Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.99.900
m/hálfu fæði
Netverð á mann frá kr. 99.900 á Tulip Inn m.v. 2 í herbergi.
Agadir
26. okt í 10 nætur
47.950
Flugsætifrá kr.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjórða skrúfuþotan í flota Flug-
félagsins Ernis bætist við síðar í
mánuðinum. Mikil fjölgun farþega
til og frá Húsavík og Vest-
mannaeyjum, þangað sem félagið
er með daglegar ferðir, ræður
þessu og hafa flugvélakaupin verið
í deiglu um nokkurt skeið. Vélin
nýja er sömu gerðar og þær þrjár
sem Ernir eiga fyrir, það er Jet
Stream 32 sem tekur 19 farþega.
Jet Stream vélin væntanlega hef-
ur verið í eigu tyrknesks flugvéls
og reynst vel.
Um þessar mundir eru nokkrir
Ernismenn í Tyrklandi að yfirfara
gripinn og taka út. Allt hefur geng-
ið að óskum og reiknar Ásgeir Örn
Þorsteinsson sölu- og markaðsstjóri
Ernis með að flugvélin nýja komi til
landsins eftir um tvær vikur.
Virkjanir og hvalaskoðun
„Þetta er talsverð fjárfesting.
Við þurfum hins vegar að bregðast
við aðstæðum, því nú er mikið að
gera í fluginu,“ segir Ásgeir Örn
um verkefnið. Hann vekur athygli á
því að í fyrra hafi farþegar í Húsa-
víkurflugi Ernis verið um 11.000 á
ári. Ferðirnar í viku hverri voru 8
en nú eru þær orðnar 16 og áætlað
er að farþegar á næsta ári verði alls
um 15 þúsund. Helgast þetta meðal
annars af virkjunarframkvæmdum
á Þeistareykjum og byggingu iðju-
vers á Bakka. Þá velja æ fleiri dags-
ferðir til Húsavíkur með flugi, með-
al annars í tengslum við
hvalaskoðun. Um Vestmannaeyja-
flugið er svipaða sögu að segja;
ferðamönnum fjölgar og mikið er
umleikis í útgerðinni. Þá þykir
flugið á stundum öruggasti ferða-
mátinn, enda ekki alltaf á vísan að
róa með siglingar Herjólfs.
Leiguverkefni af ýmsum toga
Auk tveggja framangreindra
staða flýgur Ernir reglulega til
Bíldudals, á Gjögur og til Hafnar í
Hornafirði. Þá sinnir félagið einnig
leiguverkefnum sem eru af ýmsum
toga. Sérstaklega má þó nefna
sjúkraflug til útlanda, einkum þá
Gautaborgar í Svíþjóð, með líf-
færaþega, og eru þær ferðir að
jafnaði ein til tvær í mánuði.
Ernir fá fjórðu
flugvélina í flotann
Mikil fjölgun farþega í Húsavík-
urfluginu Úr 8 ferðum í 16 á viku
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ernir Jet Stream eru vélar sem hafa
reynst vel í útgerð flugfélagsins.
Í gær var búið að
vigta og skrá
3.717 lundapysj-
ur hjá Pysjueft-
irlitinu í Sæ-
heimum í
Vestmanna-
eyjum. Pysju-
fjöldinn er því
orðinn meira en
tvöfalt meiri en
hann varð haust-
ið 2012, sem var
besta pysjuárið
frá hruni sand-
sílastofnsins.
Haustið 2012 voru vigtaðar 1.830
lundapysjur.
Í gær kom 51 pysja á vigtina og
víst að fleiri munu bætast við.
Lundapysja Enn
bætist við.
3.717 pysjur
Sigurður Bogi Sævarson
sbs@mbl.is
Takmarkað framboð á raforku setur
atvinnuuppbyggingu út um land
miklar skorður. Segja má að Suður-
land og svæðið á Bakka við Húsavík
séu einu svæðin á landinu þar sem
hægt er að útvega orku í takti við það
sem markaðurinn kallar eftir. Annars
staðar er þröng, enda fáir virkjunar-
kostir eða þá flutningsmannvirki ekki
til staðar. Þetta segir Harðar Arn-
arsonar, forstjóri Landsvirkjunar.
Þar á bæ er margt í deiglunni um
þessar mundir og efst á baugi er
stækkun Búrfellsvirkjunar.
Málin detta upp fyrir
Viðbótarorka frá Búrfelli er ekki
eyrnamerkt ákveðnum kaupanda,
eins og stundum þegar nýjar virkj-
anir eru reistar. „Eftirspurnin núna
er helst hjá viðskiptavinum sem þurfa
kannski 5 til 10 MW af orku og þar
getum við nefnt gagnaver og fiski-
mjölsverksmiðjur,“ segir Hörður og
heldur áfram:
„Oft byrja nýir kaupendur með
samningum um kaup á kannski 1 MW
en þurfa meira síðar. Í dag getum við
ekki sinnt slíku og því þarf að virkja
meira. Á hverjum tíma eru uppi ýms-
ar hugmyndir um atvinnuuppbygg-
ingu úti á landi. Fjárfestar skoða
möguleika gjarnan í samvinnu við
heimamenn en þegar ekki fæst raf-
magn detta málin upp fyrir.“
Framkvæmdir við byggingu
Þeistareykjavirkjunar eru nú í há-
marki. Áætlað er að 45 MW virkjun
þar verði gangsett eftir tvö ár. Í fram-
haldinu er horft til stækkunar um
helming, það er meðal annars til að
útvega orku fyrir iðnað á Bakka við
Húsavík. Suður- og SV-land eru í
raun eini staðurinn á landinu þar sem
auðvelt er að afhenda nýjum kaup-
endum raforku.
Annars staðar eru hindranir, svo
sem á Eyjafjarðarsvæðinu. Til að
mæta orkuþörf þar hefur verið horft
til Blönduvirkjunar, það er að byggja
nýjar virkjanir á veituleið virkjunar-
innar, það er frá uppistöðulóni að afl-
stöð. Það mál er í biðstöðu sem stend-
ur vegna deilna um stæði háspennu-
lína yfir Skagafjörð.
Hvammsvirkjun á gulu ljósi
Járnin sem Landsvirkjunarmenn
hafa í eldinum um þessar mundir eru
fleiri. Bygging þriggja virkjana í
neðri hluta Þjórsár hefur lengi verið í
deiglu og nú er verkefnið að hluta
komið á gult ljós, ef svo má segja.
Hvammsvirkjun, sem verður efst
þessara stöðva, hefur verið færð úr
bið- í nýtingarflokk rammaáætlunar.
Mat á umhverfisáhrifum Hvamms-
virkjunar lá fyrir árið 2003. Verði hins
vegar ekki ráðist í framkvæmdir inn-
an tíu ára þarf að meta hvort nýjar
uplýsingar hafi komið fram þannig að
endurtaka þurfi umhverfismatið að
hluta eða öllu leyti. Nú, tólf árum síð-
ar, er þess þá beðið að Skipulags-
stofnun úrskurði hvort umhverfis-
matið gildi enn. Ætti úrskurður
stofnunarinnar um það að liggja fyrir
mjög fljótlega, segja Landsvirkjunar-
menn.
Markaðurinn kallar
á meira rafmagn
Aðeins hægt að sinna nýjum kaupendum sunnanlands
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjórsá Fremst á myndinni er lónstæði væntanlegrar Hvammsvirkjunar.
Innar sést Búrfell, þar sem hefja á byggingu nýs orkuvers á næsta ári.
Vel viðraði í höfuðborginni um helgina og margir nýttu
sólarstundirnar til útivistar. Margir fóru í göngur og
sem endranær busluðu margir í Nauthólsvíkinni. Þar
er góð aðstaða til sjósunds, sem margir stunda og telja
gera sér gott. Og þeir hinir sömu geta áfram verið í
sportinu, því veðurspáin fyrir næstu daga er ágæt.
Blíðuveður var í borginni um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjósund í sólskini að hausti
Fjórir Íslendingar eru í hópi ellefu
manna sem lögregla á Spáni hand-
tók um helgina í tengslum við fíkni-
efnamál í bænum Molina de Segura
sem er í suðausturhluta landins.
Þar í bæ fannst stórt gróðurhús
með háþróuðum búnaði til kanna-
bisræktunar. Húsið hefur nú verið
tekið ofan, en verðmæti ræktunar
og starfseminnar þar er talið mega
virða til einnar milljónar evra, eða
136 milljóna íslenskra króna. Alls
um 6000 plöntur fundust í gróð-
urhúsinu, en farið var að kanna að-
stæður þar þegar óvenjulegar
sveiflur í rafmagnsnotkun þar
komu fram á mælum.
Fyrst voru átta manns, sjö Hol-
lendingar og einn Íslendingur,
handteknir í tengslum við málið og
samkvæmt grein spænska dag-
blaðsins La Opinión de Murcia
tengjast mennirnir skipulagðri
glæpastarfsemi sem snýst um að
flytja kannabisefni til Hollands. Á
síðari stigum voru þrír Íslendingar,
sem taldir eru vitorðsmenn hinna
fyrrnefndu, handteknir á leið sinni
frá Spáni. Tveir náðust þegar þeir
reyndu að komast úr landinu ak-
andi en sá þriðji á flugvelli í Alic-
ante á leið til Íslands.
Að sögn Urðar Gunnarsdóttur,
upplýsingafulltrúa utanríkisráðu-
neytisins, er málið ekki komið á
þess borð. sbs@mbl.is
Fjórir Íslendingar í fíkniefnamáli
Handtökur á Spáni Risaverksmiðja
í Molina de Segura Skipulagt starf
Kannabis Mikil rafmagnsnotkun vakti grun um framleiðslu í gróðurhúsi.