Morgunblaðið - 14.10.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.10.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 Ríkisútvarpið (RÚV) ohf. skrifaði í gær undir samning um sölu bygg- ingarréttar við Efstaleiti 1, við hlið Útvarpshússins. Kaupandinn er einkahlutafélag með ábyrgð Skuggabyggðar ehf. Áætlað er að salan skili ávinningi upp á 1,5 milljarða króna og verður hann notaður til að greiða niður skuldir opinbera hlutafélagsins, samkvæmt fréttatilkynningu. Fjárhagsleg endurskipulagning á starfsemi RÚV hefur staðið yfir. Afkoma síðustu tólf mánaða stað- festir þann viðsnúning sem orðið hefur í rekstri félagsins. Unnið er að deiliskipulagi lóð- arinnar við Efstaleiti á grundvelli vinningstillögu Arkþings um skipu- lag svæðisins. Ætlunin er að þar verði blönduð byggð. gudni@mbl.is Útvarpslóðin seld í gær  RÚV ohf. notar peningana til að greiða niður skuldir Teikning/Arkþing Efstaleiti 1 Arkþing vann samkeppnina um skipulag svæðisins. Staðan í kjaramálum verður efst á baugi á tveggja daga þingi Starfsgreina- sambandsins, sem hefst í dag á Hótel Natura í Reykjavík. Landssambandið fagnaði í gær 15 ára afmæli sínu með sérstöku málþingi. Þingið hefst í dag með ávörpum Eyglóar Harðardóttur, ráð- herra félags- og húsnæðismála, og Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ. Þá verður Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, með yfirlit yfir þróun og horfur í kjaramálum. Kosning formanns, varaformanns og fimm manna í fram- kvæmdastjórn sambandsins fer fram á morgun og þá verða ályktanir þingsins afgreiddar. Óvissa kjaramála efst á baugi FIMMTA ÞING STARFSGREINASAMBANDSINS HEFST Í DAG SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Dökkt útlit er í kjaradeilu ríkisins við SFR, Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) og Landssamband lögreglumanna (LL). Verkfallsaðgerðir SFR og sjúkraliða hefjast að óbreyttu á mið- nætti í kvöld. Mjög mikið ber enn á milli í deilunni. Ekki hefur verið hald- inn sáttafundur frá því í seinustu viku en deilendur eru boðaðir til sáttafundar kl. 10 í dag, þar sem reyna á til þraut- ar hvort unnt verður að ná sam- komulagi og af- stýra verkföllum. ,,Þetta er ansi þungt og ber mik- ið í milli,“ segir Gunnar Björnsson, formaður Samninganefndar ríkisins (SNR). „Maður sér ekki að það detti af himnum ofan einhver lausn á því núna,“ bætir hann við. SFR er stærsta félag ríkisstarfs- manna og sjúkraliðar eru önnur stærsta fagstéttin á heilbrigðisstofn- unum. Tekur Gunnar undir að verk- föll þessara starfsmanna muni því hafa gríðarleg áhrif út um allt og að- gerðirnar séu jafnvel umfangsmeiri en verkföllin sl. vor. Ekki sambærilegt við samninga ríkisins við SGS og Flóann Félögin þrjú hafa krafist þess að fá sambærilegar kjarabætur og aðrir ríkisstarfsmenn hafa þegar fengið, „hvorki meira né minna“ eins og seg- ir í fréttatilkynningu í gær. Jafn- framt hafa forystumenn þeirra sagt að ríkið hafi í seinustu viku samið við Starfsgreinasambandið (SGS) og Flóafélögin um sambærilega hækk- un og félögin séu að biðja um. Gunnar segir þessa samninga ekki sambærilega. Í viðræðunum við SFR, sjúkraliða og lögreglumenn sé við allt aðra mynd að glíma, miklu breiðara launasvið og annars konar áherslur og kostnaðaráhrif samning- anna séu líka ólík. Gunnar segir að kostnaðaráhrif samninganna við SGS og Flóafélögin séu ekki sambærileg við það sem tek- ist er á um við samningaborðið í deil- unni við BSRB-félögin. Í samningun- um við SGS og Flóafélögin hafi fyrst og fremst verið byggt á útfærslu í kjarasamningum sem gerðir hafa verið á almenna markaðinum, auk þess sem samið hafi verið um örlitla viðbót vegna sameiningar heilbrigð- isstofnana en stór hópur félags- manna í SGS vinnur á heilbrigðis- stofnunum úti á landi, þar sem unnið er m.a. að samræmingu stofnana- samninga. Að mati ríkisins eykst launakostn- aður vegna samninganna við SGS og Flóafélögin um nálægt 28%. Að mati Flóafélaganna fela þeir þó í sér ívið meiri hækkun eða tæplega 30% en þeir gilda fram á árið 2019. Yrði meira en okkar litla efnahagslíf þolir Gunnar segist hafa skilning á til- vísun SFR, sjúkraliða og lögreglu- manna til samstarfsmanna sinna hjá ríkinu en menn verði að horfa á stóru myndina. Þó svo að þessi kjaradeila sé í brennipunktinum núna, þá sé sviðið miklu stærra. Félögin fari fram á að fá sambærilegar hækkanir og gerðardómur úrskurðaði um í máli BHM og hjúkrunarfræðinga ,,Það teljum við að sé meira en okkar litla efnahagslíf þolir,“ segir Gunnar og bendir á að það hefði alvarlegar af- leiðingar yfir allan vinnumarkaðinn ef það leiddi til þess að kjarasamn- ingum ASÍ félaganna yrði sagt upp í febrúar. Þá beri að hafa í huga þegar horft er á útfærslur gerðardómsins í heild sinni að hann taki aðeins til tæplega 3% alls vinnumarkaðarins. „Við eig- um ennþá eftir að ganga frá samn- ingum við tæplega 60% okkar starfs- manna,“ segir Gunnar. Reyndu að koma böndum á höfrungahlaupið Menn séu því ekki eingöngu að leita að lausn fyrir þessi þrjú stétt- arfélög því það sem skipti öllu máli sé að aðrir hópar muni áreiðanlega líta til þess sem samið verður um við þau og vilji fá hið sama. Gunnar segir því ekki hægt að taka niðurstöðu gerð- ardóms í máli BHM og hjúkrunar- fræðinga frá í ágúst, og fylgja henni í öllum samningum sem eftir er að gera. Ef það yrði gert hefði það mikl- ar afleiðingar. Þess vegna hafi menn verið að reyna að koma böndum á höfrunga- hlaupið á vinnumarkaði í svonefndum Salek-umræðum, þar sem reynt var að ná samkomulagi allra heildarsam- taka á vinnumarkaði um launaþróun og bætt vinnubrögð við gerð kjara- samninga. Ef engin slík niðurstaða lægi fyrir og ríkið færi að semja á sambærilegum nótum og úrskurður gerðardóms, „þá er nokkuð ljóst að endurskoðun kjarasamninga í febr- úar er í algjöru uppnámi,“ segir hann. Ekki hefur verið boðað til frek- ari funda í Salek-hópnum Skv. heimildum Morgunblaðsins var komin á borðið lausn í Salek-við- ræðunum, sem var talin geta leyst yf- irstandandi kjaradeilur BSRB-félag- anna. Það var þó háð því að samkomulag tækist um alla aðra þætti sem stilla þurfti saman en upp úr þeim viðræðum slitnaði í síðustu viku vegna lífeyrismála. Spurður um þetta segir Gunnar að í þeim viðræðum hafi menn verið að reyna að búa til sameiginlega línu í launamálum yfir nokkurra ára tíma- bil þannig að í lokin væru allir nokk- urn veginn á sama punkti og að við upphaf næstu samningalotu væri þá búið að stilla launaþróunina þannig af, að ekki þyrfti að byrja þá lotu á einhverjum leiðréttingum. Ekki hefur verið boðað til annars fundar í Salek-hópnum. ,,Þetta er ansi þungt og ber mikið í milli“  Reyna sættir í dag en víðtæk verkföll eru að bresta á Morgunblaðið/Eggert Fundarhöld Sáttasemjari hefur boðað deilendur til sáttafundar kl. 10 í dag. Gunnar Björnsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Kjarasamningarnir sem Starfs- greinasambandið og Flóafélögin gengu frá við ríkið í seinustu viku fela í sér þegar allt er talið fast að 30% hækkun launa yfir samn- ingstímabilið að mati Eflingar stéttarfélags. Ríkið metur kostnaðarhækk- anirnar örlítið minni eða um 28%. Hafin er at- kvæðagreiðsla um kjarasamn- ingana og eiga niðurstöður að liggja fyrir 30. októ- ber. Samningurinn sem gildir frá 1. maí sl. er lengri en samningar sem gerðir voru á almenna markaðinum eða til 31. mars 2019 og var því sam- ið um 45 þús. kr. eingreiðslu í febr- úar það ár. Að mati Eflingar er um verulegar launahækkanir að ræða við upphaf samnings þar sem launa- taxtar hækka um 25.000 kr. eða að meðaltali um 9,78%. Fá einnig það sem opinberir starfsmenn hafa fengið Harpa Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu, segir að í grunninn séu samningarnir sam- bærilegir við samningana sem gerð- ir voru á almenna markaðinum í vor „en það sem skilur hér á milli er að hópurinn í heild sinni hér er á töxt- um en á almenna markaðinum eru um 40% af okkar fólki á töxtum,“ segir hún. „Við teljum okkur vera að fá einn- ig það sem aðrir opinberir starfs- menn hafa fengið, eins og t.d. lag- færingar stofnanasamnings, sem er líka einhvers virði. Eftir því sem ég heyrði er einnig búið að bjóða SFR og sjúkraliðum það, þannig að þar með eru þau komin í 30%,“ segir hún. Aðspurð segir Harpa erfitt að skilja á hverju strandar í kjaradeilu ríkisins við SFR, sjúkraliða og lög- reglumenn. ,,Við erum fyrst og fremst að vinna eftir því hvað okkar bakland leggur til. Við fórum reglu- lega yfir stöðuna og það var okkar mat að nú væri kominn tími til að leggja þetta í hendurnar á félags- mönnum og sjá hvort þeir teldu þetta ásættanlega niðurstöðu. Síðan getur sú staða komið upp síðar meir að aðrir hafi fengið eitthvað meira og þá er umræðan tekin að nýju en einhvers staðar verður að höggva á hnútinn og segja þetta er það sem er í boði núna,“ segir hún. Stefnt er að því að ganga frá sam- bærilegum samningi við hjúkr- unarheimili á næstu dögum en þar eru hátt í 2.000 félagsmenn í Flóa- félögunum. Tæp 30% hækk- un SGS og Flóa  Til jafns við opinbera starfsmenn Hækkanir á hverju ári » Í samningum SGS og Flóans hækka launataxtar að lágmarki um 15.000 kr. 1. júní 2016 auk leiðréttingar á launatöflu sem jafngildir 5,9% hækkun. » Taxtar hækka um 4,5% 1. júní 2017 og 3% 1. júní 2018. » Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstím- anum og verður komin í 300.000 kr. l. maí 2018. Harpa Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.