Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 30

Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 30
Bílarnir sem verða til sýnis eru frá mismunandi tímum, þeir yngstu að lágmarki 25 ára. Meðlimir Fornbílaklúbbsins verða á Árbæjarsafni og spjalla við gesti um bílana sína. MYNDIR FRÁ ÁRBÆJARSAFNI Bílalest Fornbílaklúbbsins hefur verið mjög vinsæl. Hin árvissa og vinsæla fornbíla­ sýning verður á Árbæjarsafni á morgun. Þá koma meðlimir í Fornbílaklúbbi Íslands með sína merku bíla og sýna þá á safnsvæð­ inu. „Þetta hefur verið árlegur viðburður í mjög langan tíma hjá okkur. Meðlimir klúbbsins mæta á svæðið og verða margir hverj­ ir búnir að klæða sig upp í stíl við bílana sína. Bílarnir eru frá mis­ munandi tímum, þeir elstu orðnir fjörgamlir og þeir yngstu að lág­ marki 25 ára. Bílaeigendurnir eru reiðubúnir að spjalla við gesti og gangandi um bílana sína sem verð­ ur lagt um allt svæðið, um tuttugu til þrjátíu talsins,“ segir Sigur­ laugur Ingólfsson, verkefnastjóri Árbæjarsafns. Fornbíladagurinn hefur verið afar vel sóttur í gegnum árin og segir Sigurlaugur hann vera með fjölmennustu og vinsælustu dögun­ um á safninu. „Við búumst við fjöl­ menni og þá sérstaklega ef veður verður gott. Mætingin fer alltaf svolítið eftir því en við höfum oft verið mjög heppin með veður á þessum degi. Það eru alltaf sömu fastakúnnarnir sem sækja það stíft að mæta á Fornbíladaginn. Dagur­ inn er alltaf haldinn fyrsta sunnu­ daginn í júlí og hefur alltaf verið vinsæll. Allt frá því ég man eftir mér hér og ég er búinn að vera á Árbæjarsafninu í tíu ár ef það er einhver mælikvarði,“ segir hann og hlær. Sigurlaugur nefnir líka að bíl­ arnir séu að koma á svæðið frá því um morguninn en að flestir bílarn­ ir verði á milli eitt og fimm. Safnið verður opið á morgun á milli klukk­ an tíu og fimm en sýning Fornbíla­ klúbbsins hefst formlega klukkan eitt. Heitt verður á könnunni í Dill­ onshúsi og boðið upp á þjóðlegar og heimilislegar veitingar. Heimsókn á Árbæjarsafn gefur fólki kost á að upplifa ferðalag aftur í tímann. Starfsfólk klæðist fatnaði eins og tíðkaðist á nítjándu öld og húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur og á baðstofu­ loftinu verður tóskapur til sýnis. Árbær var rótgróin bújörð allt fram á tuttugustu öld, en safnið var opnað þar árið 1957. Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir tuttugu hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi á safninu. „Lummubaksturinn og tóskapurinn eru fastir liðir eins og venjulega hjá okkur. Fyrir börnin er svo sérstök sýning sem heitir Komdu að leika og eins og nafnið ber með sér þá er það gagnvirk leikfangasýning, það er börnin geta leikið með leik­ föngin á sýningunni. Sú sýning er mjög vinsæl. Svo eru auðvitað dýr á svæðinu, kindur, hænur og hest­ ar sem krakkar hafa auð vitað allt­ af mjög gaman af,“ útskýrir Sigur­ laugur. Fjör og Fornir bílar í árbæ Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á Árbæjarsafni á morgun og munu þeir spjalla við gesti um bílana. Auk bílanna fornu má skoða þar leikfangasýningu, gæða sér á lummum og klappa húsdýrum. „Bæjarhátíðir hafa tekið við af sveitaböllum og mér líkar sú þróun alveg gríðarlega vel. Vinsælar hljómsveitir gætu reyndar talið í gott sveitaball ef þær vildu, það er til gnægð fallegra félagsheimila út um allt land til að gera gott gigg. En því fylgir tilkostnaður sem er ekki á allra færi og áhættan gæti verið of mikil fyrir einn listamann eða hljómsveit. Á bæjarhátíðunum er búið að leggja til grunninn að góðu giggi – ljós­ og hljóðbúnað. Ég man að fyrir sirka 20 árum síðan vorum við Milljónamæringarnir stund­ um að spila í gegnum hljóðkerfi sem voru frekar bagaleg. Í dag er svo mikil samkeppni á hljóðkerf­ ismarkaðnum að hljóð og ljós eru oftast nær í hæsta gæðaflokki. Fleiri en einn listamaður spila á hverri bæjarhátíð, sem skapar tækifæri fyrir fleiri að koma sér á framfæri. Stundum eru lista­ mennirnir svo margir að þetta mega með réttu kallast hreinrækt­ aðar tónlistarhátíðir, þar sem jafn­ vel er tekinn fókus á ákveðnar tón­ listarstefnur, eins og raftónlist eða þungarokk. Ólíkt sveitaböllunum þá gera flestar bæjarhátíðir líka ráð fyrir börnum og fjölskyldufólki. Ég er oftast nær að taka barnaskemmt­ un um daginn og svo brjálað full­ orðinsball um kvöldið og nóttina. Ég held að ég sé búinn að koma fram á næstum öllum bæjarhátíð­ unum – sumum oftar en einu sinni eða tvisvar. Ég á samt eftir að klára hringinn. Ég hef til dæmis aldrei verið á Mýrarboltanum á Ísafirði, en fæ að prófa það um verslunarmannahelgina. Í sumar mun ég massa Humar­ hátíðina á Höfn í Hornafirði, Lopa­ peysuna á Akranesi, Túnið heima í Mosó, Danska daga í Stykkis­ hólmi, Ljósanótt í Keflavík og Eina með öllu á Akureyri. Mesta áskor­ un lífs míns verður svo að spila diskópoppið mitt fyrir fullum sal af þungarokkurum á Eistna­ flugi í Neskaupstað. Ég verð síð­ astur á svið laugardaginn 9. júlí og HAM mun hita upp fyrir mig. Mig grunar samt að þungarokk­ arar séu ekkert ósvipaðir sjálfum mér, tónlistarunnendur fyrst og fremst og með risastór hjörtu úr skíra gulli. Mig grunar að giggið endi þannig að þungarokkararnir éti úr lófanum á mér.“ bæjarhátíðir eru Fyrir alla Páll Óskar Hjálmtýsson hefur komið fram á flestum bæjarhátíðum og sumum oftar en einu sinni eða tvisvar. Í sumar verður hann á ferð og flugi að vanda en hlakkar mest til Eistnaflugs þar sem hann spilar fyrir fullan sal af þungarokkurum. Páll Óskar Hjálmtýsson kemur fram á fjölmörgum bæjarhátíðum í sumar. Hér tekur hann lagið á Aldrei fór ég suður um páskana. MYND/SNÆRÓS SINDRADÓttIR 2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ h e l G i n 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E 4 -B 6 D C 1 9 E 4 -B 5 A 0 1 9 E 4 -B 4 6 4 1 9 E 4 -B 3 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.