Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015
Frá og með 1. nóvember verður
strætóstöðinni á Hlemmi í Reykja-
vík lokað kl. 19 alla virka daga og
kl. 16 um helgar.
Strax eftir áramótin 2016 mun
Reykjavíkurborg hefja fram-
kvæmdir við Hlemm og verður hús-
inu þá lokað alfarið. Mun núverandi
starfsemi í húsinu þá leggjast af.
Strætó bs. mun áfram leigja lít-
inn hluta húsnæðisins undir starfs-
mannaaðstöðu fyrir vagnstjóra
sína. Starfsemi Strætó mun færast
í Vatnsmýrina þegar ný umferðar-
miðstöð verður tekin þar í notkun.
Fram kemur í tilkynningu frá
Strætó að farmiðasala muni m.a.
færast yfir til verslunar 10-11 á
Laugavegi 116.
Reykjavíkurborg auglýsti í sum-
ar eftir rekstraraðila til að koma á
fót veitinga- og matarmarkaði í
húsinu á Hlemmtorgi. Fram kom í
Morgunblaðinu í júlí að nokkrar
umsóknir hefðu borist og væru til
skoðunar.
Strætóstöð á
Hlemmi lokað
Til stendur að opna matarmarkað
Morgunblaðið/Eggert
Hlemmur Til stendur að opna matarmarkað á Hlemmtorgi.
Um síðustu helgi fór fram á Selfossi
37. landsþing Kvenfélagasambands
Íslands. Yfirskrift þingsins var:
„Hækkum flugið – kosningaréttur
kvenna í eina öld.“ 180 konur af
öllu landinu sóttu þingið.
Nýr forseti og nokkrar konur í
stjórn voru kjörin á þinginu. Guð-
rún Þórðardóttir, Kvenfélagi
Grímsneshrepps og fráfarandi
varaforseti, er forseti KÍ. Vilborg
Eiríksdóttir, Kvenfélagi Mosfells-
bæjar, er varaforseti, Bryndís Birg-
isdóttir, Kvenfélaginu Ársól á Suð-
ureyri og fráfarandi meðstjórn-
andi, er gjaldkeri, Herborg
Hjálmarsdóttir, Kvenfélaginu Gefn
í Garði, er ritari og Bergþóra Jó-
hannsdóttir, Kvenfélaginu Hjálp-
inni í Eyjarfjarðarsveit, er með-
stjórnandi. Katrín Haraldsdóttir,
Kvenfélaginu Einingu á Mýrum, og
Kristín Árnadóttir, Kvenfélaginu
Iðunni í Strandasýslu, voru kjörnar
í varastjórn. Sigurlaug Viborg,
fyrrverandi forseti KÍ, var kjörin
nýr heiðursfélagi Kvenfélaga-
sambandsins.
Í ályktun landsþingsins var m.a.
fagnað vitundarvakningu sem orðið
hefur um bætta nýtingu matvæla.
Þingið hvatti almenning sem og
stjórnendur matvöruverslana,
mötuneyta og veitingastaða til að
vinna áfram gegn matarsóun. Inn-
kaup þurfi að vera ábyrg. Matvara
sem komin er á síðasta söludag eða
nálgast best fyrir-stimpil sé í flest-
um tilfellum í lagi sé hún nýtt strax
eða fryst. Slíkar matvörur ætti að
gefa eða bjóða til sölu á niðursettu
verði.
Fagna betri nýtingu á mat
Kvenfélagasambandið Ný stjórn tók við á þinginu á Selfossi.
Fjölmennt landsþing Kvenfélagasambands Íslands
Nýtt dagskrár-
svið hefur verið
sett á laggirnar
hjá fjölmiðlafyr-
irtækinu 365.
Undir sviðið
heyra sjónvarps-,
útvarps- og
íþróttadeildir
365. Jón Gnarr,
sem verið hefur
ritstjóri innlendrar dagskrár, er
framkvæmdastjóri hins nýja sviðs.
Fram kemur í tilkynningu frá 365,
að samfara þessum breytingum fær-
ist mannauðsmál og greiningar und-
ir framkvæmdastjóra fjármálasviðs,
Guðmundu Ósk Kristjánsdóttur.
Haft er eftir Sævari Frey Þráins-
syni, forstjóra 365, að með þessum
breytingum sé verið að einfalda
skipulag og skerpa á ábyrgðarsviði
stjórnenda. Bindi hann vonir við að
þær efli fyrirtækið enn frekar í sam-
keppni og síbreytilegu umhverfi.
Jón Gnarr yfir-
maður dag-
skrársviðs 365
Jón Gnarr
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Bæjarráð Akraness hefur óskað eft-
ir frekari upplýsingum frá HB
Granda um útfærslu fyrirtækisins á
þeim breytingum sem fyrirhugaðar
eru á hausaþurrkun þess í bænum.
HB Grandi rekur tvær hausaþurrk-
anir í bænum, forþurrkun að Breið-
argötu 8B og eftirþurrkun að Vest-
urgötu 2.
Íbúar bæjarins hafa kvartað yfir
slæmri lykt sem berst frá starfsem-
inni og hafa krafist úrbóta, eða þess
að starfsemin flytjist einfaldlega
fjær bænum.
Fyrirtækið hefur lagt fram tillögu
að deiliskipulagsbreytingu þar sem
húsnæðið að Breiðargötu yrði
stækkað í tveimur áföngum og fram-
leiðslugetan aukin í 200-250 tonn á
viku í fyrstu og 500-600 tonn eftir
seinni áfangann. Skipulagið heimilar
nú framleiðslu á 170 tonnum á viku.
Í fyrri áfanganum væri bætt við
forþurrkunina við Breiðargötu að-
stöðu til eftirþurrkunar, þurrkajöfn-
un og pökkun. Í seinni áfanganum
væri bætt við aðstöðu til annars kon-
ar eftirþurrkunar á færiböndum.
Bæjarráðið telur þær upplýsingar
sem borist hafa frá fyrirtækinu
ófullnægjandi og er sérstaklega ósk-
að eftir upplýsingum um varnir gegn
lyktinni sem borist hefur frá starf-
seminni í óþökk íbúa.
Vilja meiri
gögn frá
HB Granda
Ljósmynd/Akraneskaupstaður
Frá Akranesi Bæjarstjórnin vill frekari upplýsingar frá HB Granda.