Víkurfréttir - 14.01.1988, Síða 6
\)iKur<
6 Fimmtudagur 14. janúar 1988
orðvar
Verðmunur á gervitönn-
um borgar vikuferð út
Miklar umræður urðu í
haust, vegna tíðra verslunar-
ferða íslendinga til Glas-
govv og Amsterdam. Fólk
kom fram í fjölmiðlum og
sagði með stolti frá hagstæð-
um innkaupum erlendis.
Margir keyptu þar fatnað og
annað góss fyrir 110-150
þúsund ísl. krónur, og full-
yrti frammi fyrir alþjóð að
samkvæmt íslensku verðlagi
mætti meta ferðatöskurnar
þeirra á hálfa milljón krón-
ur. Góður hisness það, ef
satt er. Ilver láir svo þotu-
fólki á frímiðum að fara 3-4
verslunarferðir til Skot-
lands á verðbólguþjökuðuni
haustdögum? Hér er ein
sönn úr byggðarlaginu.
Snemma í haust fór Sand-
gerðingur einn í kvikmynda-
hús í Reykjavík, sem er
kannski ekki í frásögu fær-
andi, ef einhver ófyrirleitinn
náungi hefði ekki hirt alla
hjólkoppana undan bílnum
hans á meðan á sýningunni
stóð. Sandgerðingurinn er
mikið snyrtimenni og undi
því illa að aka á nýjum gljá-
fægðum bílnum hjólkoppa-
lausum. Nokkrum dögum
síðar hrá hann sér því í um-
boðið og hugðist bjarga út-
liti bílsins. En viti menn.
Hjólkoppurinn kostaði kr.
8.800 stykkið, eða samtals
kr. 35.200 undir allan gull-
vagninn. I okt. sl. notaði
hann þá orlofsdaga sem
hann átti eftir og tók sér far
með Arnarflugi til Ham-
borgar, og keypti þar m.a.
hjólkoppana ijóra. Hann
hefur sýnt hverjum sem sjá
vill, reikninginn yfir kopp-
ana.
Flugfar ........... 11.500
Gisting í 2 nætur ... 3.200
Leigúbílar erlendis . 1.800
4 stk. hjólkoppar . . . 8.600
Samtals 25.100
Verðmunurinn á gervi-
tönnum, gleraugum eða hár-
kollu er sagður borga viku-
ferð til Englands. Það þarf
cnginn að trúa ofanrituðu
frekar en hann vill, því ef
satt er, ja, þá er eitthvað
meira en lítið að einhvers
staðar. Fólk virðist samt oft
fara í þessa leiðangra með
þá trú, að því meira sem það
eyði því meira spari það.
Kaupin geta þess vegna
orðið ærið skondin, eins og
eftirfarandi dæmi sýnir.
Kona nokkur, sem lokið
hafði öllum innkaupunum,
rakst af bríeríi á sérlega fal-
legan kjól. Vegna þess hvað
verðið var hlægilega lágt,
keypti hún kjólinn, þrátt
fyrir að hann væri tveimur
númerum of lítill á hana.
Þegar heim kom, lagði hún
hart að sér í megruninni.
Þegar því takmarki var náð,
að hún passaði í kjólinn, átt-
aði hún sig á því að öll hin
fötin sem hún keypti í Glas-
gow voru orðin tveimur núm-
erum of stór. Sorglegustu
dæmin um góð kaup eru af
fólki sem man ekkert frá því
það drakk fyrstu glösin í Frí-
höfninni hér heima, og
þangað til það vaknaði viku
seinna uppi í rúmi heima hjá
sér.
Vonandi enda þessi
ævintýri vel eins og öll önnur
góð ævintýri.
TILKYNNING
til greiðenda
bæjargjalda
Þrátt fyrir gildistöku laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu
opinberra gjalda og stofnun Gjaldheimtu Suðurnesja, verða eft-
irtalin gjöld fyrst um sinn innheimt af bæjarskrifstofunni í
Keflavík:
1. Öll ógreidd gjöld, álögð á árinu 1987 og
fyrr.
2. Fyrirframálagning aðstöðugjalda ársins
1988.
3. Fasteignagjöld 1988.
Gjalddagar aðstöðu- og fasteignagjalda verða 5, mánaðarlega
frá og með 1. febrúar n.k. að telja. Gíróseðlar verða sendir
gjaldendum vegna fasteignagjalda, en önnur gjöld skal greiða á
skrifstofu bœjarsjóðs, Hafnargötu 12, eða inn á reikning bœjar-
sjóðs í bönkum og sparisjóðum.
Lögtök vegna eldri gja/da standa yfir.
Innheimta Keflavíkurbæjar
4titm
Vínveitinga-
leyfi á
Hótel
Kristínu
Steindór Sigurðsson, sér-
leyfishafi og hóteleigandi í
Njarðvík, hefur sótt um vín-
veitingaleyfi á Hótel Krist-
ínu. Hefur umsóknin verið
samþykkt þegar í bæjar-
stjórn Njarðvikur og áfengis-
varnanefnd Njarðvíkur. Er
því beðið endanlegrar af-
greiðslu dómsmálaráðuneyt-
isins.
Að sögn Steindórs er það
fyrst og fremst vegna dvalar
erlendra ferðamanna á hótel-
inu að hann sækir um leyfi
þetta. Stefnir hann að því að
við upphaf ferðamanna-
straumsins í vor taki hann
upp slíkar veitingar, en áður
þarf hann að láta gera nokkr-
ar breytingar á húsnæði sínu.
Hefur að undanförnu ver-
ið þokkaleg nýting á hótel-
inu, þó stundum hafi hún
dottið niður. I annan tíma
hefur aðsókn verið það góð
að hann hefur ekki getað tek-
ið við öllum þeim er gistingu
hafa óskað.
Brotajárn
urðað við DYE-5
Nú stendur yfir könnun á
kostnaði hjá Sorpeyðingar-
stöð Suðurnesja við flutning
á brotajárni og öðru stór-
gerðu rusli af stöðvarlóðinni.
Er rætt um að urða rusl þetta
á svæði DYE-5, sem er varn-
arliðsstöð í Miðneslandi.
Frá því að Sindri hætti
móttöku á brotajárni hefur
rusl hlaðist upp á lóð stöðv-
arinnar við Hafnaveg og er
þar þyrnir í augum margra
umhverfissinna.
Bygging aldraðra:
Matsnefnd
skipuð vegna
húsakaupa
Að undanförnu hefur
staðið yfir athugun á því
að Keflavíkurbær kaupi
Kirkjuveg 5 af Kára Þórðar-
syni. Er hugmynd bæjarins
að fjarlægja húsið svo byggja
megi annan áfanga að íbúð-
um aldraðra við Kirkjuveg.
Oskaði bæjarsjóður eftir
að fasteignasölur í Keflavík
gerðu mat á húseigninni og
lóðinni svo hægt væri að
ganga til samninga um kaup
á umræddri eign. Þegar
matsverð lágu fyrir hafnaði
Kári Þórðarson þeim og ósk-
aði eftir sérstakri matsnefnd
til að tilnefna matsverð eign-
arinnar.
Hefur Keflavíkurbærsam-
þykkt að hafa þann háttinná
og hefur bæjarstjórn sam-
þykkt að fulltrúi Keflavíkur-
bæjar í nefndinni verði for-
maður bæjarráðs, Hannes
Einarsson..