Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 66

Fréttablaðið - 02.07.2016, Side 66
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Lögfræðiþjónusta Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Kolbrún Gísladóttir lést þann 26. maí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Eva Bergmann Guðlaugsdóttir Helena Guðlaugsdóttir Brynjúlfur Guðmundsson Thelma María Forberg Gabriel Bergmann Marin Eva Brynjúlfsdóttir Guðrún Klara Brynjúlfsdóttir og systkini hinnar látnu. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Sólmundur Jónsson frá Ársól, Akranesi, Lóulandi 7, Garði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 29. júní. Útförin fer fram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 6. júlí kl. 13.00. Sigríður Stephensen Ingibjörg Sólmundardóttir Loftur Sigvaldason Sigrún Sólmundardóttir Haraldur Magnússon Sigurborg Sólmundardóttir Hans Wíum Jón Sólmundarson Sigurbirna Ágústsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gróa Svanheiður Árnadóttir áður til heimilis að Hverfisgötu 40, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 19. júní. Jarðarförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 5. júlí kl. 13.00. Ingibjörg Pálsdóttir Kjartan Kjartansson Árni Pálsson Þuríður Ingvarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs frænda og vinar, Hallbjörns Péturs Benjamínssonar Skólabraut 10, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistmanna á Bjargi, Seltjarnarnesi. Elín Guðmundsdóttir Bergmann Bjarnason Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ragnhildar Eyju Þórðardóttur fyrrverandi deildarstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, sem lést á Landspítalanum 9. júní. Sigríður Elín Sigfúsdóttir Oddur Carl Einarsson Arnór Þórir Sigfússon Gunnhildur Óskarsdóttir Gunnlaugur Sigfússon Sólveig Kristjánsdóttir barnabörn og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar og systir, Katrín Jónsdóttir 12 rue Abel Ferry – París, lést þann 27. júní sl. í París. Minningarathöfn verður haldin í Stykkishólmi, auglýst síðar. Eiríkur, Audrey og Elsa Dóra Amsellem, Sigurjón, Sigríður, Ingibjörg, Högni, Rannveig, Áslaug og Sif Jónsbörn. Ástkær sambýlismaður minn og bróðir okkar, Arnþór Jón Þorsteinsson frá Moldhaugum, Skálateigi 1, Akureyri, sem lést að heimili sínu 21. júní, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 4. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Lautina á Akureyri, sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Hægt er að leggja inn á reikn. 565-26-4632. kt. 650101-3320 . Guðlaug H. Jónsdóttir Ester Þorsteinsdóttir Þröstur Þorsteinsson Saard Wijannarong Rósa Þ. Þorsteinsdóttir Bjarni R. Ingvason Eygló H. Þorsteinsdóttir Baldur J. Helgason Margrét H. Þorsteinsdóttir Oddur H. Halldórsson Ása B. Þorsteinsdóttir Kristþór Halldórsson „Það voru níutíu rannsóknarstaðir sem ég kortlagði og kannaði fléttur á. Ég dreifði þeim um allt landið, út á ystu annes og inn til landsins,” lýsir Hörður. Mynd/Auðunn níelsson Mynsturskræpa, næturskóf, viðarskegg, tíglarein og fjallakúpa eru meðal nafna á fléttum (skófum) í náttúru Íslands. Hörður Kristinsson grasafræðingur lýsir þeim í máli og myndum í nýrri bók, ásamt 387 öðrum. Hún heitir Íslenskar fléttur og er sú fyrsta um þennan hluta flórunnar. Á bak við hana er áratuga rannsóknarstarf Harðar sem nú nálgast áttrætt. Hann tók allar myndirnar nema tvær, þær minna á listaverk eftir Kjarval. Hann hefur líka gefið flestum fléttunum nöfn eftir ákveðnu kerfi en gömul alþýðunöfn eins og álfabikar, engskóf og fjallagrös halda sér. Hörður segir upphafið að bókinni mega rekja til könnunar á landnámi gróðurs í Surtsey, meðal annars fléttna. „Sérfræðingar frá Bandaríkjunum töldu að til þess þyrfti að fá upplýsingar um fléttur á Íslandi í heild. Þá var ég við doktorsnám í líffræði í Þýskalandi og var fenginn til að rannsaka fléttuflóru Íslands sem var draumur minn. Því tók við tveggja sumra ferðalag um allt land- ið við að safna fléttum. Það var risastórt verkefni sem má þakka Surtsey.“ Nær 800 tegundir fléttna hafa fundist hér á landi og er alltaf að fjölga, að sögn Harðar. „Þó þurfa fléttur dálítinn tíma til að ná fótfestu því þær eru sambýli þörungs og svepps, sem flækir dálítið málið,“ lýsir hann. Hann segir fléttur forðast uppblástur og á móbergs- svæðum sé mun minna um þær en á blágrýtissvæðum. „Við höfum bæði suðlægar tegundir og norðlægar, land- rænar tegundir og úthafstegundir. Það er aðallega loftslagið sem ræður.“ Bókin er ekki í stóru broti og kemst vel í venjulegan bakpoka. „En það er svolítið þungur í henni pappírinn,“ segir Hörður. Þannig að hún sígur aðeins meira í en æskilegt væri.“ gun@frettabladis.is Afrakstur áratuga vinnu Íslenskar fléttur, ný bók Harðar Kristinssonar grasafræðings, er fyrsta heildarrit sem út kemur um skófirnar sem skreyta klappir, móa og skóga þessa lands. Því tók við tveggja sumra ferðalag um allt landið við að safna fléttum. Það var risastórt verkefni sem má þakka Surtsey. 2 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R30 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B l A ð i ð tímamót 0 2 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E 4 -D E 5 C 1 9 E 4 -D D 2 0 1 9 E 4 -D B E 4 1 9 E 4 -D A A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 1 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.