Morgunblaðið - 14.10.2015, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hollenskt rannsóknarráð hefur komist að
þeirri niðurstöðu að BUK-flugskeyti, smíðað í
Rússlandi, hafi grandað farþegaþotu Malaysia
Airlines sem hrapaði í austanverðri Úkraínu í
júlí í fyrra. Þetta kemur fram í lokaskýrslu
ráðsins sem birt var í gær.
Rannsóknarráðið kvaðst ekki hafa haft um-
boð til að skera úr um hverjir hefðu skotið flug-
skeytinu og sagði það vera hlutverk hollenskra
saksóknara sem hafa þegar hafið rannsókn á
málinu. 298 manns létu lífið þegar þotan hrap-
aði, þeirra á meðal 196 Hollendingar. Hún hef-
ur verið kennd við flugnúmerið MH17 og var á
leiðinni frá Amsterdam til Kuala Lumpur,
höfuðborgar Malasíu.
Rússar vefengja niðurstöðurnar
Ráðið afmarkaði um 320 ferkílómetra svæði,
sem talið er að flugskeytið hafi komið frá, en
tiltók ekki hvort því hefði verið skotið frá yfir-
ráðasvæði rússneskumælandi aðskilnaðar-
sinna sem hafa barist gegn stjórnarher Úkra-
ínu með aðstoð Rússa.
Hollenska dagblaðið Volkskrant hafði í gær
eftir heimildarmanni sem tengist rannsókninni
að grunur léki á því að aðskilnaðarsinnar hefðu
skotið flugskeytinu með aðstoð fyrrverandi
rússneskra hermanna. „BUK-flaugin var
hönnuð og smíðuð í Rússlandi,“ sagði hann.
„Hægt er að ganga út frá því að uppreisnar-
mennirnir hafi ekki getað beitt slíkum búnaði.
Mig grunar að fyrrverandi rússneskir her-
menn séu viðriðnir þetta.“
Fréttavefur breska ríkisútvarpsins hefur
eftir vopnasérfræðingum að her Úkraínu eigi
einnig BUK-flugskeyti sem eru ætluð til loft-
varna. Arsení Jatsenjúk, forsætisráðherra
Úkraínu, sagði að enginn vafi léki á því að rúss-
neskir sérsveitarmenn væru viðriðnir árásina
á farþegaþotuna en stjórnvöld í Rússlandi hafa
neitað þeirri ásökun. Rússneska ríkisfyrirtæk-
ið Almaz-Antey, sem framleiðir flugskeytin,
kvaðst hafna niðurstöðum rannsóknarráðsins
og hafa gert eigin tilraunir sem afsönnuðu
„niðurstöður ráðsins um tegund flugskeytisins
og skotstaðinn“.
Rússar aðstoði við rannsóknina
Rannsóknarráðið gagnrýndi yfirvöld í Úkra-
ínu fyrir að hafa ekki bannað flug yfir austur-
héruðum landsins þrátt fyrir átökin sem geis-
uðu þar. Ráðið sagði að um 160 farþegavélar
hefðu flogið yfir átakasvæðunum daginn sem
þotunni var grandað. Ráðið komst einnig að
þeirri niðurstöðu að flugmenn þotunnar hefðu
dáið samstundis þegar þotan varð fyrir flug-
skeytinu en sumir farþeganna hefðu ef til vill
verið með meðvitund þegar þotan hrapaði, eða
í allt að 90 sekúndur.
Stjórnvöld í Malasíu sögðust ætla að beita
sér fyrir því að „glæpamennirnir“, sem bæru
ábyrgð á árásinni, yrðu sóttir til saka. Mark
Rutte, forsætisráðherra Hollands, hvatti
stjórnvöld í Rússlandi til að aðstoða saksókn-
ara við rannsóknina á því hverjir skutu flug-
skeytinu.
Rússar beittu neitunarvaldi sínu í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna í júlí þegar lagt var
til að skipaður yrði sérstakur dómstóll til að
rannsaka hverjir bæru ábyrgð á því að þotan
hrapaði. Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
sagði þá að slík rannsókn væri „ótímabær“ og
„tilgangslaus“.
Grandað með flugskeyti
sem var smíðað í Rússlandi
Úkraínumenn gagnrýndir fyrir að hafa ekki bannað flug yfir átakasvæðum
Hollenskt rannsóknarráð birti í gær skýrslu um orsök þess að farþegaþota Malaysia Airlines hrapaði í júlí í fyrra
Farþegaþota Malaysia Airlines skotin niður
Malaysia Airlines,
flug MH17,
Boeing 777-200
Farþegar: 283
Áhöfn: 15
Hrapaði
17. júlí
2014Amsterdam
Kuala
Lumpur
MALASÍA
ÚKRAÍNA
Áætluð
leið
Leið þotunnar
HOLLAND
ÞÝSKALAND
ÚKRAÍNA
RÚSSLAND
Kænugarður
Donetsk
Moskva
Amsterdam
Flugtak
Kl. 10.15
Kl. 11.00
Kl. 12.00
Kl. 13.00
Hvarf af ratsjá kl. 13.21,
hrapaði á svæði sem
er á valdi aðskilnaðar-
sinna í Austur-Úkraínu
PÓLLAND
300 km
Heimildir: Malaysia Airlines/Flightradar24/Airbus DS/ AllSource Analysis/Rannsóknarráð öryggismála í Hollandi.
Að minnsta kosti þrír Ísraelar létu lífið og
margir særðust í árásum Palestínumanna á
gyðinga í Jerúsalem í gær. Alls hafa um 25
Palestínumenn og sjö Ísraelar beðið bana í
átökum og árásum sem hafa verið gerðar nær
daglega frá byrjun mánaðarins, að sögn frétta-
veitunnar AFP. Óttast er að ný uppreisn, eða
intifada, geti hafist meðal Palestínumanna
með miklum blóðsúthellingum eins og á ár-
unum 1987-1993 og 2000-2005 þegar hundruð
manna biðu bana í nær daglegum átökum milli
Palestínumanna á hernumdu svæðunum og
ísraelskra öryggissveita.
Í einni árásanna í gær hóf Palestínumaður
skothríð á strætisvagn í austurhluta Jerú-
salem með skammbyssu og annar réðst á um
fimmtán farþega hennar með tveimur hnífum.
Tveir Ísraelar létu lífið og um tíu aðrir særð-
ust. Annar árásarmannanna beið bana og hinn
særðist í átökum við lögreglumenn. Í annarri
árás ók Palestínumaður bíl á hóp fólks á
strætisvagnabiðstöð í hverfi strangtrúaðra
gyðinga og réðst síðan á það með hnífi. Að
minnsta kosti einn lét lífið og átta særðust.
Að sögn AFP hafa Palestínumenn gert
meira en tuttugu árásir á Ísraela með hnífum
frá byrjun mánaðarins. Gyðingur særði fjóra
Palestínumenn í árás í hefndarskyni í bænum
Dimona í suðurhluta Ísraels í vikunni sem leið.
AFP
Blóðug árás Lík Ísraela flutt eftir árás Pal-
estínumanns á strætisvagn í Jerúsalem.
Óttast nýja
intifada
Árásir gerðar á Ísraela
Fjölskylda 74 ára gamals
Breta, sem var dæmdur til
hýðingar í Sádi-Arabíu fyr-
ir brot á banni við áfengi,
hvatti í gær bresk stjórn-
völd til að koma í veg fyrir
að dómnum yrði framfylgt.
Bretinn Karl Andree hefur
þegar afplánað árs fang-
elsisdóm eftir að hann var
handtekinn með heima-
bruggað vín í fórum sínum og hann á nú yfir
höfði sér 350 vandarhögg. Fjölskylda Andree
segir að hann sé heilsuveill eftir að hafa
gengist undir krabbameinsmeðferðir og ótt-
ast að hann lifi ekki hýðingarrefsinguna af
verði dómnum fullnægt. Breska utanríkis-
ráðuneytið kvaðst vera að beita sér fyrir því
að Andree yrði leystur úr haldi. Hann hefur
búið í Sádi-Arabíu í 25 ár og starfað fyrir
olíufyrirtæki.
SÁDI-ARABÍA
Dæmdur til 350 vandar-
högga fyrir að eiga vín
Karl Andree
Brennuvargar hafa gert tugi árása á gisti-
heimili fyrir hælisleitendur í Þýskalandi síð-
ustu mánuði, að sögn þýskra fjölmiðla. Hér
má sjá hakakross og orðin „burt“ og
„hundar“ á þýsku í stigagangi eins gistiheim-
ilanna í Waltrop í austurhluta landsins.
AFP
Árásir á gistiheimili hælisleitenda
Saksóknarar í Dresden í
Þýskalandi sögðust í gær
vera að rannsaka mótmæli
öfgahreyfingarinnar
PEGIDA gegn flóttafólki á
mánudagskvöld þegar
mótmælendur héldu á
litlum gálgum, snörum og
spjöldum þar sem fram
kom að snörurnar væru
ætlaðar Angelu Merkel
kanslara og Sigmar Gabr-
iel, varakanslara og leiðtoga þýskra jafn-
aðarmanna. Saksóknararnir eru að rannsaka
hvort hvatt hafi verið til manndrápa og ann-
arra glæpa með þessu athæfi og sögðu að
yrðu mótmælendurnir ákærðir ættu þeir allt
að fimm ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Haft
er eftir þýskum þingmönnum að þeim ofbjóði
hatursáróður PEGIDA sem segist berjast
gegn „íslamsvæðingu Vesturlanda“.
ÞÝSKALAND
Rannsaka „snöru
fyrir Angelu Merkel“
Angela Merkel
kanslari.