Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 21
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015
Smáauglýsingar 569 1100
Geymslur
Bílageymsla
Húsnæði undir húsbíla, fellihýsi,
hjólhýsi eða tjaldvagninn í vetur.
Bjóðum upp á gott húsnæði í Sveitar-
félaginu Garði.
Leiguverð per meter:
Húsbílar og hjólhýsi = 11.500
Tjaldvagnar og fellihýsi = 9.500 kr.
Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst
á guesthousegardur@simnet.is
eða hringdu í síma 660-7890 eða
660-7891. Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Hitaveituskel 1850 L.
Hitaveituskel 1650 L.
margar stærðir.
9.900 kr.
9.500 kr.
Fylgstu með á Facebook
Frú Sigurlaug
Mjóddin
s. 774-7377
6.500
kr.
3.500
kr.
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
6.500
kr.
5.900
kr.
6.500 kr.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
fyrir veturinn og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, leikfimi kl. 10. Félagsvist, tölvu-
færni, útskurður 1 og frjáls tími í myndlist kl. 13.
Boðinn Félagsvist og myndlist kl. 13, bingó kl. 13 og leshópur 12.
október kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Lesið og spjallað kl. 10.40, handavinna frá kl. 13-
16.
Dalbraut 18-20 Myndlist og postulín kl. 9, brids kl. 13.
Dalbraut 27 Handavinna kl. 8, upplestur á annarri hæð kl. 14.
Félagsmiðstöðin Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl 9.10, gler og
postulínsmálun kl. 9.30, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl.
16.30 og skapandi skrif kl. 20.
Furugerði 1 Morgunmatur kl. 8.10, lestur með Ragnhildi kl. 10,
hádegismatur kl. 11.30, ganga kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30 og kvöld-
matur kl. 18-19. Handavinna. Nánari upplýsingar í síma 411-2740.
Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og kl. 15, stólaleikfimi fyrir
konur og karla kl. 9.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl.10 og í Ásgarði
kl.11, karlaleikfimi kl. 11.40 og botsía kl.12.20.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30. Hilmar Örn
spilar létt lög fyrir stundina. Helgistund, handavinna, spilað og
spjallað. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Gullsmári Póstulínshópur kl 9, Ganga kl 10, Kortagerð kl. 13. Handa-
vinna og brids kl 13, Félagsvist kl 20
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, léttar erobic æfingar kl. 9, leikfimi kl. 9.45,
matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Spilað brids kl. 13, kaffi kl.
14.30, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, námskeið í glerlist kl. 9,
leikfimi á RUV kl. 9.45, ganga kl.10, eftir gönguna er boðið upp á
slökun í salnum, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zóphonísdóttur kl.
12.30, handavinnuhornið kl.13, félagsvist kl.13.15, skapandi skrif kl.
16. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564-
1490 og á www.glod.is
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og Egilshöll, félagsvist kl. 13 í
Borgum, tölvufærninámskeið í samvinnu við Rimaskóla kl. 14 skrán-
ing - uppselt en laust eftir áramót. Útskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum,
Styrktarleikfimi hjá Nils kl.17 í dag í Borgum.
Laugarból Nýtt í Ármanni. Leikfimi fyrir 50+ og eldri borgara kl. 11
mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Fjölbreyttar
æfingar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi í borðsal kl. 9.45,
upplestur m. Erlu kl.11, hádegisverður kl.11.30-12.30, tréútskurður
kl.13-16, ganga m. starfsmanni kl.14, samverustund m. djákn kl.14,
bíó á 2. hæð kl.15.30
Seltjarnarnes Gler, Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir, Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga, salnum
Skólabraut kl. 11. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.30. Skráning hafin í sameiginlega ferð kirkjunnar og
félagsstarfsins sem farin verður fimmtudaginn 22. október. Skrán-in-
garblöð liggja frammi á Skólabraut og í kirkjunni.
Sléttuvegi 11-13 Opið frá kl. 8.30-16. Morgunspjall, kaffi og gluggað
í dagblöð kl. 8.30. Hádegisverður kl. 11.30. Félagsvist 13.15.
Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir!
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba gold námskeið kl. 10.30,
leiðbeinandiTanya Dimitrova. Danskennsla námskeið kl. 17-20, kenn-
ari Lizý Steinsdóttir. Ipad námskeið kl. 13, leiðbeinandi Björn Ágúst.
Vesturgata 7 Tréútskurður kl. 9.15, Lúðvík.
Vitatorg Leirmótun kl. 9, höfum laus pláss. Postulínsmálun kl. 9,
upplestur framhaldssögu kl. 12.30, frjáls spilamenska. Allir velkomnir.
Stóladans kl. 13, bókband kl. 13. Fótaaðgerðarstofa opin.
Yndisleg tengda-
móðir mín Valný
Eyjólfsdóttir er lát-
in eftir stutt veik-
indi. Árin hennar
voru orðin 85 en einhvern veginn
er maður aldrei undirbúinn fyrir
missi hvort sem fyrirvarinn er
stuttur eða langur. Ég fór að
vinna á Akureyri sumarið 7́3. Þar
kynntist ég honum Steina mínum
og fjölskyldunni hans, mömmu
hans og pabba, þeim Valnýju og
Þórarni og Rögnu systur hans.
Frá fyrsta degi átti ég þar mitt
annað heimili og í Valnýju eign-
aðist ég aðra mömmu. Þvílíkt ríki-
dæmi. Við Valný urðum miklar
vinkonur og aldrei féll skuggi á
þann vinskap. Valný var einstök
kona. Hún bar aldurinn einstak-
lega vel og var alltaf hress og kát,
þó ekki væri hún skaplaus. Hún
synti á hverjum degi í mörg ár og
var dugleg að ganga og iðka alla
almenna hreyfingu. Valný var
mikil félagsvera og hafði gaman af
því að vera innan um fólk, ferðast,
spila og dansa og oftar en ekki í
fylgd með yndislegum vini sínum
honum Óla. Er ég honum afskap-
lega þakklát fyrir það.
Valný Eyjólfsdóttir
✝ Valný Eyjólfs-dóttir fæddist
2.3. 1930. Hún lést
25.9. 2015.
Útför Valnýjar
fór fram 8. október
2015.
Valný var dugleg
að passa barnabörnin
sín og eiga þau
Helga, Atli Rúnar og
Hildur óskaplega
góðar minningar frá
þeim stundum. Valný
og Þórarinn bjuggu
hérna fyrir sunnan
þegar Steini greind-
ist með krabbamein
9́1. Rúmu ári seinna
dó Þórarinn og Steini
síðan 9́4. Þetta voru erfið þrjú ár
fyrir hana Valnýju mína. Þegar
hún hætti svo að vinna ákvað hún
að flytja aftur til Akureyrar. Þar
voru Ragna, Grímur og strákarnir
og svo vinirnir.
Ég á margar yndislegar minn-
ingar um hana Valnýju mína og
bara góðar. Bakstursnætur fyrir
jólin þar sem við bökuðum margar
sortir og spjölluðum mikið, heim-
sóknir til mín í sumarbústaðinn
með tilheyrandi spjalli, vöku og
smá lögg og svo margar fleiri.
Þessar og allar hinar mun ég
geyma í hjarta mínu og orna mér
við.
Ég vil að lokum þakka þér,
elsku Valný mín, fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig og verið fyrir
mig og börnin mín. Ég veit að það
hefur verið tekið vel á móti þér en
við munum sakna þín mikið.
Elsku Ragna mín, missir þinn
er mikill en mundu að við eigum
alltaf hvor aðra.
Laufey.
Arnbjörg Jóns-
dóttir, sú mæta
kona, hefur verið
lögð til hinstu hvíld-
ar.
Líklega var ég aðeins tveggja
ára þegar ég skreið í gegnum
gatið á girðingunni á garðinum
heima og inn í næsta garð, garð-
inn hennar Guðnýjar. Þar með
hófst vinátta sem enn stendur.
Arnbjörg, eða Adda, var yndis-
lega og þolinmóða mamman sem
Arnbjörg
Jónsdóttir Waage
✝ Arnbjörg Jóns-dóttir Waage
fæddist 19. ágúst
1923. Hún lést 29.
september 2015.
Arnbjörg var
jarðsungin 8. októ-
ber 2015.
bakaði ómótstæði-
legar kökur og
skammaði okkur
nánast aldrei þrátt
fyrir ýmis uppátæki
sem mörgum hefði
þótt nóg um. Adda
átti alltaf ljúf orð,
opið hjarta og ótrú-
legt langlundargeð.
Enda varð heimilið
hennar við Nökkva-
voginn fljótlega
samkomustaður stelpuhópsins
um langt árabil. Í meira en hálfa
öld lágu leiðir okkar saman. Það
er með söknuði sem ég kveð Arn-
björgu og votta um leið hennar
nánustu, systrunum Guðnýju,
Gústu og Höllu, mína innilegustu
samúð.
Ásta Þorleifsdóttir.
Láttu ljósið líða
létt um grund og voga
fjöll og dali
holt og vaðal
Samúel Jón
Guðmundsson
✝ Samúel JónGuðmundsson
fæddist 28. júlí
1947. Hann lést 29.
ágúst 2015. Útförin
fór fram 7. sept-
ember 2015.
fit og bakka
um odda og ár
græna hóla
fögur tún
og engjar
ljósið lifir þá
alla daga
með fuglasöng.
(Höf. gufa)
Sjáumst frændi.
Ármann Ægir
Magnússon.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar