðan hátt. Hvatti
hún þá Gove til að hætta við og leyfa
flokksmönnum að fylkja sér að baki
helsta mótframbjóðanda hans, inn-
anríkisráðherranum Theresu May.
Gove vísaði ásökunum hins vegar
á bug í gær. Sagðist hann ekki bjóða
sig fram vegna persónulegs metnaðar
heldur vegna sannfæringar sinnar um
hvað væri rétt fyrir Bretland. – þea
Atburðarásin eins og í House of Cards
Michael Gove, dómsmálaráðherra, er líkt við Frank Underwood. norDicphotos/aFp
2 . j ú l í 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
2
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
4
-B
1
E
C
1
9
E
4
-B
0
B
0
1
9
E
4
-A
F
7
4
1
9
E
4
-A
E
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
1
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K