Morgunblaðið - 14.10.2015, Page 31

Morgunblaðið - 14.10.2015, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 ✝ Óli Jón Ólasonfæddist í Reykjavík 17. október 1933. Hann lést 7. októ- ber 2015. Foreldrar hans voru Arnlín Petrea Árnadóttir og Óli Jón Ólason. Systk- ini Óla eru El- ínborg, sem er lát- in, Elín og Gunnar. Óli kvæntist 16. október 2003 Steinunni Hansdóttur. Þau áttu ekki börn saman en samtals áttu þau átta börn og 37 barna- og barnabörn. Fyrri kona Óla var Steinunn Þor- steinsdóttir. Börn þeirra eru: Arnlín Þuríður, f. 1953, gifist Ólafi Einarssyni. Dóttir þeirra er Lísa. Synir Lísu og Jóhann- esar Guðjónssonar eru Kári og Sindri. Seinni maður Lísu er Birgir Jónsson. Synir hans eru Daníel og Alex. Seinni maður Arnlínar er Magnús Rafnsson. Börn þeirra eru Hrönn og Bjarki. Sambýliskona Bjarka er Arna Þorleifsdóttir, börn þeirra eru Ari og Silva. Óli Jón, f. 1956, kvæntist Kolbrúnu Baldursdóttur, dætur þeirra eru Bergey, Dætur Bergeyjar og Eiriks Oppedal eru Anna og Mari, Berglind, sonur hennar er Benjamín. Sambýlismaður björg Sólrún, sambýlismaður hennar er Eiríkur Árni Guð- mundsson, þeirra dóttir er Elín Indra. Ágúst kvæntist Jóhönnu Bjarnson og eru börn þeirra Viktoría Hlín og Birkir. Ágúst og Jóhanna skildu. Börn Stein- unnar Hansdóttur og Kristjáns Grímssonar eru: Hrefna Rut Kristjánsdóttir, f. 1967, sam- býlismaður Stefán Smári Krist- ófersson, þeirra börn eru Steinunn og Vignir Snær. Kristján Hreiðar Kristjánsson, f. 1972, sambýliskona Lára Jakobsdóttir, synir þeirra eru Oliver Aron og Ísak Dagur. Óli ólst upp í Laugarásnum, hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands. Starfsvettvangur Óla var á sviði ferðamála nær alla hans starfsævi. Hann rak m.a. Skíða- skálann í Hveradölum, Hótel Akranes og Hótel Reykholt, starfaði sem ferðamálafulltrúi á Suður- og Vesturlandi var framkvæmdastjóri ferðaskrif- stofunnar Lands og sögu, eig- andi ferðaskrifstofunnar Þemaferðir og rak Tourist Market í Grundarfirði þar sem hann bjó ásamt konu sinni síð- ustu árin. Óli var mikill at- hafnamaður og frumkvöðull á mörgum sviðum. Hann var virkur í félagsmálum og kom víða við þó ferðamálin ættu hug hans og hjarta alla tíð. Útför Óla Jóns fer fram frá Áskirkju í dag, 14. október 2015, kl. 13. Berglindar er Jan Erik Strand og á hann tvær dætur, Hilde og Tonje. Dóttir Óla og Me- rete Hansen er Solrun. Seinni kona Óla er Guri Hilstad Ólason, synir þeirra eru Óli Jón og Alex- ander. Elín Sigríð- ur, f. 1959. Dóttir hennar og Ástþórs Jónssonar er Ásta Steinunn. Elín er gift Heimi Heimssyni. Börn þeirra eru Mardís, sambýlismaður er Viðar Jónsson, Heimir Óli, sambýliskona er Kristín Ósk Óskarsdóttir. Sonur Heimis er Gunnar Cortes, sambýliskona Thereza Petkova. Guðrún Mar- grét, f. 1961, gift Guðna Krist- inssyni. Þeirra börn eru Jó- hanna, gift Jens Jensen og þeirra börn eru María Rún og Guðni Wilhelm, Freyr í sam- bandi með Anítu Ómarsdóttur. Þorsteinn Gísli, f. 1964, kvænt- ur Höllu Björk Magnúsdóttur. Börn þeirra eru Steinunn og Ari Sæberg, dóttir Steinunnar er Stína. Ágúst, f. 1969. Dóttir hans og Jóhönnu Jónsdóttur er Alexandra Mjöll. Sambýliskona hennar er Ólöf Benedikts- dóttir. Dóttir hans og Ragn- hildar Þorsteinsdóttur er Ingi- Hugmyndasmiðurinn og ferðamálafrömuðurinn elsku pabbi okkar Óli Jón er fallinn frá. Pabbi okkar sem vílaði aldrei neitt fyrir sér, var með ævintýraþrána í blóðinu, óhræddur við áhættu og fylgdi ástríðu sinni, ferðaþjónustu, eftir af fítonskrafti og eldmóði. Okkar minningar tengjast mik- ið hótelstússi hvort sem er frá Skíðaskálaárunum þar sem við vorum snemma farnar að taka til hendinni í vöfflubakstri og uppvaski undir styrkri stjórn pabba og mömmu, árin okkar á Skaganum, seinna gistihúsa- rekstur í Reykjavík og hótel- rekstur í Reykholti og Snæ- fellsnesi. Pabbi hafði unun af hótelrekstri og var góður vert. Hann elskaði að þjóna og veisl- ur voru hans sérsvið. Þar lagði hann sig allan fram og ekkert var nógu gott fyrir þá sem áttu að njóta. Okkur eru minnis- stæðar svo margar og glæsi- legar veislur sem haldnar voru á hótelárum pabba og teljum okkur einstaklega lánsamar að hafa fengið að taka þátt í undir- búningi og framkvæmd oft á tíðum. Pabbi var þó ekki bara hótel- og veitingamaður, hann var gríðarlega afkastamikill og kom mörgu í verk á sinni ævi. Hann framleiddi hugmyndir á færibandi og var óhræddur við að fylgja þeim eftir og láta draumana rætast. Stofnun og rekstur hótela, ferðaskrifstofa, rekstur héraðsfréttablaða og markaðar fyrir ferðamenn er aðeins hluti af því sem hann fékkst við á lífsleiðinni auk þess að vera mjög virkur í fé- lagsmálum alla tíð. Fyrir okkur er erfitt að aðskilja ferðaþjón- ustumanninn Óla frá pabba okkar Óla, svo mikill hluti af honum var vakinn og sofinn yf- ir ferðamálum, alltaf að spá og sá tækifæri í hverju horni, það er dásamlegur eiginleiki. Fjöl- skyldan var pabba mikilvæg og hann var í góðu sambandi við afkomendur sína og fylgdist grannt með okkur alla tíð. Við vorum ótrúlega stolt af honum og ekki síst vorum við stolt af baráttu hans við Bakkus sem hann neitaði að láta sigra sig. Þótt sá gamli gráni felldi hann stundum um stundarsakir stóð pabbi ávallt upp á ný, tvíefldur, fullur eldmóðs og fann sér verkefni sem okkur þótti stund- um nóg um en hann kláraði þau svo sannarlega með einstökum eldmóði og krafti. Í dag er þakklæti í hjörtum okkar, þakklæti fyrir að hafa átt pabba að í öll þessi ár, þakk- látar fyrir pabba sem sá ávallt björtu hliðarnar á tilverunni, þakklátar fyrir alla fimmaura- brandarana, þakklátar fyrir skemmtilegu samverustundirn- ar, þakklátar fyrir hvatningu og trú á okkur alla tíð. Elsku pabbi okkar, við elskum þig og söknum óendanlega mikið. Okkur langar að lokum að þakka Hrefnu, Stebba og fjöl- skyldu fyrir ómetanlega aðstoð og kærleika í garð pabba, elsku Steinunni fyrir ást og einstaka umhyggju á undanförnum ár- um, pabbi dýrkaði þig og dáði og fannst hann einstaklega lán- samur að hafa fengið þig inn í líf sitt. Það er við hæfi að kveðja þig elsku pabbi okkar með bæninni sem gaf þér von og trú og var þér leiðarljós á lífsins göngu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Hvíl í friði elsku pabbi okkar. Elín Sigríður (Ella Sigga) og Guðrún Margrét (Rúna Magga). Afi var skemmtilegur og eft- irminnilegur karakter. Hann var duglegur og það var aldrei spurning um hvort, heldur hvernig og hvenær. Þegar við hugsum til baka þá munum við aldrei eftir kvarti eða kveini, þar sem hann hafði gott lag á því að einbeita sér að því góða og jákvæða. Hann var umburð- arlyndur og með góða nærveru. Í öllum hans störfum og rekstri hafði hann unun af því að starfa með fjölskyldunni sinni og hafði hann mikið traust og trú á öllu sínu fólki. Sem dæmi má nefna að þegar hann og Steinunn sáu um rekstur Hótel Reykholts kom norska konungsfjölskyldan í heimsókn og fengu þá starfandi fjöl- skyldumeðlimir á hótelinu að vera þar í fremstu línu í mót- tökunefnd og taka þátt í því ævintýri. Ástu Steinunni er það einnig minnisstætt þegar hún hóf störf hjá þeim á gistiheim- ilinu á Miklubraut, en aðeins 14 ára fékk hún að starfa þar við þrif og móttöku og önnur tilfall- andi störf. Eitt af helstu aðalsmerkjum afa var áhugi hans á fólki. Hann vissi hvað var að gerast í lífi barna og barnabarna og spurði okkur systkinin spjör- unum úr við hvert tækifæri. Afi var mikið tæknitröll, með fés- bókina á hreinu og hafði gaman af að fá að fylgjast með þar. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir og þótti gaman að boltaiðkun Heimis Óla og hefur alltaf verið hans helsti stuðn- ingsmaður. Amma og afi hafa alltaf verið einstaklega gestrisin og rausn- arleg og hafa þau gefið öllum barnabörnum jólagjafir alla tíð og hefur okkur alltaf þótt svo ótrúlega vænt um hversu mikið þau leggja í það. Þau hafa alltaf lagt mikið í innpökkunina, skrifað falleg kort og hafa hald- ið nákvæmt bókhald um hvaða gjafir allir fá. Þetta sýnir svo vel væntumþykju þeirra í garð okkar allra og er með öllu ómetanlegt. Afi var mikil félagsvera og hrókur alls fagnaðar. Það hefur alltaf verið svo gaman að koma í heimsókn til afa og ömmu, alltaf svo fínt og snyrtilegt hjá þeim og góðar og veglegar veit- ingar. Síðastliðinn verkalýðs- dag keyrðu Mardís og Viðar vestur til þeirra í heimsókn - og sem áður var öllu til tjaldað - en í þetta skipti fengu þau að fara með í verkalýðskaffi í fé- lagsheimilinu. Það var ótrúlega gaman að fá að upplifa þetta með þeim og sjá hversu gott líf og góðan félagsskap þau hafa skapað sér þar. Missir okkar allra er mikill en hugur okkar systkinanna er sérstaklega með ömmu Stein- unnni sem hefur misst sinn besta vin, eiginmann og sam- starfsfélaga til margra ára. Elsku amma, afi var svo óend- anlega stoltur af að fá að standa þér við hlið. Með söknuði og sorg í hjarta er okkur þakklæti efst í huga. Það eru nefnilega ekki allir sem hafa fengið jafn góðan og lang- an tíma með afa sínum. Og við fengum mörg góð ár með skemmtilegum afa, sem hafði húmor og hressleika. Hann var meistari fimmaurabrandaranna og því þykir okkur við hæfi að kveðja með einum slíkum. Þeg- ar komið var að kveðjustund eftir heimsóknir til hans sögð- um við: „jæja - nú erum við far- in“, svaraði hann: „hva, en þið eruð enn hér?“ með bros á vör. Hvíl í friði. Ásta Steinunn, Gunnar Cortes, Mardís og Heimir Óli. Óli Jón Ólason HINSTA KVEÐJA Fallinn er vinur að foldu. Fallegur maður góður. Af hjarta svo hlýr og heitur. Til fjörs og gleði öll hans spor. Frumkvöðull og framfara. Nú drúpi ég höfði í þökk allri. Mörg voru sporin er samfélag naut. Takk kæri vinur þitt framlag var stórt. Innilegar samúðarkveðj- ur til ástvina. Ingi Hans og Sigurborg. Smáauglýsingar Sumarhús Viðhaldslítil ferðaþjónustuhús og sumarhús til sölu halliparket@gmail.com sími 894 0048 Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Barngóð kona á besta aldri Barngóð kona á besta aldri óskast til að gæta barns og annast létt heimil- isverk fyrir hádegi alla virka daga. Barnið er 1 árs. Heimilisverkin felast í frágangi í eldhúsi, frágangi á þvotti og annað tilfallandi. Reglusemi skil- yrði. Sjálfstæð vinnubrögð æskileg. Umsóknir sendast á barngod.amma@gmail.com Íslenskar handsmíðaðar barnaskeiðar Silfur táknar velsæld og góða heilsu enda er silfur verðmætt og sótt- hreinsandi efni. Silfurborðbúnaður, skart og fl. ERNA, Skipholti 3, sími 552 0775, www.erna.is Hitaveituskel 1850 L. Hitaveituskel 1650 L.     margar stærðir.         Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. Húsviðhald          www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra SKÚLA HLÍÐKVIST JÓHANNSSONAR kennara í Búðardal. Sérstakar þakkir fær Vilhelmína Haraldsdóttir læknir og allt hið frábæra starfsfólk á deildum 11G og 11E á Landspítalanum fyrir góða og alúðlega umönnun. . Guðrún María Björnsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.