Fréttablaðið - 02.07.2016, Page 41
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 2. júlí 2016 9
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs ásamt svæðisstjóra, í samræmi
við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
Er svæðisstjóra innan handar við daglegan
rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum
á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga
stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun
klínískra leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Skipuleggur kennslu fyrir heilbrigðisstéttir í
samráði við fagstjóra lækninga, kennslustjóra
og lærimeistara
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
Framhaldsmenntun í hjúkrun æskileg
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af starfi í heilsugæslu er kostur
Nám og reynsla á sviði stjórnunar æskileg
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis-
þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt
og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar
eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir
fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar
á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hafin breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að
því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni
og bæta vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna
grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða
straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks
munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum
með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun
starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og
útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um
leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati.
Fagstjóri hjúkrunar
Heilsugæslan Miðbæ
Laust er til umsóknar starf fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna Miðbæ. Fagstjóri hjúkrunar ber
ábyrgð á skipulagningu hjúkrunarþjónustu í samráði við svæðisstjóra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu
milli fagstétta innan stöðvarinnar og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að
ræða krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Ráðið verður í
starfið til 5 ára frá og með 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí 2016.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar veita Sigríður Dóra Magnúsdóttir svæðisstjóri – sigridur.d.magnusdottir@heilsugaeslan.is, sími 585-2600 og Svava Kristín Þorkelsdóttir, mannauðsstjóri – svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is, sími 585-1300.
Byggðasafn Vestfjarða auglýsir laust til
umsóknar starf safnvarðar. Um er að ræða
tímabundna 100% afleysingastöðu til eins
árs. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí
2016. Nánari upplýsingar á www.isafjordur.is
Prentmet er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar
að Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akranesi og Selfossi
Prentari eða aðstoðarmaður í hæðarprentun
Starfið er aðallega fólkið í hæðarprentun, fólíuprentun,
thermoprentun, stönsun, upphleypingu, fellingu og
rifgötun. Leitað er eftir duglegum, nákvæmum og
handlögnum einstaklingi. Þjálfun í boði fyrir réttan aðila.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
mannauðsmála, ingasteina@prentmet.is, s. 856 0601.
Atvinnuumsókn er á
prentmet.is/um-okkur/atvinnuumsokn
Umsóknarfrestur er til 8. júlí n.k.
Prentmet er framsækið fyrirtæki sem býður upp á
heildarlausnir og hágæða prentun þar sem hraði, gæði
og persónuleg þjónusta fara vel saman í framleiðslunni.
Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað.
StarfSmaður óSk a St
- -
heildarlausnir í prentun
Deildarstjóri
Við hjá Vinakoti leitum eftir öflugum deildarstjóra til að sjá um
daglegan rekstur búsetuúrræðis.
Við rekum skammtíma- og langtíma búsetu fyrir börn og ungmenni
með fjölþættan vanda. Í starfi okkar höfum við að leiðarljósi að
skapa börnunum og ungmennunum öruggt og heimilislegt um-
hverfi. Lesa má meiri um okkur á vinakot.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að sjá um daglegan rekstur og skipulag búsetuúrræðis samskvæmt starfslýsingu deildastjóra, þ.m.t.:
• Stjórnun, skipulagning og mat á starfi búsetuúrræðisins
• Gera einstaklingsáætlanir í samvinnu við þroskaþjálfa, eða sambærilegan fagaðila, og fylgja eftir að unnið sé í
samræmi við þær
• Sjá um almennt starfsmannahald
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi
• Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
• Áhugi og metnaður fyrir að starfa með unglingum með fjölþættan vanda
• Þekking á einhverfu og/eða fjölþættum vanda
• Sveigjanleika og færni í mannlegum samskiptum
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög
• 25 ára eða eldri
Aðrir þættir eru máli skipta
• Hæfni til að takast á við óvæntar aðstæður
• Frumkvæði, jákvæðni og áhugasemi í starfi
Bæði kynin eru hvött til að sækja um starfið. Starfshlutfall er 100%
og ráðið er til framtíðar.
Umsóknarfrestur er til 9.júlí og þarf viðkomandi að geta hafið
störf 18.júlí.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri, á
soley@vinakot.is
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á starf@vinakot.is, merkt
“DEILDARSTJÓRI”
- Fagmennska, umhyggja og traust eru gildin sem við vinnum eftir -
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
0
2
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
5
-0
5
D
C
1
9
E
5
-0
4
A
0
1
9
E
5
-0
3
6
4
1
9
E
5
-0
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
1
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K