Fréttablaðið - 02.07.2016, Blaðsíða 70
Bragi Halldórsson
206
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
4 1 7 5 6 3
3 6 8 1
5 3 4 9 2
6 7 5 8
2 4 3 6 7
8 1 2 7 3 5
3 5 2 4 7
1 2 4 9 5
7 4 3 6 1
1. Hvað hefur farið kringum allan
heiminn en þó setið kyrrt í sama
horninu?
2. Ég flýg áfram, en er hvorki fugl,
flugvél eða eldflaug. Ég snýst líka
og þó er ég hvorki vagn né hjól. Og
hvort sem þú stendur, situr, liggur
eða sefur, þá flyt ég þig óteljandi
kílómetra án þess að þú takir eftir
því. Hver er ég?
3. Hvað er það sem kemst á
skemmstum tíma um allan heim,
en er þó alltaf heima.
4. Ég ferðast um allan heiminn, það
er spýtt á mig og þó geta menn
ekki verið án mín. En þegar ekki er
lengur hægt að nota mig, kunna
menn loks að meta mig. Þekkirðu
mig?
Gátur
Hvað finnst þér skemmtilegast
við bækur? Að komast að því
hvað gerist í þeim.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað er hún? Hún var um hvolpa
og heitir Hvolpalíf.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Já, hún
heitir Lionel Messi: eins og hann
er.
Hvers konar bækur þykja þér
skemmtilegar? Mér finnst fót-
boltabækur skemmtilegar og
spennubækur sem eitthvað
spennandi gerist í.
Í hvaða skóla gengur þú? Ár-
bæjarskóla. Ég er að fara í 5. bekk.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
stundum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótbolti.
Ef þú ætlaðir að skrifa bók, um
hvað ætti hún að vera og hvað
myndi hún heita? Ég bara veit
það ekki! Ég hef ekkert spáð í það.
Lestrarhestur vikunnar: Guðný Lóa
Guðný Lóa Guðmundsdóttir er á Spáni og nær í bókina þegar hún kemur heim.
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja
lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og setja í pott sem dregið er úr vikulega.
Lestrarhestur vikunnar hlýtur bók að launum.
Hefur þú lengi haft áhuga á fót-
bolta, Alexander? Svona frá sex
ára aldri. Núna er ég að æfa hjá
í Víkingi í Reykjavík, 4. flokki,
með vinum mínum og bekkjar
félögum í Fossvogsskóla.
Fylgja því ekki ferðalög? Jú, ég fór
til Spánar fyrir þremur vikum.
Það var rosalega gaman en þar
var líka mjög heitt og því erfitt
fyrir okkur að spila.
Skoðuðuð þið eitthvað í ferð-
inni? Við fórum í vatnsrenni
brautargarð og á ströndina, í
moll og á markað. Já, svo fórum
við að skoða Valenciafótbolta
völlinn. Hann er mjög fínn, með
risastórar áhorfendastúkur.
Voruð þið í Valencia? Nei, við
vorum í svona 25 mínútna
akstursfjarlægð frá, á milli Beni
dorm og Alicante.
Eru einhver fleiri mót sem þú
hefur farið á nýlega? Það var eitt
fyrir nokkrum mánuðum sem
heitir Reykjavíkurmótið. Ég er
í tveimur liðum og þeim gekk
vel, þau urðu bæði Reykjavíkur
meistarar.
Ætlarðu að gera eitthvað
skemmtilegt í sumar annað en
spila fótbolta? Ég er að fara til
Noregs að hitta pabba minn og
verð hjá honum í sex vikur. Það
verður gaman. Ég á vini þar úti
líka. Svo byrja ég í Réttarholts
skóla í haust.
Áttu þér uppáhaldsfótbolta-
menn? Já, Gylfa Sigurðsson og
svo held ég líka upp á Neymar
sem spilar með Barcelona.
Hvernig heldur þú að leikurinn
fari á morgun? Frakkland er
með mjög gott lið en ég vona að
Ísland vinni þetta.
Heldur mest upp á Gylfa
Alexander Maron Valsson er þrettán ára og mikið fyrir fótbolta.
Hann æfir með Víkingi í Reykjavík í 4. flokki og er nýlega kominn úr
fótboltaferð til Spánar. Þar var gaman – en ansi heitt.
„Frakkland er með mjög gott lið en ég vona að Ísland vinni þetta,“ segir Alexander
bjartsýnn. FréttAbLAðið/HAnnA
1. Frímerki, 2. Hnötturinn, 3. Hugurinn, 4. Frímerki
LAuSn
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R34 h e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
0
2
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
4
-B
6
D
C
1
9
E
4
-B
5
A
0
1
9
E
4
-B
4
6
4
1
9
E
4
-B
3
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
1
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K