Morgunblaðið - 12.10.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2015
Útsala útsala
Mikið úrval af
heimilistækjum
á miklum afslætti
234.900
187.900
213.900
169.900
289.900
189.900
279.900
223.900
109.900
76.900
106.900
74.500
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18, laugard. kl. 11-14. Allt fyrir eldhúsið
122.900
79.900
20-70%afsláttur
heimilistæki
Nikulás Svíaprins, sonur Madeleine
Svíaprinsessu og Chris O’Neill, var
færður til skírnar í gær. Meðlimir
sænsku konungsfjölskyldunnar
voru viðstaddir ásamt nánum vin-
um hjónanna.
Athöfnin var falleg og hátíðleg
og fór fram í kirkjunni í Drottning-
arhólmi eða Drottningholms slott í
Stokkhólmi. Guðforeldrar Nikulás-
ar litla eru sex talsins. Þau eru
Karl Filippus, Svíaprins, Natascha
Abensperg und Traun, systir
O‘Neill, Gustaf Magnuson, frændi
prinsessunnar, Henry d‘Abo, mág-
ur O‘Neill, Katarina von Horn, vin-
kona prinsessunnar og Marco Waj-
selfisz, skólafélagi O‘Neill.
Aðrir gestir voru meðal annars
Stefan Löfvén, forsætisráðherra
Svíþjóðar og þingkonan Anna Kin-
berg Batra.
Nikulás kom í heiminn 15. júní
og heitir fullu nafni Nikulás Páll
Gústaf. Hann er sjötti í röðinni að
sænsku krúnunni. Hann verður það
þó ekki lengi þar sem móðursystir
hans, Viktoría, gengur nú með
barn og er áætlað að það fæðist í
mars á næsta ári. Það barn mun
taka sæti Nikulásar sem verður þá
sjöundi í röðinni. Fjölskyldan flutti
til Lundúna eftir fæðingu drengs-
ins og munu þau búa þar næstu tvö
árin.
Hann virtist una sér vel í kirkj-
unni en lét þó heyra í sér þegar at-
höfnin sjálf fór fram.
AFP
Athöfn Skírn Nikulásar fór fram í gær en hann er sonur Madeleine prinsessu.
Konungleg skírn á
Drottningarhólmi
Sonur Svíaprinsessu skírður í gær
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Þúsundir einstaklinga söfnuðust
saman á götum úti í Ankara, höf-
uðborg Tyrklands, í gær til þess að
lýsa vanþóknun sinni á ríkisstjórn
landsins og um leið minnast þeirra
95 sem létu lífið í tvöfaldri sprengju-
árás á friðsöm mótmæli í borginni á
laugardag.
Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í
Tyrklandi og hafa yfirvöld þar í
landi kallað árásirnar hryðjuverk og
neita að þau beri ábyrgð á ofbeld-
inu. Forsætisráðherra landsins Ah-
met Davutoglu greindi frá því í dag
að sönnunargögn bentu til þess að
um tvær sjálfsmorðssprengingar
hefði verið að ræða.
Sprengjurnar sprungu nálægt að-
allestarstöð borgarinnar en fólk
safnaðist þar saman til að taka þátt
í friðarsamkomu sem skipulögð var
af vinstrisinnuðum hópum. Hóparn-
ir hafa krafist þess að ofbeldinu á
milli PKK, uppreisnarhóps tyrk-
neskra Kúrda og tyrkneskra stjórn-
valda myndi ljúka.
Ríki íslams eða Kúrdar
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á
árásinni en Davutoglu hefur sagt að
hann telji að annað hvort Ríki ísl-
ams eða Kúrdar beri ábyrgð á árás-
inni.Sérfræðingar segja að árásin í
gær hafi verið svipuð og sú sem
framin var í Suruc í Suður-Tyrk-
landi í júlí. Ríki íslams lýsti yfir
ábyrgð á henni en þar létust 30
manns. Mótmælendur sem komu
saman í Ankara í gær og söfnuðust
saman á Sihhiye torgi í miðborg
höfuðborgarinnar, rétt hjá vettvangi
árásarinnar, kenndu forseta lands-
ins, Recep Tayyip Erdogan um
ódæðisverkið og kölluðu hann morð-
ingja.
Kosningar eru áætlaðar 1. nóv-
ember næstkomandi og er talið lík-
legt að hryðjuverkið um helgina eigi
eftir að ýta undir enn frekari
spennu í Tyrklandi.
Greint hefur verið frá því að 95
eru látnir, 508 særðir og þar af 160
enn á sjúkrahúsi og 19 á gjörgæslu.
Mótmælt þrátt fyrir
hryðjuverkaárás
Alls eru 95 látnir og 508 særðir eftir hryðjuverkaárás í Tyrklandi
AFP
Mótmæli Þúsundir komu saman í höfuðborg Tyrklands, Ankara, til að lýsa
yfir vanþóknun á ríkisstjórn landsins og minnast þeirra sem féllu í árásinni.
Hryðjuverk
» Greint hefur verið frá því að
95 séu látnir og 508 særðir.
» Af særðum eru 160 enn á
sjúkrahúsi og 19 á gjörgæslu.
» Enginn lýst yfir ábyrgð á
árásinni enn.
» Stutt í kosningar og mikil
spenna í landinu.
» Þúsundir mótmæla og votta
látnum virðingu sína í höfuð-
borg Tyrklands.