Fréttablaðið - 02.07.2016, Síða 28

Fréttablaðið - 02.07.2016, Síða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365. is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429  „Við vorum harðákveðin í að fara á EM um leið og var ljóst að íslenska landsliðið yrði með því við erum farin að fullorðnast og hugsuð­ um með okkur að það væri ekkert víst að við fengjum annað tækifæri til að taka þátt í svona heimsvið­ burði. Og við sjáum svo sannarlega ekki eftir því,“ segir Björg, en þau hjónin dvöldu í viku í sumarhúsi skammt frá Marseille ásamt for­ eldrum Birkis, Höllu Kristjönu og Bjarna Sveinbjörnssyni, systkinum hans, Björgu og Kristófer Atla, og fleiri vinum og keyrðu á leikina í St. Etienne, Marseille og París. „Þegar við skipulögðum ferðina var upp­ lagið þessir þrír leikir í riðlakeppn­ inni og ég held að fæstir hafi þorað að reikna með ein­ hverju meiru.“ Björg segir stemming­ una á leikjun­ um hafa verið ólýsanlega. „Ég upplifði hana þann­ ig að við íslensku áhorf­ endurn­ ir værum ein heild, veggur sem stóð heilshug­ ar á bak við liðið og þegar hvatningarópin hljómuðu og allir tóku þátt var það eins og höggbylgja, eins og ein sál væri að verki. Við upplifðum ekki nærri jafn sterka samstöðu hjá stuðningsmönnum annarra landa. Alltaf vorum við miklu færri en okkur fannst við samt sterkari.“ Hún segir að það hafi verið ólík stemming á fyrstu tveimur leikj­ unum. „Í fyrsta leiknum vissum við að á brattann væri að sækja og því var jafnteflið svo feikna mikið gleðiefni og við náttúrlega sérstak­ lega ánægð með mark Birkis. Í næsta leik var líka jafntefli og þá leið Íslendingum eins og þeir hefðu tapað. Þetta var svolítið sniðugt. Þetta voru tvö jafntefli og annar leikurinn var sigurleikur og hinn leikurinn var tapleikur vegna þess hvernig væntingarnar voru í lokin.“ Björg segir að Norðmenn hafi viljað eigna sér Birki með húð og hári enda hefur fjölskylda hans búið þar síðan hann var ellefu ára. „Þetta er skiljanlegt því Norðmenn áttu ekki lið í keppninni svo þá varð íslenska liðið og Birkir næsti kost­ ur. Norðmenn tóku við fótbolta­ uppeldi hans þar sem frá var horf­ ið hér á Akureyri þegar fjölskyldan flutti. Við áttum þess kost að fara í viðtal við norsku fjölmiðlana til að leiðrétta þennan misskilning,“ segir Björg kankvíslega og bætir við: „Því Birkir er ákaflega mikill Íslendingur og þarf að koma hing­ að að minnsta kosti árlega og helst oftar.“ Fjölskylda Birkis á Íslandi er stór. Föðurfjölskyldan býr í Reykjavík en Björg og Halldór á Akureyri og flestir þeirra afkom­ endur en þau eiga fimm börn, nítj­ án barnabörn og svo eru komin barnabarnabörn líka. „Litlu frændsystkinin elska Birki og stökkva á hann þegar hann kemur því hann er alltaf svo góður við þau og nennir að sinna þeim og leika við þau. Honum finnst afar notalegt að fara í sund og finnst við búa við mikinn lúxus hér á landi að geta skropp­ ið í sund hvenær sem er. Birkir á líka hest hjá okkur sem afi hans hugsar um fyrir hann svo þegar hann kemur hingað er hann mikið á hestbaki.“ Björg og Halldór hafa fylgst nokkuð með fótbolta gegnum árin. Mörg barnabarnanna hafa æft og spilað fótbolta og nú eru þau yngstu komin á fulla ferð. Björg systir Birkis spilaði um tíma með Klepp í úrvalsdeild norska kvennaboltans og Kristófer Atli, yngri bróðir þeirra Birkis, æfir líka og spilar í Noregi. „Ég fylg­ ist líka svolítið með fótbolta í sjón­ varpinu og ætla að fara að gera meira af því. Ég hef mínar skoð­ anir á því hvernig menn standa sig á vellinum þó þær séu kannski ekki sérlega faglega ígrundaðar.“ Hluti af stórfjölskyldunni mun horfa saman á leikinn á morgun en nokkrir verða í París. „Við verðum hérna heima hjá okkur, borðum saman og sitjum svo yfir leiknum og nögum neglurnar og stökkv­ um upp úr stólunum þegar mikið liggur við. Ég efast ekki um að það verður mikil stemming hjá okkur,“ segir Björg að lokum. birkir er ákaFlega mikill ÍSlendingur Björg Dagbjartsdóttir og Halldór Gunnarsson voru ásamt nokkur þúsund Íslendingum í Frakklandi á dögunum að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu feta sín fyrstu skref á Evrópumeistaramóti en dóttursonur þeirra, Birkir Bjarnason, er einn liðsmanna. Stolt amma og afi með dóttursyn- inum eftir góðan landsleik. SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 14-28 Falleg föt í góðum stærðum Fákafeni 9, 108 RVK Sími 581-1552 | www.curvy.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9 Alla virka daga frá kl.11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 Hér er Björg í viðtali í norska sjón- varpinu þar sem hún áréttar við norska fjölmiðlamenn að þrátt fyrir sterka tengingu við Noreg sé Birkir hennar samt Íslendingur í húð og hár. 2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G A R b l A ð ∙ h e l G i n 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E 4 -C A 9 C 1 9 E 4 -C 9 6 0 1 9 E 4 -C 8 2 4 1 9 E 4 -C 6 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.