Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 2
Veður
Í dag verður norðanstrekkingur og
rigning af og til um landið norðan-
vert, en hægari vindur og skýjað með
köflum og stöku skúrir sunnan til. Hiti
frá 6 stigum fyrir norðan, upp í 16 stig
syðst. Sjá Síðu 36
Hvatning frá Kaupmannahöfn
KRÍT
7. júlí í 11 nætur
Netverð á mann frá kr. 145.395 m.v. 2 fullorðna og
2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 189.895 m.v.
2 fullorðna í stúdíó.
Porto Platanias
Village
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.Frá kr.
145.395
m/allt innifalið
Allt að
30.000 kr.
Ein
vinsælasta
gistingin
afsláttur á mann
Náttúra „Þær þekja alveg búkinn
á fullorðnum einstaklingi og eru
risastórar,“ segir Hafdís Gísladótt-
ir, rekstrarstjóri Ylstrandarinnar í
Nauthólsvík, um marglyttur sem
eru mikið á sveimi í Nauthólsvík
þessa dagana.
Tegundirnar sem um ræðir
eru brennihvelja og bláglytta en
brennihvelja er stærsta þekkta
marglyttutegundin. Síðustu vikur
hefur fólk sem stundar sjósund
brennt sig víða á líkamanum eftir
að hafa rekist á marglytturnar.
Nýlega þurfti að kalla til sjúkrabíl
eftir að kona brenndi sig á mar-
glyttu en ofnæmisviðbrögð hennar
urðu mikil.
„Armarnir geta orðið alveg
gríðarlega langir og við lendum oft
í því að fólk brennir sig á þeim. Þær
slengja örmunum í fólk og þá koma
brunaför á húðina,“ segir Hafdís en
bætir við að viðbrögð hvers og eins
séu einstaklingsbundin. „Sumir
finna ekki mikið til en aðrir bólgna
svakalega og sýna mikil ofnæmis-
viðbrögð.“
Hafdís segir þó ekki ástæðu til að
banna fólki að synda í sjónum enda
sé fólk alltaf á eigin ábyrgð í sjó-
sundi. „Hins vegar höfum við verið
að vara fólk við og erum til dæmis
með skilti hjá afgreiðsluborðinu
þess efnis að það séu marglyttur á
sveimi.“
Hafdís segir fólk enn stunda
sjósund þótt það viti af mar-
glyttunum. „Ég fór til dæmis með
manninum mínum í fyrradag og
hann rakst á eina sem var risastór.
Brunanum fylgdi sviði og óþægindi
í sólarhring á eftir.“
Brennihvelja lifir í köldum sjó í
Norður-Atlandshafi, Norður-Íshafi
og Norður-Kyrrahafi.
„Þetta er ekkert einsdæmi en sam-
ferða hlýnun sjávar er eins og það
sé meira um hveljur á heimsvísu. Ég
man eftir því fyrir nokkrum árum
þegar brennihveljur fyrir austan
ollu tjóni í fiskeldi,“ segir Ástþór
Gíslason, sjávarlíffræðingur á Haf-
rannsóknastofnun.
Ástþór segir marglytturnar ekki
beint hættulegar sjósundfólki en
þær brenni þó og valdi ertingu. Því
þurfi fólk að vara sig. Ef skilyrði
séu hagstæð geti þeim fjölgað hratt
staðbundið. nadine@frettabladid.is
Risamarglyttur brenna
sundfólk í Nauthólsvík
Marglyttan brennihvelja er áberandi í Nauthólsvík þessa dagana. Það er stærsta
þekkta marglyttutegund heims. Kona sem brenndi sig á marglyttu og fékk slæm
ofnæmisviðbrögð var flutt á brott í sjúkrabíl. Fólk stundar þó áfram sjósund.
Brennihveljum hefur fjölgað á heims-
vísu. Sérstakt viðvörunarskilti er nú
vegna þeirra í Nauthólsvík.
Þessir sundmenn í Nauthólsvík í gær virtust ekki verða varir við risamarglyttuna
sem hringurinn er dreginn um og nánast straukst við þá. FréttaBlaðið/HaNNa
ViðSkipti Seðlabankinn hefur
ákveðið að heimila íslenskum
lífeyrissjóðum að fjárfesta fyrir
40 milljarða króna erlendis á
næstu þremur mánuðum.
Um umtalsverða rýmkun á
fjárfestingarheimild lífeyris-
sjóða erlendis er að ræða en
síðasta árið hafa þeir samtals
fengið að fjárfesta 40 milljarða
króna á erlendri grund. Til skoð-
unar er að heimila aðra 40 millj-
arða verði gjaldeyrisinnstreymi
mikið næstu mánuði.
Gjaldeyrisinnstreymi það
sem af er þessu ári, ásamt minni
óvissu um þróun greiðslujafnað-
ar í framhaldi af aflandskróna-
útboði og nauðasamningum
slitabúa, hefur skapað svigrúm
til frekari fjárfestingar lífeyris-
sjóða og annarra vörsluaðila
séreignarsparnaðar erlendis, að
sögn Seðlabankans. – ih
Rýmka höftin á
lífeyrissjóðum
SlyS Fjögurra ára drengur lést þegar
eldur kom upp í húsbíl á Stokkseyri
á þriðja tímanum í gær. Allt tiltækt
lið slökkviliðs og lögreglu var kallað
á staðinn en bifreiðin var alelda
þegar hjálp barst.
Drengurinn var að leik í bílnum
þegar eldurinn kom upp.
Lögreglan á Suðurlandi, ásamt
tæknideild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, vinnur að rannsókn
slyssins og eldsupptaka. Lögregla
gefur ekki frekari upplýsingar að
svo stöddu. – sks
Barn lést í bruna
DómSmál Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur tekið til skoðunar kæru
Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más
Sigurðssonar, Magnúsar Guðmunds-
sonar og Ólafs Ólafssonar vegna Al
Thani-málsins. Mannréttindadóm-
stóllinn spyr nú íslenska ríkið um
málsmeðferðina og hvort hún hafi
með öllu verið réttlát.
Hreiðar Már Sigurðsson var dæmd-
ur til fangelsisvistar í fimm og hálft
ár, Sigurður Einarsson fékk fjögurra
ára dóm. Ólafur Ólafsson og Magnús
Guðmundsson hlutu fjögur og hálft
ár. Beiðni fjórmenninganna um
endurupptöku hér á landi var hafnað.
Ríkið hefur svarfrest til 10. október.
Mannréttindadómstóllinn spyr hvort
gengið hafi verið úr skugga um hæfi
Árna Kolbeinssonar dómara. Einnig
hvort brotið hafi verið á rétti fjór-
menninganna til réttlátrar málsmeð-
ferðar, varðandi vitnaleiðslur, and-
mælarétt og jafnræði málsaðila. Þá er
spurt um hleranir lögregluyfirvalda á
símum fjórmenninganna. – snæ
Al Thani-málið
í nánari skoðun
Þær slengja örm-
unum í fólk og þá
koma brunaför á húðina.
Hafdís Gísladóttir, rekstrarstjóri
Ylstrandarinnar í Nauthólsvík
al-thani málið í dómssal.
FréttaBlaðið/DaNíel
Danska dagblaðið Politiken hefur haldið með íslenska karlalandsliðinu frá því að EM í knattspyrnu hófst. Fyrir annan leik liðsins réðst Politiken
í að gera kennslumyndband um íslenska þjóðsönginn. Í gær komu stuðningsmenn Íslands saman á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn fyrir tilstilli
Politiken og æfðu víkingaklappið sem hefur gert íslenska landsliðið heimsfrægt. MyND/tHoMaS BorBerg/PolFoto
2 . j ú l í 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
2
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
4
-9
E
2
C
1
9
E
4
-9
C
F
0
1
9
E
4
-9
B
B
4
1
9
E
4
-9
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
1
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K