Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Lára Aðalsteinsdóttir er annar af
tveimur verkefnastjórum fyrir
Reykjavík Bókmenntaborg
UNESCO en núna í október fer
fram Lestrarhátíð í Bókmennta-
borg, fjórða árið í röð. Ég spurði
Láru strax hvað gerði eina borg að
bókmenntaborg en ekki aðra í aug-
um UNESCO?
„Bókmenntaborg UNESCO er tit-
ill sem borgir geta sótt um að fá og
skuldbinda sig um leið til að taka þátt
í neti skapandi borgar UNESCO.
Reykjavík var lánsöm að vera sam-
þykkt inn í netið árið 2011 eftir að
hafa skilað mjög sterkri umsókn.
Titlinum fylgir ekki fjármagn en þeg-
ar borgir fara út í umsóknarferlið eru
þær að skuldbinda sig til að styðja við
orðlistina í borginni og efla hana.
Leiða saman hagaðila og stuðla að
samvinnu innanlands og erlendis um
eflingu orðlistarinnar,“ segir Lára en
Bókmenntaborgir þurfa að vinna eft-
ir ákveðinni stefnu á hverju ári.
„Við miðum okkar starf að leið-
arljósi Skapandi borga UNESCO en
hún segir m.a. að með því að ganga í
samstarfsnetið skuldbinda borgir sig
til að deila árangursríkum starfs-
háttum og þróa samstarf sem ýtir
undir sköpun og skapandi greinar,
styrkir þátttöku í menningarlífi og til
að gera menningu að hluta af borg-
arskipulagi og þróun borgarinnar.“
Listsviðin sem samstarfsnetið
tekur til eru sjö talsins að sögn Láru
og ná til bókmennta, handverks og
alþýðulista, hönnunar, kvikmynda-
listar, margmiðlunarlistar, mat-
argerðarlistar og tónlistar.
Nafnbótin Bókmenntaborg
UNESCO er hvorki sjálfsögð né
til frambúðar nema unnið sé ötullega
að því að halda henni.
„Já – borgir skuldbinda sig til
ákveðinna verkefna þegar sótt er um
titilinn. Þetta eru verkefni hér
heima og eins verkefni í samstarfi
við aðrar bókmenntaborgir og skap-
andi borgir UNESCO. Borgir þurfa
að skila skýrslum til UNESCO þar
sem metið er hvort þær er að standa
sig.“
En hvernig fá borgir nafnbótina?
„Reykjavík fékk nafnbótina eftir
umsóknarferli þar sem allir hag-
aðilar orðlistarinnar komu saman og
rýnt var í það starf sem hér er unnið
á ólíkum sviðum í borginni og því
lyft fram. Reykjavík er kraumandi
pottur sköpunar og þar skiptir orð-
listin miklu máli. Hér búa flestir rit-
höfundar landsins, bókaútgáfa er
mest hér á höfuðborgarsvæðinu, all-
ar helstu menningarstofnanir lands-
ins eru hér og í borginni eru tvö
stærstu leikhús landsins. Í Háskóla
Íslands er ritlist kennd á meist-
arastigi og við eigum góða hugvís-
indadeild við skólann. Aðgengi að
bókmenntum er gott hér og fyrir
starfandi rithöfunda er nálægðin við
heimildir, útgefendur og aðra rithöf-
unda mikilvægt. Eins er hér mjög
lifandi samfélag þar sem viðburðir
tengdir orðlist eru í viku hverri. Hér
er heimildi handritanna en því miður
er aðgengi að þeim ekki eins og best
verður á kosið.“
Lestur – Sögur handa öllum
Lestrarhátíð er eitt af stóru verk-
efnum Bókmenntaborgarinnar ár
hvert. Í ár er hátíðin er tileinkuð
Svövu Jakobsdóttur rithöfundi og
röddum kvenna að sögn Láru.
„Hátíðin heitir Sögur handa öllum
í höfuðið á bók hátíðarinnar, sem er
smásagnasafn Svövu en Forlagið
gefur bókina út í ritröð sinni Íslensk
klassík. Þá fá einnig raddir kvenna
vægi í hátíðinni í ár og viljum við
beina sjónum að röddum kvenna í
bókmenntum. Lestrarhátíð er okkar
tækifæri til að hvetja almenning til
að gefa orðlistinni gaum og auðga
sig með henni. Færa bókmenntir
nær fólkinu eins og við gerum til
dæmis í Kringlunni, sem nú er þakin
tilvitnunum í smásagnasafn Svövu.
En Kringlan er skemmtilegur sam-
starfsaðili og veitir Bókmenntaborg-
inni skjól fyrir orðlistina í október.
Borgarbókasafnið er einnig stór
samstarfsaðili Bókmenntaborg-
arinnar og hvet ég fólk til að skoða
hvað söfnin í borginni hafa upp á að
bjóða í október og alla hina mánuði
ársins fyrir okkur. Þar er líf og fjör
alla daga.“
Dagskráin á hátíðinni er þétt og
fjölbreytileg en þegar hefur verið
rætt um stöðu rafbókarinnar, haldið
stutt kvikmyndanámskeið fyrir
stelpur í grunnskólum borgarinnar í
samstarfi við RIFF o.fl. en fram-
undan eru líka spennandi viðburðir.
„Já, heldur betur því á döfinni í
þessari viku er ýmislegt, til dæmis á
morgun, þriðjudag, er bókakvöld
VÍB sem tileinkað er röddum
kvenna. Þar munu þær Elín Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri VÍB,
Edda Rut Björnsdóttir hjá Fyr-
irtækjasviði Íslandsbanka og Lilja
Gylfadóttir, formaður Ungra at-
hafnakvenna ræða bókina Lean in
eftir Sheryl Sandberg, fram-
kvæmdastjóra Facebook. Á mið-
vikudaginn verður spennandi hádeg-
iserindi í Borgarbókasafninu í
Grófinni þar sem Magnea Þuríður
Ingvarsdóttir menningarfræðingur
fjallar um bókmenntir kvenna sem
leynist í handritum í Lands-
bókasafni og verður lesið upp úr
óbirtum textum. Á fimmtudaginn er
spennandi dagskrá á Icelandair Hót-
el Reykjavík Marina þar sem skáld-
in Valgerður Þóroddsdóttir og Ásta
Fanney Sigurðardóttir eiga stefnu-
mót við ný skáld sem allar eru með
annað fæðingarland en Ísland og
skrifa á sínu móðurmáli og stundum
líka íslensku. En ég hvet alla til að
kynna sér dagskránna á vefnum
okkar bokmenntaborgin.is, þar er
yfirlit yfir alla dagskrá mánaðarins.“
Kortleggja bókmenntasöguna
Reykjavík Bókmenntaborg er
menningarskrifstofa sem er virk allt
árið Lára segir m.a. eitt af þeim
verkefnum sem unnið er að vera
fólgið í því að kortleggja bókmennta-
söguna í borginni.
Beinum sjónum að röddum
Bókmenntaborgin Reykjavík
fagnar nú Lestrarhátíð í október
Mikil vinna að fá nafnbótina
Bókmenntaborg og halda henni
Lestur Lára Aðalsteins-
dóttir einn stjórnanda
Reykjavík Bókmenntaborg.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Frystikistur á
tilboðsverði
20% afsláttur
Tilboð gildir meðan birgðir
endast.
FR205 190L B74xD70xH95
1 karfa, læsing á loki
hjól undir kistu
FR305 278L B98xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR405 385L B128xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR505 463L B150xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR605 567L B180xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð áður kr. 94.359
Verð nú kr. 75.488 m. vsk.
Verð áður kr. 108.534
Verð nú kr. 86.827 m. vsk.
Verð áður kr. 117.173
Verð nú kr. 93.738 m. vsk.
Verð áður kr. 131.820
Verð nú kr. 105.456 m. vsk.
Verð áður kr. 161.518
Verð nú kr. 129.214 m. vsk.