Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.01.1988, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 14.01.1988, Blaðsíða 3
\)iKur< (titu* Slysstaðurinn: Útlínur Garðskaga eru merktar A. B=Þar skáru skipverjar Akureyjar á línuna er þeir sáu blysið. C=Sjá þeir handblysið. D=Ná þeir gúmmibátnum upp. E=Endinn á línunni, en báturinn fórst um mílu frá þeim stað. Strikið frá E og í átt að B sýnir síðan leitarsvæðið. Kort þetta sýnir skjá- mynd á svonefndum Plotter. Fimmtudagur 14. janúar 1988 3 Skipverjar Akureyjar eftir að hafa skilað skipbrotsmönnunum til Keflavíkur. F.v. Magnús Sig- urðsson, Vignir Þorvaldsson, Þorsteinn Tyrfingsson og Arni Vikarsson. Til hliðar við Magnús sést í gúmmíbátinn sem mennirnir björguðust í. uósm.: epi ..Minn stærsti róður" - sagði Árni Vikarsson, skipstjóri á Akurey KE 121, sem bjargaði þremur skipverjum af Bergþóri „Þetta var fyrsti róðurinn okkar á þessu ári og sá stærsti frá því ég byrjaði sem skipstjórnarmaður 1972,“ sagði Arni Vikarsson, eig- andi og skipstjóri Akureyjar KE 121, eftir að hafa bjargað þeim þremur skipverjum af Bergþóri KE 5, sem fórst 8 sjómílur NV af Garðskaga á föstudag. Sagði Árni að þarna hefðu togast á sorg og gleði, en það væri þó ekki síð- ur skipverjum sínum að þakka að þetta Skyldi takast. Báðir bátarnir, Akurey og Bergþór, voru á línuveiðum og var veður orðið slæmt þegar slysið varð. Sagði Árni að veðrið hefði rokið upp eins og hendi væri veifað um há- degið en þá voru þeirá Akur- eynni að ljúka við að leggja línuna er fyrsti vindsveipur- inn kom. Miklar óspektir og ölvun um helgina Um síðustu helgi hafði lögreglan mikið að gera vegna óspekta og ölvun- ar. Af þessum orsökum fengu 11 manns gistingu í fangageymslum á lögregl- ustöðinni í Keflavík á föstudagskvöld og laug- ardagskvöld. Þá voru tveir ökumenn teknir í síðustu viku sök- um ölvunar við akstur. Annar þeirra var leigubíl- stjóri sem ók á ljósastaur og sagt er frá annars stað- ar í blaðinu. Hjá hinum ökumann- inum, sem tekinn var grunaður um meinta ölv- un við akstur, fannst smá- vægilegt magn af dufti, sem talið var vera fíkni- efni. Við nánari rannsókn kom hins vegar í ljós að svo var ekki. Átak til aukinna sjóslysavarna Slysavarnasveitin Ægir í Garði mun næstu vikur hafa til sölu veggplatta með merki Slysavarnafélags íslands. Er hér um að ræða veggplatta þá er boðnir voru fyrirtækjum og einstaklingum hér á Suð- urnesjum, utan Keflavíkur og Garðs. Þar sem litið upplag af plöttum þessum kom í hlut Slysavarnasveitarinnar Ægis á Merkisdögunum í október í fyrra, þá eru þeir fyrst boðnir til sölu núna. Fyrirtæki og einstaklingar Verié tímanlega mei) skattframtölin! ■ TEK AÐ MÉR GERÐ SKATT- FRAMTALA FYRIR EINSTAKLINGA '=======SK ATTSYSL.4S sf.= REYNIR ÓLAFSSON, viðskiptafræðingur Brekkustíg 39 - Njarðvík - Sími 14500 í Keflavík og Garði! Verum með í átaki til aukinna sjó- slysavarna. Tryggið ykkur platta í síma 92-27263 í kvöld milli klukkan 20 og 22:30 og næstu fimmtudaga frá kl. 17 til 21. Verð á platta er 3.500 krónur. Slysavarnasveitin Ægir, Garði. Auglýsing í Víkur-fréttum er engin smáauglýsing. Bandariska fjölskyldu vantar bráðnauösynlega 4ra-5 herb. hús eöa íbúö. Góöri umgengni heitiö. Vill greiöa allt aö árs leigu fyrirfram. Getur enn- fremur lagt inn tryggingarfé og meðmæli ef óskað er. Hringið I Huldu sima 54452 eöa í Gorman í síma 52210. Olympus OM 40 program til sölu ásamt 28 mm - 50 mm og 28-70 mm linsum. Flass. Fæst á frábærum kjörum. Uppl. hjá Litt’- inn hjá Óla, Hafnargötu 35, Kefla- vík. V eisluþj ónusta / Utvegum áhöld og vant starfsfólk. LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ. NEISLUÞJONUSTAN Iðavöllum - Keflavík - Sími 14797

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.