Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 6

Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 6
Skotárás hryðjuverkahóps Kjaramál Verði nýjustu hækkanir kjararáðs á launum embættismanna og þjóðkjörinna einstaklinga ekki dregnar til baka er það ávísun á kröfu um leiðréttingar frá öðrum hópum. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins. Gylfi bendir í Facebook-færslu í gærmorgun á að ákvörðun kjara- ráðs komi um viku eftir lög Alþingis á flugumferðarstjóra sem hafi verið með væntingar um „leiðréttingu“ sinna kjara. „Ef Alþingi verður ekki kallað saman nú þegar þar sem forsætis- ráðherra setur fram frumvarp sem afturkalli þessa vitleysu er alveg ljóst að kjaradómur hefur kallað yfir okkur nýja bylgju leiðréttinga einstakra hópa!“ segir Gylfi á Facebook. „Það verður ekki þannig að þeir tekju- hæstu í þessu samfélagi fái einhverja sérstaka meðferð. Við ætlumst til þess að þessir aðilar deili kjörum með almenningi í þessu landi. Ef ekki þá munum við deila kjörum með þeim.“ Gylfi segir líklegt að fleiri ákvarð- ana sé að vænta frá kjara ráði, enda laun ráðuneytisstjóra orðin allnokkru hærri en laun ráðherra. Sérstök breyt- ing kjararáðs á kjörum ráðuneytis- stjóra tekur gildi um næstu mánaða- mót. Þá hækka laun þeirra um 22,3 til 23,3 prósent til viðbótar við hækkun- ina sem allir sem undir kjararáð heyra fengu um síðustu mánaðamót, en um 31 til 32 prósent sé miðað við laun þeirra fyrir þann tíma. „Þessi úrskurður kemur í kjölfar ákvörðunar þessa sama ráðs varðandi dómara í desember síðastliðnum, en þeir hafa verið færðir nærri tveimur milljónum króna á mánuði.“ Gylfi segist þá hafa bent á að svona ákvarð- ana kynni að vera að vænta á kom- andi mánuðum. Búast megi við fyrir 1. ágúst að laun forseta Íslands verði hækkuð og verði gengið til kosninga í haust muni þingmenn og ráðherrar fá svipaða „leiðréttingu“ launa. „Þetta er frábært framlag Kjararáðs til þess vandasama verkefnis sem aðilar vinnumarkaðar hafa verið að vinna að undanfarna mánuði að bæði móta og vinna að því að ná samstöðu um nýtt samningamódel.“ Kjararáð ætli greinilega að „leiðrétta aðalinn“ áður en þessi aðferðafræði við gerð kjarasamninga verði að veruleika. Í greinargerð kjararáðs með ákvörðun um launahækkun ráðu- neytisstjóra er vísað til upplýsinga frá ráðuneytunum um að skipulag þeirra hafi breyst og þau séu stærri og öflugri en áður með flóknari verkefni. Mat ráðuneytisstjóranna sé að laun þeirra eigi að vera sambærileg launum hæstaréttardómara. Sam- kvæmt niðurstöðunni eru laun ráðuneytisstjóra rétt undir launum hæsta- réttardómara, sem eru nú rúmlega 1,8 milljónir króna á mánuði. Launa- hækkanir kjararáðs hafa víða Forseti ASÍ býst við bylgju leiðréttinga Komi Alþingi ekki saman og afturkalli nýjar ákvarðanir kjararáðs er það ávísun á óróleika á vinnumarkaði að sögn forseta ASÍ. Um mánaðamótin hækkuðu laun allra sem heyra undir kjararáð. Laun ráðuneytisstjóra hækka að auki um 22 til 23 prósent í byrjun júlí. Frá mótmælafundi BHM við stjórnarráðið í fyrrasumar. Kjararáð hefur vísað til ákvæða gerðardóms um kjör BHM vegna nýjustu hækkana ráðsins. FréttaBlaðið/SteFán júní júlí Hækkun 2015 2016 2016 frá 2015 Forsætis- ráðuneyti 1.387.161 1.486.318 1.817.643 430.482 kr. (31%) Önnur ráðuneyti 1.306.443 1.399.809 1.725.433 418.990 kr. (32%) ✿ Breytingar á mánaðarlaunum ráðuneytisstjóra sætt gagnrýni. Í tilkynningu BSRB er ákvörðun kjararáðs um að hækka laun ráðuneytisstjóra og skrifstofu- stjóra „langt umfram almennt launa- fólk“ til dæmis gagnrýnd harðlega. „Í rökstuðningi kjararáðs er talað um að verið sé að leiðrétta laun vegna aukins álags, en sömu rök má nota fyrir aðra stærri hópa sem einnig búa við aukið álag.“ Ráðherra vill breytingar Bjarni Benediktsson sagði á fundi Samtaka iðnaðarins í gærmorgun að breyta þyrfti starfsemi kjara- ráðs. Þannig vill hann að þeim sem undir kjararáð heyri fækki um nokkur hundr- uð þannig að eftir sæti einungis þröngur hópur, til dæmis ráðherrar og þingmenn. – jhh austurríKi Hæstiréttur Austurríkis ógilti í gær forsetakosningar lands- ins sem fram fóru 22. maí þessa árs. Heinz-Christian Strache, formaður Frelsisflokksins, hafði kært fram- kvæmd kosninganna vegna með- höndlunar utankjörfundaratkvæða og var hæstiréttur sammála um að kosningalög hefðu verið brotin. Frambjóðandi Frelsisflokksins, Nor- bert Hofer, tapaði í kosningunum í maí fyrir frambjóðanda Græningja, Alexander Van der Bellen, með undir eins prósentustigs mun. Fráfarandi forseti, Heinz Fischer, mun láta af embætti þótt kosningar hafi ekki farið fram og munu þrír fulltrúar þingsins, Hofer þeirra á meðal, gegna embættisskyldum for- seta fram að kosningum. Búist er við því að kosið verði á ný annaðhvort í september eða október. Kæra Strache gekk út á að utan- kjörfundaratkvæði hefðu verið opnuð fyrr en mátti og sum þeirra talin af fólki sem ekki hafði leyfi til. Þá sagðist hann hafa heimildir fyrir því að sumir kjósendur hafi verið erlendir ríkisborgarar og aðrir undir sextán ára aldri og því ekki á kjör- skrá. Hæstiréttur féllst ekki á það og sagði einnig ósannað að talning hefði farið fram með ólöglegum hætti. Ef Hofer vinnur kosningarnar í haust yrði hann fyrsti þjóðernis- hyggjumaðurinn til að verða kjörinn forseti í Evrópusambandsríki. – þea Þurfa að kjósa á ný í Austurríki Nokkrir árásarmenn réðust inn á veitingastað í Dakka, höfuðborg Bangladess, í gær og tóku í það minnsta tuttugu manns í gíslingu. Þegar Frétta- blaðið fór í prentun voru minnst tveir látnir og fjörutíu særðir. Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðisverkinu. Þessir lögreglu- menn lokuðu götum í nágrenni veitingastaðarins á meðan reynt var að semja við gíslatökumennina. FréttaBlaðið/ePa Það verður ekki þannig að þeir tekjuhæstu í þessu samfélagi fái einhverja sérstaka með- ferð. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ norbert Hofer fær annan séns. 2 . j ú l í 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E 4 -C 5 A C 1 9 E 4 -C 4 7 0 1 9 E 4 -C 3 3 4 1 9 E 4 -C 1 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.