Víkurfréttir - 14.01.1988, Síða 8
8 Fimmtudagur 14. janúar 1988
molar
Liggjandi lögreglu-
þjónar og konubrjóst
Maður einn sem ekki hafði
ekið um Kellavík og Garð
lengi, sagðist ekki skilja hvað
menn væru að gera með alla
þessa liggjandi lögregluþjóna.
Annar sagðist ekki skilja hvers
vegna veriðværi aðdrita konu-
brjóstum um allar jarðir. Fyrir
þá sem ekki skila, skal á það
bent, að þetta eru nýyrði fólks-
ins á götunni yfir hraðahindr-
anir. Fru nöfnin dregin af því
að sums staðareru hindranirn-
ar málaðar með hvítum rönd-
um og að sjálfsögðu ætlað að
draga úr uml'erð, og því kall-
aðar liggjandi lögregluþjónar.
Síðan eru varnarmerki sem líta
út eins og konubrjóst, áðuren
komið er að hindrununt þess-
um, sem eins og sumir segja
fara nú eins og faraldur um
Suðurnes.
Metári lokið
Síðasta ár verður lengi í
minnum haft hjá okkur á
Víkur-fréttum, því það ár var
metár hvað útgáfu blaðsins
varðar. Það ár voru gefnar út
1166 síður í 59 tölublöðum,
eða tæpar 20 síður hverju
sinni. Hafa ber þó í liuga að l'rá
febrúar til maí kom blaðið út
tvisvar í viku. Það form var
gert í tilraunaskyni og hafði
bæði kosti og galla. Þó kost-
irnir hafi verið miklir voru
gallarnir þó lleiri, og því hefur
ekki verið gert meira af því, en
óvíst er hvað framtíðin ber í
skauti sér í þeim efnum.
Ómannúðleg
fréttamennska
Þeir urðu margir sem
hneyksluðust yfir aðgangs-
hörku fréttamanna dagblaða,
sjónvarps- og útvarpsstöðv-
anna um helgina, í sambandi
við sjóslysið úti af Garðskaga.
Myndbirting Morgunblaðsins
af skipbrotsmönnum og að-
gangsharka sjónvarpsstöðv-
anna beggja við lögreglustöð-
ina eru bestu dæmin þar um.
Sátu fréttamenn sjónvarps-
stöðvanna fyrir skipbrots-
mönnum er þeir komu til lög-
reglustöðvarinnar til að gefa
skýrslu. Þó voru starfsmenn
Stöðvar 2 langverstir í þeim
efnum og gengu það langt, að
birta nöfn áður en heimild
hafði verið gefin, og síðan var
aðgangsharkan slík á lögreglu-
stöðinni, að henda varð þeim
út þaðan. Virðist mannlega
hliðin og samviska frétta-
mannanna alveg hafa gleymst
í þessum efnum.
Fíabúð endurreist
Unnar Ragnarsson, kaup-
maður í Njarðvík, hefurendur-
reist Fíabúð, en sem kunnugt
er þá keypti hann Nonna &
Bubba í Njarðvík nú um ára-
mótin. Heitir verslunin í höf-
uðið á verslun þeirri sem
Friðjón heitinn Jónsson
stofnaði fyrir mörgum árum í
þessu sama húsi og gaf nafnið
Friðjónskjör, en var manna á
milli alltaf nefnd Fíabúð.
Jöfur til Sandgerðis?
Viðræður hafa staðið yfir að
undanförnu um kaup Rafns
hf. í Sandgerði á loðnuskipinu
Jöfri úrKellavík. Ekkert hefur
þó verið ákveðið ennþá, þar
sem ákveðin mál þurfa skoð-
unar við áður. Sem kunnugt er
af fréttum eiga núverandi eig-
endur Jöfurs KE, von á nýju
skipi frá Stálvík hf. er líða
tekur á veturinn.
Valdi í Útskála
Páll Axelsson, útgerðar-
maður, fiskverkandi og hús-
gagnakaupmaður, hefur ráðið
sér nýjan verslunarstjóra í hús-
gagnaverslunina Útskála. Um
er að ræða Valdimar Valsson,
sem áður var lagerstjóri og að-
stoðarverslunarstjóri hjá Hag-
kaup á Fitjum.
Annar háttur
Það virðast ekki vera sömu
viðbrögð almennings og yfir-
valda í öllum menningarmál-
um. Alla vega virðast við-
brögðin við mengun frá fisk-
vinnslufyrirtækjum í Keflavík
og Njarðvík vera mjög hörð og
þá fer allt á annan endann.
Þegar upp kemur hins vegar
mengun frá olíu verndarans í
heiðinni, er allt annað uppi á
teningnum og þeir fá meira að
segja sjálfir að taka sýnin sem
marka mega mengunina.
Getur þetta talist eðlilegt?
kynni margur að spyrja. Þá
ekki síður nú, þegar um stór-
alvarlegt mál er að ræða.
Breytum til -
Bovðum í BREKKU
Helgarmatseðillinn:_________________
Rósinkálsúpa að suðrænum hætti.
Egghjúpaðar skötuselssneiðar með hrísgrjón-
um, blómkáli og karrýsósu.
Pönnusteikt rauðsprettuflök með bönunum,
fersku grænmeti og kiwisósu.
Marineraður lambavöðvi í léttum kryddjurtum,
brokkoli og bakaðri kartöflu.
Turnbauti með baconsneiðum, sveppum,
humar og bakaðri kartöflu.
Þorrinn nálgast
Erum byrjuð að undirbúa
okkur fyrir þorrann.
Tökum að okkur þorrablót.
Útvegum salarkynni fyrir allt
að 140 manns.
Myndlistar-
sýning
Ásta Árnadóttir, mynd-
listarkona, sýnir
verk sín í
BREKKU.
VEITINGAHÚSIÐ
BREKKA
Tjarnargötu 31A - Keflavík - Sími 13977
juttU
íbúarnir hafa
lokaorðin
Mikil umræða er víða um
Suðurnes um sameiningu
sveitarfélaga. Að sjálfsögðu
skiptast menn í ýmsar fylking-
ar í þeim efnum. Þó samstarf
hafi aukist mikið, og þá sér í
lagi milli Keflavíkur og Njarð-
víkur, er langt í frá að það
merki sameiningu. Enda hafa
engar ákvarðanir um slíkt
verið teknar í bæjarstjórnum
þessara tveggja bæjarfélaga,
þó vitað sé að í þeim hópum
séu bæði andstæðingar og
fylgismenn. En hvað svo sem
bæjar- eða sveitarstjórnir á
Suðurnesjum ákveða í þessum
efnum, verður ekkert úr sam-
einingu nema íbúarnir sam-
þykki slíkt í almennum kosn-
ingum. Eru lokaorðin því
þeirra.
Fjör í bakstrinum
Fregnir berast af nýjum
bakaríum í uppsiglingu i KeP.a-
vík. Fyrst er það Sigurjón Héð-
insson bakari, sem ætlar að
llytja á heimaslóðir á ný og
setja upp bakarí, og síðan fyrr-
um lærifaðir hans, Ragnar í
Ragnarsbakaríi, sem stefnir að
uppsetningu kökuhúss með
vorinu.
Ofnar og vinnumiðlun
Fréttir berast af því að tvö
fyrirtæki séu u.þ.b. að setjast
að í Færseth-höllinni í Kefla-
vík. Hið fyrra er Bolafótur,
heildsölufyrirtæki Harðar
Karlssonar, sem flytur inn
hina vinsælu hollensku mið-
stöðvarofna. Þá berast einnig
fréttir af því að fyrrum bílasali
og bensínafgreiðslumaður Jó-
hannes Einarsson ætli sér að
setja þar á stofn atvinnu-
miðlun.
Gleðihús í Sandgerði
Um síðustu helgi lét lögregl-
an til skarar skríða og hreins-
aði út úr húsi einu í Sandgerði,
þar sem partý hefur nánast
staðið stanslaust síðan löngu
fyrir jól. Auk lögreglunnar i
Keflavík var fengin aðstoð lög-
reglunnar á Keflavíkurflug-
velli til hreinsunar þessarar.;.
Fengu allir þeir sem í íbúðinni
voru upp undir hálfan sólar-
hring í gistingu í fangageymslu
lögreglunnar. En áður en að
því kom, kom til ryskinga milli
lögreglu og gestanna í íbúð-
inni.
Stjórnar Júlíus Vífill
eftirlitinu?
Fyrir þá sem fylgjast í fjarlægð
með tilraunum fjórmenning-
anna til að fá innflutningsleyfi
fyrir Subaru-bílana, kemur
hlutur Júlíusar Vífils hjá
Subaru-umboðinu nokkuð
einkennilega fyrir sjónir. Mið-
að við þá stöðu sem málið er nú
komið í, virðist Bifreiðaeftir-
litið hafa ákveðið að orð hans
skuli vera þau sem vinna á
eftir. Því erspurningaf hverju
eftirlitið er ekki bara lagt undir
umræddan umboðsmann?
TRÉ-X
SPÚN-
PARKET
Ódýrt, sterkt og
auðvelt að leggja.
TRÉ-X
BYGGINGAVÖRUR
Iðavöllum 7 - Sími 14700