Fréttablaðið - 02.07.2016, Blaðsíða 12
neymar framlengdi
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
neymar hefur skrifað undir nýjan
fimm ára samning við Barcelona
og mun nýi samningurinn ná
til 30. júní 2021. neymar hefur
spilað í þrjú ár með Barcelona og á
þessum þremur tímabilum hefur
hann skorað 85 mörk fyrir félagið
og unnið alls átta titla.
eins og venjan er með fótbolta-
menn á Spáni þá er alltaf klausa í
samningi þeirra sem gefur öðrum
félögum kost á því að kaupa upp
samninginn.
Í tilfelli neymars eru það engar
smáupphæðir. Það er hægt að
kaupa nýja samninginn hans fyrir
200 milljónir evra á fyrsta ári, 222
milljónir evra á öðru ári og svo
fyrir 250 milljónir evra á þremur
síðustu árum hans. 250 milljónir
evra eru 34 milljarðar í íslenskum
krónum.
Í dag
Laugardagur:
08.55 F1 æfing Sport
11.55 Tímataka Sport
14.00 Keflavík - Huginn Sport 2
14.30 Formula E: London Sport
16.00 Bridgestone Golfstöðin
20.00 Cambria golf Sport 4
22.00 Sumarmessan Sport
Sunnudagur:
11.30 F1: Keppni Sport
14.00 Breiðablik - ÍBV Sport
14.30 Formúla E: London Sport 2
16.00 Bridgestone Golfstöðin
20.00 Cambria golf Sport 4
22.00 Sumarmessan Sport
zlatan kominn til united
manchester united hefur stað-
fest komu zlatans ibrahimovic til
félagsins.
zlatan greindi frá því í gær að
hann væri á leið til united og
félagið hefur staðfest að sænski
framherjinn muni klæðast búningi
þess á næsta tímabili.
talið er að hinn 34 ára gamli
zlatan hafi skrifað undir eins árs
samning við united. Hann lék
síðast með Paris Saint-germain
og varð fjórum sinnum franskur
meistari með liðinu.
fyrir skömmu birtist mynd-
band af zlatan í united-búningi á
twitter-síðu united þar sem hann
kynnir sig til leiks með orðunum
„it’s zlatan time.“
Hjá united endurnýjar zlatan
kynnin við knattspyrnustjórann
José mourinho en saman urðu þeir
ítalskir meistarar með inter 2009.
united er áttunda liðið sem
zlatan spilar með á ferlinum. Hann
lék áður með malmö, ajax, Juven-
tus, inter, Barcelona, aC
milan og PSg.
Þá lék zlatan 116
landsleiki fyrir Sví-
þjóð og skoraði 62
mörk. Hann lagði
landsliðsskóna á
hilluna eftir 1-0
tap fyrir Belgíu á
em í frakklandi í
síðasta mánuði.
EM2016
http://www.seeklogo.net
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Fótbolti „Blessaðir, strákar,“ segir
landsliðsfyrirliðinn aron einar
gunnarsson brosandi þegar nokkr-
ir fulltrúar íslenska fjölmiðlahóps-
ins sem fylgja strákunum okkar eftir
í frakklandi koma inn í herbergi á
hóteli í annecy þar sem fyrirlið-
inn bíður viðtals. fjórir dagar eru
síðan hann hann leiddi landsliðið
til sigurs á englandi og stóð svo
fremstur og leiddi íslensku þjóðina
í víkingaherópinu sem hefur vakið
heimsathygli. fyrirliðinn þarf að
bíða í fimm mínútur á meðan fjöl-
miðlamenn koma sér fyrir. Hann
bíður rólegur og fúlskeggjaður.
„Þessir dagar eru búnir að vera
ótrúlegir og lyginni líkastir í raun-
inni. Þetta er eitthvað sem maður
mun muna eftir þangað til maður
deyr,“ segir aron spurður um
dagana eftir sigurinn á englandi.
dagana sem enginn Íslendingur
mun gleyma. Þessi sigur hefur
vakið heimsathygli, en á hverjum
degi koma strákarnir okkar fyrir í
stærstu fréttaskýringa- og skemmti-
þáttum heims.
„Það fíla allir þessa sögu sem
við erum að skrifa og virða okkur
meira en áður sem ég tel jákvætt.
Við höfum öll saman rifið Ísland
upp á hærra plan, hvort sem um
ræðir fjölmiðlamenn, leikmenn,
stuðningsmenn eða þjálfara. Það
eru allir á sama plani og allir að róa
í sömu átt. Við erum öll að bæta
okkur í öllu sem er jákvætt fyrir
framtíð íslenska fótboltans,“ segir
aron einar.
Viljum gera þetta aftur
gleðin var svo mikil eftir englands-
leikinn að okkar menn gleymdu sér
aðeins á skýinu og komu ekki niður.
eða þannig hljómaði það þegar lars
lagerbäck sendi strákunum væna
pillu á blaðamannafundi á mið-
vikudaginn. Án þess að nokkur
maður hefði vitneskju um atvikið
sagði lars frá því að nokkrir leik-
menn hefðu mætt of seint í kvöld-
mat og ekki fylgt settum reglum.
reglurnar hjá lars og Heimi eru
sárafáar en eftir þeim skal farið.
„Þetta var smá misskilningur
en ég hef ekki rætt þetta við lars,“
segir aron einar beðinn um að
útskýra þetta mál. „Það voru ein-
hverjir seinir þarna og héldu að við
þyrftum ekki að borða á hótelinu.
Það heldur okkur bara á tánum [að
fá svona skilaboð frá lars, innsk.
blm.]. Hann sendir okkur þarna
pillu í fjölmiðlum og allt í góðu
með það. Hann og Heimir ráða.
Þetta kveikti bara í mönnum aftur.
Hann veit alveg hvað hann er að
gera, karlinn.“
aron segir liðið enn vera að læra.
ekki má gleyma að lars hefur farið
á sjö sinnum fleiri stórmót en allt
íslenska landsliðið til samans.
Svona hluti ganga öll lið í gegnum
og hvað þá á sínu fyrsta stórmóti.
menn lifa og læra sem er gott því
þessi hópur ætlar sér á fleiri stór-
mót. fyrirliðinn telur alveg eins
gott að byrja að hugsa um undan-
keppni Hm 2018 sem allra fyrst.
„Við erum búnir að finna smjör-
þefinn af þessu núna og því er full-
kominn tími núna til að byrja að
ræða næstu undankeppni. Hana
þurfum við að byrja vel. Við þurfum
að vera á tánum hvað hana varðar
því við erum í virkilega erfiðum
riðli, en við viljum 100 prósent
komast á Hm,“ segir aron einar og
bætir við:
„maður vill upplifa þetta aftur
og ég veit að þið viljið það,“ segir
aron og bendir á þremenningana
sem spyrja hann spjörunum úr í
20 mínútur. allir þrír kinka kolli.
„Það verður erfitt að koma sér aftur
niður á jörðina en við þurfum að
gera það eins fljótt og hægt er.“
Kunna að meta stuðninginn
eins og margir vita missti aron
einar af fæðingu sonar síns, Óli-
vers, í mars 2015 því hann var upp-
tekinn með landsliðinu að vinna
kasakstan á leið liðsins á em. Það
var auð vitað erfið ákvörðun: „eftir
það ákvað ég bara að gera þetta
nógu andskoti vel,“ segir aron
einar. „Ég vildi ekki líta til baka og
hugsa: „djöfull, af hverju gerði ég
þetta?“.“
aron einar er að spila meiddur.
Hann þarf að fara í aðgerð eftir mótið
og enginn veit hvenær hann verður
klár að spila fyrir Cardiff, nú ef hann
verður ekki keyptur eitthvert annað.
Hann er stoltur fyrirliði stoltrar þjóð-
ar og gerir allt fyrir Ísland. Hann kann
líka að meta stuðninginn að heiman.
„maður fær skilaboð á instagram
og svona sem segir okkur að fólk
kann að meta það sem við erum að
gera. Það er bara okkar heiður að vera
hérna og við kunnum að meta allan
þennan stuðning. Við fengum allir
snapptjött og myndir af arnarhóli
alveg pakkfullum. Það var eitthvað
sem hitti beint hingað,“ segir aron
einar gunnarsson og ber sér á brjóst
eins og víkingurinn sem hann er.
Hittir beint í hjartastað
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson missti af fæðingu sonar síns þegar íslenska landsliðið var á
leið á EM. Hann ætlaði sér stóra hluti á Evrópumótinu í Frakklandi svo það yrði ekki eitthvað sem hann
sæi eftir. Hann er stoltur fulltrúi stoltrar þjóðar. Á sunnudaginn er í boði sæti í undanúrslitum EM 2016.
Aron Einar Gunnarsson í sigurvímunni eftir sigurinn á Frökkum í Nice á mánudagskvöld. Hann er að spila meiddur á EM en lætur það ekki stoppa sig. FréTTABLAðið/ViLHELM
Við höfum öll
saman rifið Ísland
upp á hærra plan, hvort sem
um ræðir fjölmiðlamenn,
leikmenn, stuðningsmenn
eða þjálfara. Það eru allir á
sama plani og allir að róa í
sömu átt.
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði
Nýjast
EM 2016 í Frakklandi í gær
8 liða úrslit
Wales - Belgía 3-1
0-1 Radja Nainggolan (13.), 1-1 Ashley
Williams (30.), 2-1 Hal Robson-Kanu (55.),
3-1 Sam Vokes (85.).
Ævintýri Wales heldur áfram og
liðið mun spila við Portúgal í und-
anúrslitum mótsins.
2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R12 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
0
2
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
4
-C
0
B
C
1
9
E
4
-B
F
8
0
1
9
E
4
-B
E
4
4
1
9
E
4
-B
D
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K